Bæjarins besta - 20.08.2003, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
maður vikunnar
Nafn: Þórir Sveinsson.
Fædd/-ur, hvar og hvenær: Í Reykjavík, 21.02.1953.
Atvinna: Fjármálastjóri Ísafjarðarbæjar.
Fjölskylda: Eiginkonan er Jónína Hjaltadóttir og eig-
um við þrjú börn sem heita Unnur Lilja, Auður Sjöfn
og Kjartan Trausti.
Helstu áhugamál: Sjóstangaveiði og ferðalög á sumr-
in og bridge á veturna.
Bifreið: Isuzu Trooper árgerð 2000.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Engan sérstakan.
Bíllinn verður þó að komast upp Urðarvegsbrekkuna
í snjónum á veturna.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill?
Kaupmaður eða bankastjóri.
Uppáhalds matur? Steikt rauðspretta og steinbítur.
Versti matur sem þú hefur smakkað? Hræringur
og plokkfiskur.
Uppáhalds drykkur? Eplasafi og bjór.
Uppáhalds tónlist? Þjóðlagarokk s.s. hljómsveitin
Runrig.
Uppáhalds íþróttamaður eða félag? KR í fótbolta.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Fréttir, náttúrulífsmyndir
og sögulegar heimildamyndir.
Uppáhalds vefsíðan? cabelas.com, jp.dk og knr.gl
Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Engin sérstök
kemur upp í hugann þessa stundina.
Fallegasti staður hérlendis? Lómagnúpur á Suður-
landi.
Fallegasti staður erlendis? Eyðifirðir suður Gæn-
lands á fornum Íslendingaslóðum.
Ertu hjátrúarfull(ur)? Nei.
Uppáhalds heimilistækið? PC-tölvan.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Fara
út á sjó að veiða.
Hvað fer mest í taugarnar á þér og hvers vegna?
Leti og áhugaleysi á skyldum/starfi sínu. Ég er þannig
persóna að ég vil að hlutirnir séu framkvæmdir og
ekki þurfi að marg tyggja þá.
Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Halla mér upp
í sófa með dagblað eða tímarit.
Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta ræt-
ast? Já, að sigla um á litlum báti á Karabíska hafinu
og eltast við sjaldgæfa fiska.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í?
Um daginn fór ég fram úr vegavinnubíl í Mjóafirði á
fullri ferð í rigningu og í ekkert alltof skemmtilegu
veðri. Skildi ég ekkert í því að vegavinnubíllinn elti
mig með blikkandi ljós. Stuttu seinna varð ég að
stoppa bílinn þar sem í ljós kom að sprungið var á
afturdekkinu. Strákarnir á vegavinnubílnum vildu ein-
ungis vara mig við og hjálpuðu mér svo að skipta um
dekkið. Hafið þökk fyrir strákar!
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir
þú breyta? Ekki breyta neinu sérstöku en loka bæjar-
kassanum og senda mannskapin í frí þann daginn.
Lífsmottó? Horfa fram á veginn með bjartsýni í huga.
Ætlaði að
verða kaup-
maður eða
bankastjóri
Sælkerar vikunnar
eru Ásta Kristinsdóttir og Friðbert
Kristjánsson að Hólum í Dýrafirði
Beikonfiskur í ofni
Að þessu sinni er fiskur í aðalhlutverki sem er góð til-
breyting frá steikum og grilli sumarsins. Reyndar skýtur
það svolítið skökku við að boða fiskát og vera kjötframleið-
andi en bæði eru mjög góð hráefni úr okkar hreina umhverfi
sem óhætt er að mæla með. Mér finnst eiga vel við að bera
fiskinn fram með soðnum kartöflum og hrásalati.
Friðbert var rokinn út að slá og því fékk hann ekki að vera
með á myndinni, í eigin persónu.
2 ýsuflök
1 bréf beikon
rasp
1 egg
salt
100 g smjörlíki
Ýsan er skorin í bita og velt upp úr eggi og raspi. Smyrjið
eldfast mót með smjörlíki og raðið bitunum í. Saltið yfir og
setjið beikonsneiðar ofan á. Setjið u.þ.b. 100 g af smjörlíki
með og bakið í ofni við 150° til 180° hita í u.þ.b. 35 mínútur.
Hrásalat
¼ kínakálshaus
1 rauð paprika
1 græn paprika
4 tómatar
1/2 agúrka
1 rauðlaukur
Saxið niður eins fínt og hverjum þykir henta og blandið
saman í góðri salatskál.
Rækjurétturinn hennar mömmu
200 g rækjur
1 bolli soðin hrísgrjón
1 dl rjómi
4 msk majónes
2 tsk karrí
1 dós sveppir
Smyrjið eldfast mót með smjörlíki. Setjið hrísgrjónin í
botninn og hellið sveppunum yfir ásamt safanum úr dósinni.
Dreifið rækjunum yfir. Blandið saman rjóma, majónesi og
karrí og hellið yfir. Bakið í ofni við 180° í 30 mínútur. Ber-
ið fram með ristuðu brauði.
Ég ætla að skora á mágkonu mína, Valdísi Báru Kristjáns-
dóttur á Þingeyri, hún kann ýmislegt gott.
Jónína Emilsdóttir hverfur frá Ísafirði eftir langt og farsælt skólastarf
Tekur við stöðu aðstoðar-
skólastjóra í Hamraskóla
Jónína Ólöf Emilsdóttir,
sem starfað hefur á mörgum
sviðum skólamála á Ísafirði í
tæpan aldarfjórðung, hefur
verið ráðin aðstoðarskólastjóri
Hamraskóla í Grafarvogi í
Reykjavík. Hún er því á förum
frá Ísafirði ásamt fjölskyldu
sinni. Jónína hóf kennslu við
Gagnfræðaskólann á Ísafirði
árið 1980 undir stjórn Kjartans
Sigurjónssonar og starfaði síð-
an við Grunnskóla Ísafjarðar
eftir að skólar á Ísafirði voru
sameinaðir árið 1985.
Hún var aðstoðarskólastjóri
Grunnskóla Ísafjarðar frá
1995 til 2000 og segja kunnug-
ir að hún hafi ekki átt hvað
minnstan þátt í hinum miklu
framförum sem urðu í starfi
skólans á þeim árum. Fyrir
þremur árum réðst Jónína til
Skóla- og fjölskylduskrifstofu
Ísafjarðarbæjar og hefur starf-
að þar síðan.
„Ég fer frá Ísafirði sæl og
sátt og þakklát fyrir öll þessi
góðu ár. Auðvitað fylgir því
söknuður að hverfa úr þessu
góða samfélagi en á hinn bóg-
inn er það öllum hollt að breyta
til“, sagði Jónína þegar blaðið
sló á þráðinn til hennar. Jafn-
framt bað hún fyrir bestu þakk-
ir til alls samstarfsfólksins á
Ísafirði á liðnum árum og ára-
tugum.
Á árunum 1986 til 1993 var
Jónína í hálfu starfi á Fræðslu-
skrifstofu Vestfjarða á móti
hálfu starfi við Grunnskóla
Ísafjarðar. Á þeim tíma stjórn-
aði hún meðal annars starfs-
leikninámi fyrir leiðbeinendur
og kennara á Vestfjörðum, en
það ýtti mjög undir að leið-
beinendur færu í fjarnám til
að afla sér kennsluréttinda.
Þess má einnig geta, að Jónína
var á sínum tíma fengin til að
koma á fót starfsnáms- og mat-
artæknibraut við Framhalds-
skóla Vestfjarða, eins og
Menntaskólinn á Ísafirði hét
um skeið.
Vegna brottflutningsins hef-
ur Jónína beðist lausnar úr um-
hverfisnefnd Ísafjarðarbæjar.
Á fundi bæjarráðs í síðustu
viku voru henni þökkuð vel
unnin störf fyrir Ísafjarðarbæ
í gegnum árin.
– hlynur@bb.isJónína Ólöf Emilsdóttir.
Húseignin að Mánagötu 1 á Ísafirði
Glerskálinn hverfur senn
Götumyndin við Hafnar-
strætið á Ísafirði breytist vænt-
anlega á haustdögum þegar
glerskálinn sem um árabil hef-
ur verið framan við hið gamla
og gagnmerka hús að Mána-
götu 1 verður rifinn. Nú standa
yfir umfangsmiklar breytingar
á húsinu en þar hafa verið rekn-
ir veitingastaðir með ýmsum
nöfnum á liðnum áratugum,
svo sem Mánakaffi, Hamra-
bær, Frábær, Gallery Pizza, Á
Eyrinni og síðast Kaffi Ísa-
fjörður.
Eins og fram hefur komið
keypti Guðni G. Jóhannesson
á Ísafirði húsið fyrr í sumar til
þess að breyta því í íbúðar-
húsnæði. Nú þegar er búið að
rífa viðbyggingu bak við húsið
en þar verður í staðinn byggt
stigahús. Glerskálinn verður
notaður sem smíðahús meðan
unnið er við breytingarnar á
húsinu en hverfur síðan.
Hús þetta var reist árið 1884
af versluninni Fischer & Falck
og var þá og lengi síðan kallað
Fischershús. Ísafjarðarkaup-
staður eignaðist það árið 1893
og árið eftir var það gert að
fyrsta sjúkrahúsi bæjarins.
Minna varð þó úr því hlutverki
en til stóð því að einungis mun
hafa verið lagður þar inn einn
utanbæjarmaður um skamman
tíma. Almenn sjúkrahús munu
líklega vandfundin annars
staðar í veröldinni þar sem
enginn sjúklingur hefur látist.
Hannes Hafstein bjó í Fisc-
hershúsi meðan hann var
sýslumaður á Ísafirði eða frá
1896 og þangað til hann varð
fyrsti íslenski ráðherrann árið
1904 og fluttist til Reykjavík-
ur. Síðar átti Jón Auðunn Jóns-
son alþingismaður á Ísafirði
og niðjar hans húsið í marga
áratugi.
– hlynur@bb.is
Dagar glerskálans við Fischershús eru senn taldir.
33.PM5 18.4.2017, 11:366