Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2004, Side 35
því hún tilheyrir sennilega fyrstu kynslóð
lesbía á Íslandi sem brjótast almennilega
út úr þögninni. Auðvitað voru aðstæður
þeirra aðrar en kvenna sem eru
áratugnum eldri eða meira. Hvers vegna
heldur Hrabba að henni hafi reynst svo
auðvelt að gangast við tilfinningum
sínum og koma út strax á unglingsárum?
Neitaði snemma að fara í kjól
„Ég veit það ekki. En ég var alltaf
strákastelpa. Á tímabili var það mér til
trafala og mér fannst jafnvel að ég ætti
að vera strákur. Ég var víst bara þriggja
ára þegar ég neitaði í fyrsta skipti að fara
í kjól. þegar ég var að komast á
unglingsár var kvennabaráttan hins vegar
upp á sitt besta og rauðsokkurnar á fullu.
Mér var aldrei strítt. Við erum bara
tvö systkinin og bróðir minn er tólf árum
eldri en ég, svo að ég stóð mikið ein.
Auðvitað var ég aldrei nógu kúl til að vera
í klíku með mestu skvísunum, spilaði
frekar fótbolta með strákunum,“ segir
Hrabba og glottir. Og eins og gengur
eignaðist hún líka kærasta á unglings-
árunum.
„Ég eignaðist fyrsta kærastann minn
þegar ég var fjórtán ára og hann sagði
einhvern tíma við mig: „Þú verður
örugglega lesbía, Hrabba.“ Og ég var
alveg sátt við það.“
Það gat stundum komið sér vel að vera
stráksleg stelpa. „Þegar ég var ellefu ára
seldi ég blöð eins og margir aðrir krakkar.
Það var oft æsingur í röðinni fyrir utan
dreifingarstöðvarnar því allir vildu verða
fyrstir til að fá blöðin sín til að geta byrjað
að selja á undan hinum. Einu sinni beið
ég í röð eftir blöðum og þurfti að bregða
mér snöggvast út úr röðinni. Ég bað strák
sem var fyrir aftan mig að gæta að
staðnum mínum. Þegar ég kom til baka
og fór aftur í röðina voru ekki allir sáttir
við það, en þá sagði strákurinn sem hafði
verið á vaktinni fyrir mig: „Hann stóð
hérna áðan.“ Þá spurði einn strákurinn
hvað ég héti. Ég hugsaði mig um smá-
stund og svaraði svo að ég héti Hrafn.
Eftir þetta hét ég Hrafn í þessum kreðsum
og átti fyrir vikið mun auðveldara með að
komast áfram í dagblaðabisnessinum.“
Einn af nágrönnum okkar sagði líka
einu sinni við mömmu: „Það hefur eitt-
hvað farið úrskeiðis þegar þú bjóst hana
til þessa. Hún lítur út eins og strákur og
leikur sér eins og strákur.“ Hrabba segir
að þetta hafi ekki haft mikil áhrif á
mömmu hennar. „Foreldar mínir hafa
alltaf staðið við bakið á mér. Þau hafa
stutt mig eins og íslenskir foreldrar gera
án þess að hafa um það mörg orð.“
Það eru liðin tæplega tuttugu ár frá því
Hrabba hélt til Bandaríkjanna. Hún lauk
kvikmyndanámi árið 1989 og hefur síðan
unnið fyrir sér sem klippari eða kvikmynda-
tökumaður í hinum fjölbreyttustu verk-
efnum fyrir aðra, en hóf snemma að gera
sínar eigin stuttmyndir. Lengst af hefur
hún búið í San Francisco fyrir utan tvö ár
þegar ástin dró hana til New York.
Verkefnin hafa verið mörg en þeirra fræg-
ast er sennilega myndin Sex is... frá árinu
1994 sem fjallar um þátt kynlífsins í lífi
homma og þá sérstaklega um áhrif
alnæmis á það. Einnig má nefna heim-
ildamyndirnar Scouts Honor efir Tom
Shepard og Seniorita Extraviada eftir
Lordes Portillo sem báðar unnu til
verðlauna á hinni virtu Sundance Film
Festival, svo og leiknu kvikmyndirnar
Technolust og Conceiving Ada eftir
Lynn Hershman með Tildu Swinton í
aðalhlutverki. Þá vann Hrabba sem kvik-
myndatökumaður og klippari á Stöð 2
1995 og 1997.
„Ég fór líka sem kvikmyndatökumaður
til Rúanda og tók þátt í að gera fyrstu
leiknu kvikmyndina á tungumáli lands-
manna, en hún fjallaði um alnæmi og
öruggt kynlíf. Þetta var árið 1990 og ég
fann fljótlega á mér að eitthvað mikið var
að gerast þar. Tveimur dögum eftir að ég
kvaddi lokaðist landið og forleikurinn
hófst að borgarastyrjöldinni með fyrstu
fjöldamorðunum á Tútsum. Nokkru síðar
var forseti landsins myrtur og borgarastyrj-
öld braust út.
Það var mjög ógeðfelt að fylgjast með
leifum nýlendustefnu Belga í Rúanda.
þegar þeir hurfu úr landinu studdu þeir
Tútsa til valda og það sættu Hútúar sig illa
við. Af öllum þeim löndum sem ég hef
ferðast til á ferli mínum held ég að mér
hafi hvergi liðið beinlínis illa nema þar og
ég var þeirri stund fegnust þegar ég
komst burt.
Í Rúanda komumst við að því að al-
næmi var ekki stærsta heilbrigðisvanda-
málið. Vannæring, lömunarveiki og
malaría voru líka mjög útbreidd. Einnig
fylgdumst við með rannsóknarhópi sem
rannsakaði smit á milli mæðra og fóstra í
móðurkviði. Sérfræðingarnir komust að
mjög merkilegri niðurstöðu sem síðar
varð vel þekkt. Mörg barnanna sem
smituðust af mæðrum sínum og fæddust
HIV-jákvæð hættu síðan að vera jákvæð
og veiran hvarf úr líkama þeirra eftir
fæðinguna.
Frá San Francisco til Líbanon
Eftir að hafa unnið fyrir aðra og gert
fjölda stuttmynda á eigin vegum var löng-
unin til að gera eigin mynd í fullri lengd
orðin sterk. Corpus Camera leit dagsins
ljós árið 1999, en hana gerði Hrabba í
félagi við Sigurjón Baldur Hafsteinsson.
Myndin vakti töluverða athygli þótt ekki
væri fyrir annað en viðfangsefnið.
„Þegar Corpus Camera kom út var ég
þegar byrjuð að vinna að nýjustu mynd-
inni minni, Alive in Limbo,“ segir Hrabba.
Hún fjallar um líf flóttafólks í Sabra- og
Shatila-flóttamannabúðunum í Líbanon
og fyrstu tökur á henni hófust árið 1993.
Í þessum flóttamannabúðum frömdu
ísraelskir hermenn fjöldamorð árið 1982
undir forystu Ariels Sharon, núverandi
forsætisráðherra Ísraels, sem þá var hers-
höfðingi. Myndin er gerð í anda „Seven
Up“ myndanna eftir Michael Apted en við
fylgdumst með nokkrum krökkum vaxa
úr grasi og hvernig draumar þeirra og
vonir breytast á tíu ára tímabili. Það hafði
mikil áhrif á mig að koma til Líbanon, allt
í einu varð ég meðvituð um það hversu
miklum andarabískum áróðri er hellt yfir
okkur úr sterkustu fjölmiðlum heimsins,
CNN, ABC, CBS og SKY, og hann gjarnan
étinn upp af íslenskum fjölmiðlum svo
ekki sé talað um Hollywood sem nú hefur
útskrifað Rússa úr grýluhlutverkinu og
valið araba í staðinn.
En Líbanon kom mér skemmtilega á
óvart. Hinir ólíku hópar sem þar búa voru
hver öðrum gestrisnari og hvergi hef ég
mætt jafn mikilli kurteisi og gestrisni. Það
var sama hversu fátækt fólkið var, alltaf
var manni boðið inn og upp á allt það
sem til var matarkyns á heimilinu. Margt
þarna minnti mig líka á Ísland. Líbanir eru
mjög ættfróðir og spyrja gjarnan hver
annan hverra manna þeir séu. Auðvitað
mætti margt betur fara í Líbanon, en
miðað við þær hörmungar sem dunið
hafa yfir þá finnst mér ótrúlegt hvernig
lífið gengur sinn gang í stórborginni
Beirút. Frænka mín sagði eitthvað á þá
leið við mig um daginn að arabar væru
svo hefnigjarnir. Ég get svo sem ekki lagt
mat á það, en mér þætti fróðlegt að vita
hvernig Íslendingar brygðust við ef
nágrannaþjóð okkar réðist á Akureyri og
myrti ættingja okkar og vini. Við tækjum
því varla þegjandi og hljóðalaust.“
Hrabba framleiddi Alive in Limbo með
Eriku Marcus. þeim gekk erfiðlega að
fjármagna myndina í fyrstu, enda margir
áhrifamenn í Bandaríkjunum ekki hrifnir
af því að vekja athygli á málstað araba.
„Erika er hins vegar mjög dugleg og
útsjónarsöm við að afla fjár og að lokum
tókst okkur að fá fé frá stofnun sem heitir
Independent Television Service og á að sjá
til þess að efni sem á undir högg að sækja
35
stRákslega stelPan meÐ kVikmyndaaugaÐ