Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 10

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 10
10 Puttin’ on the Hits Noregur heldur áfram að styðja Ísland í efnahagskreppunni með því að senda okkur ráðagóðar konur til að benda á lausnir í þjóðar- vanda. Ekki bara Evu Joly, heldur hafa eðalfrúrnar Ruth & Vigdis heimsótt Ísland nokkrum sinnum á Hinsegin dögum til að styrkja sjálfsmynd þjóðarinnar. Þær hafa jafnvel látið svo um mælt að eiginlega þyki þeim sumarið dauflegt án Hinsegin daga í Reykjavík. En árin taka sinn toll með æðahnútum, brjósklosi og þvagsýrugigt, og í þetta sinn treysta Ruth & Vigdis sér ekki yfir hafið, en senda í staðinn systur sínar tvær, íslensku þjóðinni til upplyftingar í mótlæti efnahagskreppunnar. Þetta eru Creamgirls sem skemmta á opnunarhátíð Hinsegin daga með syrpu sem þær kalla „Puttin’ on the Hits“ og er ofurlítill þakklætisvottur til allra þeirra blökku- söngkvenna sem gáfu lífinu lit á liðinni öld. Creamgirls koma fram í Háskólabíói 6. ágúst þar sem þær kveikja sitt sérstaka líf í dívum fortíðarinnar. Einnig skemmta þær á Sódómu-Reykjavík laugardags- kvöldið 8. ágúst, kl. 21, ásamt Robotron frá Berlín. w i t H a s u i t c a s E f u l l o f c o s t u M E s Regular attendants of Reykjavík gay pride are no strangers to the young-at-heart, always-fabulous norwegian ladies Ruth & Vigdis. unfortunately, the ladies have reached a cer- tain, unmentionable age and the years have certainly taken their toll on them. that is why this year, they have decided to send over two of their sisters to lighten up the icelandic spirits in our dark days of economic depression. these are the creamgirls who will perform at the opening ceremony in Háskólabíó, 6 august, with a show they call “puttin’ on the Hits.” with a suitcase full of costumes, noticeably darker skin tones, extra large lips and a good portion of decidedly un-politically correct humor, this amazing show pays tribute to all black divas of the past. the creamgirls will also join the Robotron boys at club sódóma-Reykjavík, saturday, 8 august, at 9 p.m.

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.