Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2004, Qupperneq 27
Það var sumarið 1984 að ég tók þátt í
leiksýningu hjá Stúdentaleikhúsinu
sem sett var upp í Stúdentaheimilinu
við Hringbraut, í salnum þar sem
Bóksala stúdenta er núna. Þetta var
leikritið Láttu ekki deigan síga,
Guðmundur eftir Hlín Agnarsdóttur
og Eddu Björgvins. Málin æxluðust
þannig að ég fékk hin og þessi smá-
hlutverk í leiknum og í einu þeirra var
ég settur í nælonsokkabuxur og með
hárkollu ásamt tveimur öðrum. Dragg-
drottningar í einar fimm mínútur af
leiknum. Mér fannst þetta allt svolítið
skrýtið, en það létti mér lífið að leik-
stjórinn, Þórhildur Þorleifsdóttir, dáðist
mikið að því hvað ég hefði fallega fót-
leggi í sokkabuxunum. Mikið hrós frá
konu sem er þekkt fyrir að segja sína
meiningu.
Leikritið var um mann sem var
óskaplega upptekinn við að leita að
sjálfum sér. Í endalausri leit og sjálf-
skoðun. Og einn kaflinn í naflaskoðun
Guðmundar var að „gerast“ hommi. Á
fyrstu æfingunum ræddum við um
efnið og túlkunina og ég man að
höfundarnir og leikstjórinn voru þá að
ræða um samkynhneigð. Það var allt á
þeim nótum að þetta væri nú eitt af því
sem fólk prófaði stundum í leit að
sjálfu sér, en væri svo sem ekkert
meira, fólk ætti bara eftir að finna sjálft
sig – í einhverju öðru. Þannig var frjáls-
lyndistónninn á þessum árum. Mér
fannst rosalega erfitt að sitja undir
þessu því að ég hélt að í þessum hópi
ætti ég von um að finna skilning. Því
ég hafði það á hreinu að ég var
hommi. Ég var heldur ekki sá eini í
hópnum, það voru fleiri strákar þarna í
kringum sýninguna eins og ég, eins og
svo oft í kringum leikhús. En við
sögðum aldrei neitt um það hverjir við
vorum.
Allt um það, í sokkabuxurnar fór ég
og svo sungum við þrír okkar söng:
að vera heteró, að vera hómó,
að vera bí-bí, þrí-þrí eða sódó,
það skiptir engu, en er þó málið,
að koma úr felum, að koma úr felum.
að vera kona, að þora að vona,
að vera hinsegin eða bara svona,
það skiptir engu, en er þó málið,
að koma úr felum, að koma úr felum.
Ég gleymi aldrei kvöldinu þegar
mamma og vinkonur hennar komu til
að sjá leikinn. Mamma kom til mín eftir
sýninguna til að þakka fyrir sig og
sagði þessi ógleymanlegu orð: „Ó, mér
fannst þú alveg frábær hommi, Þór-
hallur!"
Þetta var nokkrum árum áður en ég
kom úr skápnum gagnvart foreldrum
mínum. By the way, mömmu finnst
ennþá að ég sé alveg frábær hommi.
thórhallur vilhjálmsson is an ex-butler, moun-
tain guide, teacher and marketing executive,
and presently works as business consultant. in
2000 he wrote the memoir The Pigs Butler and
had excerpts published in us magazines such
as Talk Magazine and newspapers in the us
and uk. here thórhallur recalls the time he
participated in an amateur student theater in
the early 80's. in a short scene of the play he
appeared in drag and his mother comple-
mented his excellent realistic “portrayal“ of a
homosexual. this was some years before he
came out to his parents.
M Ö R G E R V I S K A N
Undir venjulegum jakkafötum
engin nöfn, engar tilfinningar, engin ástúð
– ekki neitt. er sambandið milli kynvillinga
alltaf svona ópersónulegt? nei. flest slík
sambönd eru ennþá ópersónulegri. vitan-
lega er til fjöldi afbrigða en þau eiga eitt
sameiginlegt. áherslan er á limnum en ekki
manninum ... lauslætið er eitt höfuðeinkenni
kynvillunnar. sumir kynvillingar klæðast
sokkabeltum undir öðrum fatnaði og þeir
sem eru vel í holdum, notfæra sér þá maga-
beltin. nokkrir þeirra ganga svo langt að
klæðast kvenmannsfötum innan undir venju-
legum jakkafötum.
David Reuben: Allt sem þú hefur viljað vita um
kynlífið, 1969
Sjúkdómar og mannamein
horfur á lækningu fara mjög eftir viðhorfi og
áhuga þess sem læknismeðferðina hlýtur...
Meirihluti þeirra kynvillinga sem eru alvarlega
hugsandi yfir ástandi sínu og vilja vinna að
því að bæta það, öðlast eðlilegri viðhorf
gagnvart hinu kyninu.
H.G. Ginott: Uppeldishandbókin – foreldrar og
táningar, 1971
Boli, boli bankar á dyr
en þeir kynvillingar sem búa saman í sátt og
samlyndi? þeir eru sannarlega vandfundir.
og þetta með „sátt og samlyndi“ er ósann-
að mál. Þegar hjón rífast sem heiftarlegast
þá er slíkt eins og ástríðuríkasti ástaróður í
samanburði við samræðurnar, sem „bolinn“
og „drottningin“ hafa hvort við annað að
búa saman? já, slíkt þekkist. í sátt og sam-
lyndi? tæplega.
david reuben: allt sem ú hefur viljað vita um
kynlífið, 1969
Sumir hafa stjórn á sér
Þeir þurfa að fá jákvæða fræðslu, en vita ekki
hvar hana er að finna ... hafa allir kynvill-
ingar í frammi kynmök? nei. sumir hafa
næga stjórn á sér ... sumar lesbíur sem fyrir-
líta karlmenn, hafa ánægju af að vekja kyn-
löngun hjá karlmanni og refsa honum svo
með því að vísa honum á bug ... ringlaðir og
fullir lífsleiða vegna galla sem þeir eiga enga
sök á, óska þeir þess í örvæntingu að verða
„eins og allir aðrir“.
Ann Landers: Táningabókin, 1969
Alveg frábær hommi
Þ ó r h a l l u r v i l h j á l m s s o n