Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2004, Síða 34
H e i m i R m á R P É t u R s s o n
V i Ð t a l V i Ð
HRafnHildi gunnaRsdóttuR
Hún þekkir skápinn illræmda aðeins af
afspurn, var eiginlega aldrei inni í honum
sjálf. þrettán ára gömul eignaðist hún
sína fyrstu „kelikærustu“ og þegar hún
var sextán ára velktist enginn í vafa um
hver hún var. Hún var sjálfstæð ung kona
sem þekkti eigin tilfinningar. Það var þó
ekki sjálfgefið að ungar lesbíur hefðu for-
sendur til að vera svo öruggar með sjálfar
sig á þeim tíma. Samtökin ´78 voru bara
tveggja ára og skipulögð réttindabarátta
samkynhneigðra á Íslandi að stíga sín
fyrstu skref. Samfélagið var gegnsýrt af
ranghugmyndum og fordómum um sam-
kynhneigða sem almennt voru kallaðir
kynvillingar, álitnir veikir eða í besta falli
einhver undarlegur útúrdúr í sköpunar-
verkinu. Hrafnhildur Gunnarsdóttir eða
Hrabba skrifaði ekki undir það. Hún var
alltaf staðráðin í að vera hún sjálf og biðj-
ast ekki afsökunar á því að vera til.
Hrabba er fædd í Reykjavík árið 1964
og alin upp í Hlíðunum. Eftir stúdentspróf
frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
leitaði hugurinn út fyrir landsteinana. Hún
vildi fara til Kaliforníu í Bandaríkjunum og
þá urðu margir vinir og vandamenn undr-
andi, enda var hún frekar félagshyggju-
sinnuð. Mörgum fannst eins og Danmörk
myndi eiga betur við hana og að hún
væri því að fara í vitlausa átt þegar hún
tók stefnuna á nám við University of
California í Berkeley.
„Þar byrjaði ég í fornámi fyrir
fjölmiðlafræði en sá fljótlega að ég myndi
ekki nenna að verða blaðamaður eða eitt-
hvað slíkt, í því umhverfi sem bandarískir
fjölmiðlar buðu upp á. Ég spilaði hins
vegar í fótboltaliði skólans og það var
mjög gaman,“ segir Hrabba. Hún færði
sig fljótlega yfir í kvikmyndadeild Art
Institute í San Francisco, með millilend-
ingu í Californian Arts and Crafts. En
hvers vegna San Francisco?
„Það var orðspor borgarinnar sem réði
því og líka það að Berkeley var þekktur
sem róttækur háskólabær, t.d. í mót-
mælunum gegn Víetnam-stríðinu og í
baráttunni fyrir tjáningarfrelsinu. En
þegar ég var komin þangað leist mér
ekkert á bæinn. Hann stóð ekki lengur
undir nafni og nemendurnir í skólanum
íhaldssamir.
Gay ímyndin sem fylgdi San Francisco
hafði líka mikið um það að segja að ég
vildi fara þangað. Ég hafði heyrt og lesið
um Tom Ammiano og Harvey Milk sem
báðir urðu heimsfrægir fyrir baráttu sína
fyrir mannréttindum samkynhneigðra og
Amiano er enn í borgarstjórn San
Francisco.“
Saga Hröbbu er um margt sérstæð
34