Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 42

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 42
H i n s e g i n d a g a r Þjónustumiðstöð Laugavegi 28 Opin alla virka daga frá 19. júlí til 8. ágúst kl. 12–18 viP-kort og aLLur nauðsynLegur hátíðarvarningur í boði The Pride CenTer Laugavegur 28 Open at business hOurs frOm 19 July Offers everything yOu need fOr pride Án uppreisnarinnar á Stonewall-kránni í New York föstudagskvöldið 27. júní 1969 væri sennilega talsvert öðruvísi um að litast í heimi homma og lesbía. Þetta var útfarardagur Judy Garland sem slegið hafði strengi í hjörtum margra þegar hún í Galdrakarlinum í Oz söng um landið handan regnbogans, land vonarinnar þar sem draumarnir rætast. Á Stonewall Inn, vinsælum bar í Greenwich Village, minntust gestirnir Judy þetta kvöld með því að spila söngvana hennar. Skyndilega birtist lögreglan á svæðinu eins og svo oft áður, komin til að fremja reglubundna rassíu, og átök brutust út sem stóðu alla þá helgi, Mannkynssagan tók nýja stefnu, og nú runnu upp tímar snarprar baráttu, stolts og sýni- leika, ekki aðeins í New York, heldur um allan hinn vestræna heim. Fjörutíu ára afmælis þessara sögulegu átaka var minnst með glæsilegri göngu í New York sunnudaginn 28. júní sl., og hefur hún sennilega aldrei verið fjölmennari en nú. Gangan hófst í Greenwich Village og hélt síðan upp alla 5. breiðgötu. Meðal foringja í göngunni í þetta sinn voru þau Cleve Jones og Anne Kronenberg sem komu á eftirminnilegan hátt við sögu Harveys Milk, en sú saga hefur verið mjög í sviðs- ljósinu eftir að kvikmyndin Milk sló í gegn fyrr á þessu ári. Við hlið þeirra gekk líka Dustin Lance Black sem samdi meistaralegt handrit kvikmyndarinnar. Sá fjórði í framvarðarsveitinni í ár var ríkisstjóri New York-fylkis, David Paterson, og hefur þessari elstu göngu hinsegin fólks í heiminum sjaldan verið sýndur annar eins sómi. Stonewall 40 ára Við Stonewall-krána 1969. 42

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.