Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2004, Blaðsíða 5

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2004, Blaðsíða 5
Maríus M a r í u s s v e r r i s s o n k e M u r f r a M á ú t g á f u t ó n l e i k u M á o p n u n a r h á t í ð h i n s e g i n d a g a í l o f t k a s ta l a n u M f ö s t u d a g i n n 6 . á g ú s t, k l . 2 1 h a n n s k e M M t i r e i n n i g á s v i ð i h i n s e g i n d a g a í l æ k j a r g ö t u l a u g a r d a g i n n 7 . á g ú s t það gneistar af Maríusi þegar hann treður upp á sviði. Það vita allir sem hafa séð hann og heyrt. Hann byrjaði kornungur að syngja og dansa, var aðaldriffjöður draggsýninganna á Moulin Rouge við Hlemm í upphafi tíunda áratugarins, en hélt skömmu síðar suður til Evrópu í söngleikjanám. Maríus hefur átt sitt hreiður í Austurríki og Þýskalandi síðastliðinn áratug og er á góðri leið með að verða stórt nafn í söngleikjaheimi þýskumælandi þjóða. Meðal annars hefur hann tekið þátt í uppfærslum á Cabaret, Sound of Music, Kiss me Kate, Moses og La Cage aux Folles. Túlkun Maríusar á Jim Farrell í söngleiknum Titanic – Das Musikal, sem sýnt var í Hamborg nýverið, féll höfundinum, Maury Yeston, svo vel í geð að hann samdi aukadúett fyrir Maríus og mótleikkonu hans. Maríus hefur nýlokið við fyrstu sólóplötuna sína, Mobile, sem hann hefur unnið í félagi við ítalska gítarleikarann Andrea Dessi. Á útgáfutónleikunum í Loftkast- alanum 6. ágúst mun Maríus flytja lög af plötunni með valinkunnum íslenskum hljóðfæraleikurum. Maríus – Velkominn á svið Hinsegin daga! icelandic musical star Maríus sverrisson studied at the best schools of europe for performing arts. he has acquired a name in the german speaking musical world with parts in shows like Cabaret, sound of Music, kiss me kate, Moses and la Cage aux folles and he made a lasting impression as jim farrell in the musical titanic in hamburg. We are proud to present Maríus at the open air concert on saturday 7 august. he will also present his new solo-album Mobile at the reykjavík gay pride opening ceremony in loftkastalinn theatre friday 6 august, at 9 p.m. 5

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.