Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2004, Page 47
HIV-veiran, sem veldur alnæmi, fer ekki
í mann greinarálit, hún berst milli fólks á
öllum aldri, milli gagnkynhneigðra,
samkynhneigðra, tví kyn hneigðra, og
enginn er óhultur fyrir henni nema hann
stundi öruggt kynlíf. HIV-jákvæða er
ekki hægt að þekkja á útlitinu.
HIV-veiran ræðst á ónæmiskerfi líkam-
ans svo að eðlilegar varnir hans hrynja.
Engin varanleg lækning er ennþá til við
al næmi en á síðustu árum hafa komið
fram lyf sem gera veiruna óskaðlega
ónæmiskerfinu og auka lífslíkur manna til
muna. Slík lyfjagjöf reynist þó flestum
erfið.
fiú átt ekki að sjá ástæðu til að spyrja
þá sem þú hefur mök við hvort þeir séu
HIV-jákvæðir því að svörin veita enga
tryggingu gegn smiti. Ábyrgt kynlíf felst
í því að haga sér eins og allir kunni að
vera HIV-jákvæðir og nota smokkinn
undantekningarlaust.
Settu þér einfaldar og öruggar reglur í
kynlífi sem þú víkur aldrei frá. Mundu
að notkun áfengis og vímuefna veikir
dómgreindina og býður hættunni
heim.
Öruggur ástarleikur
er skemmtilegur leikur
Alnæmi er veruleiki
HEILBRIG‹ IS - OG TRYGGINGAMÁLARÁ‹UNEYTI ‹
STYRKIR fiESSA BIRT INGU