Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 19
Þær hafa haldið saman í meira en aldarfjórðung og á þeim er ekkert fararsnið, öðru nær. Hljómsveitin Dúkkulísurnar
var stofnuð á Egilsstöðum árið 1982 og er því elsta starfandi hljómsveit landsins sem eingöngu er skipuð konum.
Fyrsta plata þeirra, Dúkkulísur, kom út árið 1984 og sú næsta, Í léttum leik, árið 1986. Eftir það tóku stúlkurnar
sér tíu ára hvíld en árið 1997 var hljómsveitin endurvakin og þar með var spilabakterían laus. Alla tíð síðan hefur
sveitin komið saman reglulega til að semja saman og spila og á 25 ára afmælinu sendu þær frá sér plötuna
Dúkkulísur 25, gömul lög og ný sem notið hafa mikilla vinsælda. Sveitina skipa þær Erla Sigríður, Erla Bryndís,
Gréta Jóna, Guðbjörg, Adda María, Hildur og Harpa. Okkur er það sérstakur heiður að bjóða þessa músíkölsku og
fjörugu kvennasveit velkomna á útihátíð Hinsegin daga við Arnarhól, laugardaginn 8. ágúst.
all dollEd up
they’ve been together for more than a quarter of a century, and they ain’t going nowhere soon.
dúkkulísurnar – the dress-up dolls – were formed in 1982 and are in fact the longest working all-
female group in the country. after a successful run in the mid-eighties, the girls took a decade long
break before reforming in 1997, and after that they haven’t been able to keep apart. they still perform
and write new material and have released a 25th anniversary collection of older and newer hits. we
welcome the lively dolls on stage at the open air concert at arnarhóll, saturday, 8 august.
d
ú
k
k
u
lí
s
u
rn
a
r