Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 3

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 3
Hinsegin dagar í Reykjavík eru nú haldnir í ellefta sinn. Frá því að vera lítil eins dags hátíð sem fimmtán hundruð gestir sóttu, hefur hátíðin vaxið og dafnað með hverju ári og er núna litrík fjögurra daga hátíð sem 70–80 þúsund manns sækja. Hinsegin dagar hafa ótrúlega þýðingu fyrir samkynhneigða, tvíkynhneigða og trans-fólk á Íslandi. Hátíðin hefur eflt fólki kjark og verið því vettvangur til að standa stolt frammi fyrir samborg- urum sínum. Hinsegin dagar eru staðfesting þess að samstaðan færir okkur djörfung og virðingu þegar rétt er á málum haldið. En hátíðin hefur ekki eingöngu verið hinsegin fólki ávinningur í baráttu þess. Hinsegin dagar eru einn litríkasti þátturinn í menningarlífi Reykvíkinga og njóta meiri vinsælda en flestir aðrir viðburðir á Íslandi. Viðurkenningin sem þjóðin sýnir með þátttöku sinni, gleði og stuðningi er stærsta inneign Hinsegin daga. Stjórn og samstarfsnefnd Hinsegin daga hafa und- anfarið ár unnið að hátíðinni sem fram fer dagana 6.–9. ágúst, og boðið er upp á litríkan hóp listamanna og fjölbreytt úrval atburða. Horfurnar í efnahagsmálum þjóðarinnar eru ekki bjartar þetta sumar, en þeim mun meiri ástæða er til að leita sam- stöðu og gleði á þann einlæga hátt sem einkennir Hinsegin daga. Við bjóðum Íslendinga og erlenda gesti velkomna á elleftu Hinsegin daga í Reykjavík og óskum ykkur góðrar skemmtunar. For the eleventh time we celebrate Gay Pride in Reykjavík. Our cozy little pride, originally visited by some fifteen hundred onlookers, has blossomed and evolved into a colorful four day celebration that attracts well over 70 thousand guests from all over the world. Reykjavík Gay Pride is, in fact, one of the biggest small Prides in the world. Gay Pride is an unquestionably important event for lesbian, gay, bisexual and transgender people in Iceland. The festival promotes visibility and courage and provides us with a platform to manifest our pride before our fellow citizens. The celebrations do not only mark a suc- cessful stage in our struggle; Gay Pride is also one of the most vibrant and popular events in Reykjavík’s cultural calendar. By participating in the event in such large numbers, the Icelandic people have shown us valuable support, recognition and respect. This year, we have organised a memorable pro- gramme that runs from 6–9 August, combining a co- lorful array of international artists and varied events. Even though our nation’s economy has seen brighter days, the Reykjavík Gay Pride aims to promote joy, solidarity and support for one another during times of hardship. It only remains to welcome Icelandic and foreign guests to the eleventh Reykjavík Gay Pride. We hope you have a wonderful time! Welcome to Reykjavik Gay Pride

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.