Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2004, Síða 3
The Gay Pride festivities in Reykjavík, organized by five
Icelandic gay organizations and action groups, have
been a marvellous success for five years. A huge, merry
and colorful Gay Parade through the main shopping
street Laugavegur in the city center and a grand out-
door concert attended by 20–30.000 participants each
year, lesbians and gay men, friends, relatives, fellow citi-
zens and numerous foreign visitors showing solidarity
with the gay cause on the second weekend of August.
This year´s Gay Pride celebrations, on Saturday
August 7th, have been prepared to meet our
wildest expectations, a Gay Parade even more
colorful than previous years´ and a variety of well
known professional entertainers performing on a
big stage.
The gay rights campaign in Iceland has a history
of twenty five years. A chronicle of a hard fight and vic-
tory almost unique in the world. From being an invisible
group of an oppressed minority, the lesbians and gay
men in Iceland have now gained social and legal rights
which is comparable to the best of its kind in the world.
This is clearly reflected in our festivities – a true mani-
festation of our pride and ambitions.
We are pleased to welcome you to our festivities,
Reykjavík Gay Pride 2004. We emphazise that gay soli-
darity can only be realized universally. Thank you for
joining us, thank you for adding your own special touch
of color to our rainbow.
Sjötta árið í röð halda samkynhneigðir Hinsegin daga
hátíðlega í Reykjavík. Eftir mikinn og vandaðan undir-
búning allt frá síðustu hátíð, fjölmenna allir sem vilja
sýna samstöðu með málstað samkynhneigðra í fjörmikla
og skrautlega gleðigöngu niður Laugaveg og á glæsi-
lega útitónleika í Lækjargötu laugardaginn 7. ágúst.
Á hátíðinni í ágúst minnum við sjálf okkur og aðra á
mikilvægi þess að efla sýnileika okkar og stoltar
tilfinningar. Með hátíðahöldunum minnum við
bæði sjálf okkur og aðra þegna þessa lands á
það að lesbíur og hommar á Íslandi eiga sér
menningu og sögu, þau eiga fjölskyldur og vini
sem vilja deila gleði og stolti með þeim sem náð
hafa lengra en samkynhneigt fólk flestra annarra
ríkja í mannréttindabaráttu sinni.
Hinsegin dagar í Reykjavík eru orðnir hefðbund-
inn þáttur í borgarlífinu. Samt er hátíðin ný í hvert sinn.
Í ár munu allir þeir slást í hópinn sem voru fjarri góðu
gamni í fyrra. Vonandi taka þeir með sér systkini sín og
foreldra, afa og ömmur, ættingja og vini. Leit okkar að
frelsi, stolti og mannvirðingu er nefnilega ekkert
einkamál samkynhneigðra, hún er mál allrar þjóðarinn-
ar og alls þess heims sem lætur sig mannlega hamingju
varða. Á hátíðinni í ágúst sameinast allir undir regn-
bogafánanum sem táknar litrófið í margbreytilegri
menningu samkynhneigðra. Þótt litirnir séu margir
mynda þeir saman einn skínandi regnboga.
Samstarfsnefnd um
Hinsegin daga í Reykjavík 2004
Welcome to Reykjavík Gay Pride 2004!
Velkomin á Hinsegin daga!