Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2009, Qupperneq 3
Hinsegin dagar í Reykjavík eru nú haldnir í ellefta sinn. Frá því að
vera lítil eins dags hátíð sem fimmtán hundruð gestir sóttu, hefur
hátíðin vaxið og dafnað með hverju ári og er núna litrík fjögurra
daga hátíð sem 70–80 þúsund manns sækja.
Hinsegin dagar hafa ótrúlega þýðingu fyrir samkynhneigða,
tvíkynhneigða og trans-fólk á Íslandi. Hátíðin hefur eflt fólki kjark
og verið því vettvangur til að standa stolt frammi fyrir samborg-
urum sínum. Hinsegin dagar eru staðfesting þess að samstaðan
færir okkur djörfung og virðingu þegar rétt er á málum
haldið.
En hátíðin hefur ekki eingöngu verið hinsegin fólki
ávinningur í baráttu þess. Hinsegin dagar eru einn
litríkasti þátturinn í menningarlífi Reykvíkinga og njóta
meiri vinsælda en flestir aðrir viðburðir á Íslandi.
Viðurkenningin sem þjóðin sýnir með þátttöku sinni,
gleði og stuðningi er stærsta inneign Hinsegin daga.
Stjórn og samstarfsnefnd Hinsegin daga hafa und-
anfarið ár unnið að hátíðinni sem fram fer dagana
6.–9. ágúst, og boðið er upp á litríkan hóp listamanna og fjölbreytt
úrval atburða. Horfurnar í efnahagsmálum þjóðarinnar eru ekki
bjartar þetta sumar, en þeim mun meiri ástæða er til að leita sam-
stöðu og gleði á þann einlæga hátt sem einkennir Hinsegin daga.
Við bjóðum Íslendinga og erlenda gesti velkomna á elleftu
Hinsegin daga í Reykjavík og óskum ykkur góðrar skemmtunar.
For the eleventh time we celebrate Gay Pride in Reykjavík.
Our cozy little pride, originally visited by some fifteen hundred
onlookers, has blossomed and evolved into a colorful four day
celebration that attracts well over 70 thousand guests from all
over the world. Reykjavík Gay Pride is, in fact, one of the biggest
small Prides in the world.
Gay Pride is an unquestionably important event for lesbian,
gay, bisexual and transgender people in Iceland. The festival
promotes visibility and courage and provides us with
a platform to manifest our pride before our fellow
citizens. The celebrations do not only mark a suc-
cessful stage in our struggle; Gay Pride is also one
of the most vibrant and popular events in Reykjavík’s
cultural calendar. By participating in the event in
such large numbers, the Icelandic people have shown
us valuable support, recognition and respect.
This year, we have organised a memorable pro-
gramme that runs from 6–9 August, combining a co-
lorful array of international artists and varied events. Even though
our nation’s economy has seen brighter days, the Reykjavík Gay
Pride aims to promote joy, solidarity and support for one another
during times of hardship.
It only remains to welcome Icelandic and foreign guests to the
eleventh Reykjavík Gay Pride. We hope you have a wonderful time!
Welcome to Reykjavik Gay Pride