Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2004, Síða 42

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2004, Síða 42
Árið 1978 hannaði og saumaði San Francisco-búinn Gilbert Baker fána með röndum regnbogans. Litirnir áttu að tákna sam- félag samkynhneigðra. Á tuttugu árum hefur fáninn orðið þekktari sem tákn þeirra en bleiki þríhyrningurinn sem um langt skeið hefur verið notaður í réttindabaráttunni. Sögu bleika þríhyrningsins má rekja til Þýskalands nasismans þegar hommar voru látnir bera merki með bleikum þríhyrningi í fangabúðum nasista. Árið 1989 vakti regnbogafáninn þjóðarathygli í Bandaríkjunum þegar leigjandi vann mál gegn leigusala sem hafði bannað honum að flagga fánanum af svölum íbúðar sinn- ar í Vestur-Hollywood. Nú er regnbogafáninn viðurkenndur af Alþjóðlegu fánanefndinni og blaktir við hún á hátíðisdögum samkynhneigðra um allan heim. Litir hafa löngum verið mikilvægir í sögu lesbía og homma. Á Viktoríutímanum í Englandi var græni liturinn tengdur við samkynhneigð. Fjólublár varð tákn fyrir baráttu lesbía og homma seint á sjöunda áratugnum og vinsælt slagorð þeirra tíma var „Purple Power“. Bleikt er eins og áður var nefnt liturinn í bleika þríhyrningnum og hefur líka á ýmsum tímum átt samleið með samkynhneigðum. Gilbert Baker notaði upphaflega átta liti í fánann sinn: bleikan, rauðan, appelsínugulan, gulan, græn- an, bláan, indigo og fjólubláan. Baker sagði þessa liti tákna kynhneigð, líf, lækningu, sól, náttúru, list, jafnvægi og anda, og að þeir vísuðu í landið handan regnbogans í Galdrakarlinum í Oz. Þegar Baker hélt af stað með fyrsta fánann sem hann hafði saumað og litað í höndunum í fánaverksmiðju til þess að láta fjöldaframleiða hann, reyndist liturinn „hot pink“ ekki vera fáanlegur. Fyrsta útgáfa fánans var því með sjö röndum. Þegar Harvey Milk, hommi og borgarstjóri í San Francisco, var myrtur í nóvember 1978 skyldi nýi fáninn prýða göngu sem samtök samkynhneigðra stóðu fyrir eftir harmleikinn. Þá var indigo-liturinn fjarlægður svo að tala randanna yrði jöfn því að þrír litir fánans skyldu fylgja annarri hlið göngunnar og þrír litir hinni. Þar með voru rendur fánans orðnar sex, jafnmargar og þær eru í dag. R E G N B O G A F Á N I N N 42

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.