Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.08.2003, Qupperneq 12

Bæjarins besta - 20.08.2003, Qupperneq 12
1 2 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Sakamenn á Alþingi Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. SPURNINGIN Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Aðeins er tekið við einu svari frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Spurt var: Alls svöruðu 394. Já sögðu 261 eða 66% Nei sögðu 109 eða 28% Alveg sama sögðu 24 eða 6% bb.is Þar sem púlsinn slær... STAKKUR SKRIFAR Vilt þú að gerð verði útisundlaug í garðinum á Austurvelli á Ísafirði?Nú kynni einhver að halda að fjalla ætti um störf Alþingis fyrir meira entveimur öldum eða fyrr, þegar sakamenn voru færðir til Þingvalla til þess að vera dæmdir fyrir afbrot sín. Það er ekki ætlunin hér og nú. Í upphafi 21. aldar er það hlutverk dómstóla að dæma menn eftir lögum sem Alþingi setur. Þannig hefur það verið frá því Landsyfirréttur tók til starfa fyrir 202 árum, hinn 10. ágúst 1801. Þá fluttust dómstörf yfirréttarins og lögþinganna til hans og Al- þingi starfaði ekki fyrr 1845 á ný er það hafði verið endurreist sem ráðgjafarþing. Með flutningi dómstarfa Alþingis, sem háð var á Þingvöllum uns það var lagt af með lögum árið 1800, lagðist þinghald þar af, en það hafði staðið sleitulaust þar frá stofnun þess 930. Auðvitað gekk oft margt á undir þinghaldinu, en venj- an var sú að þáttaka sakamanna var bundin við að þeir væru færðir þangað til þess að hljóta dóma og refsingu, jafnvel líflát, karlar voru hálshöggnir og kon- um var drekkt. Oftar en ekki létu sakamenn lífið fyrir barneignir með skyldum og mægðum. Nú er öldin önnur. Það má með sanni segja. Alþingismaður varð að láta af þingsetu fyrir fjárdrátt og hefur hann setið í fangelsi og gafst ekki færi á því að bjóða sig fram á liðnu vori. Hann er söngelskur og hefur farið fyrir svokölluðum brekkusöng á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árum saman. Hann taldi fangvistina ekki eiga að koma í veg fyrir það nú. Svo varð ekki og sendi hann yfirvöldum tóninn með því að kalla dómstóla, ríkissaksóknara, lögreglu, héraðsdóm og Hæstarétt, að ógleymdri Fangelsismálastofnun, pakk sem vildi koma í veg fyr- ir að lífið væri skemmtilegt. Þessum fyrrverandi alþingismanni hefur sést yfir afar mikilvægt atriði, sem er það, að öll þessi yfirvöld starfa samkvæmt lög- um, sem Alþingi setur. Þeir sem skipa Alþingi eru einmitt kjörnir alþingismenn. Teljast þeir þá til pakksins sem vill koma í veg fyrir að lífið verði skemmtilegt? Skipti þá seta þingmannsins, sem nú situr í ríkisfangelsi á Kvíabryggju engu máli? Það skal tekið fram að hann sat bróðurpartinn af tveimur áratugum á Alþingi. Almenningur á greinilega erfitt með að gera upp afstöðu sína. Þjóðhátíðargestir í Vestmannaeyjum fögnuðu dómi alþingismannsins fyrr- verandi um löglega skipuð yfirvöld á Íslandi mjög. Látum það vera. Hann er fyrrverandi alþingismaður, sem situr inni til þess að gera upp skuld sína við samfélagið vegna lögbrota sinna. Og honum til afbötunar má þó segja að hann lét af þingmennsku þegar ljóst var að hann yrði ákærður og hlaut sinn dóm í framhaldinu. Það sem sérstaka athygli vekur nú um stundir er staða eins alþingismanna Frjálslynda flokksins, Gunnars Arnar Örlygssonar, sem nú afplánar dóm fyrir kvótasvindl og brot á bókhaldslögum. Hvaða skoðun sem menn kunna að hafa kvótakerfinu þá verður að telja að stjórnmálaflokka og Alþingi setji heldur niður við að hafa í sínum röðum menn sem telja ekkert athugavert við að brjóta lög og reyna með brotum á bókhaldslögum að fela afbrot sín og að því er best verður séð að svíkja tekjur undan skatti. Kannski eigum við okkar Mogens Glistrup á þingi. Guðjón Arnar Kristjánsson er góð- ur drengur, en eru félagar hans það allir? Innritun nemenda Innritun nemenda fer fram á skrifstofu skólans að Austurvegi 11, fimmtudaginn 21. ágúst til þriðjudagsins 26. ágúst kl. 12- 17 á virkum dögum. Innritun í útibúum fer fram í kennsluhús- næði þeirra: Á Flateyri, mánudaginn 25. ágúst kl. 16-18, á Suðureyri og Þingeyri þriðjudaginn 26. ágúst kl. 16-18. Innritun í Súðavík verður auglýst síðar. Við innritun þurfa nemendur að greiða staðfestingargjald og koma með stundatöfl- ur. Það á einnig við um nemendur, sem inn- rituðu sig í vor. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 456 3925. Allar kennararstöður eru mannaðar réttindafólki í Grunnskólanum í Súðavík. „Ég verð með sama liðið hérna og í fyrra. Þetta er það sem alla skólastjóra dreymir um“, segir Anna Lind Ragnarsdóttir skólastjóri. Í Grunnskólanum í Bolung- arvík átti í síðustu viku ein- ungis eftir að ráða í eina kenn- arastöðu en Anna G. Edvards- dóttir skólastjóri sagði það mál í farvatninu. „Ráðningar hafa gengið ágætlega. Hlutfall rétt- indakennara er á milli 70% og 80% og er heldur að síga upp á við. Leiðbeinendur við skól- ann eru smám saman að ljúka fjarnámi og þannig þokast hlutfallið nær 80%. Vonandi verður það 100% að lokum.“ Anna segist fá lítil viðbrögð réttindafólks við blaðaauglýs- ingum. „Það eru engir utanað- komandi að spyrja um kenn- arastöður nema þá ungt fólk með stúdentspróf. Þannig snýst starfið hjá okkur um að vinna með heimafólki sem er í réttindanámi. Eina leiðin til að fá réttindakennara er að hvetja heimamenn í fjarnám“, sagði Anna Lind Ragnarsdótt- ir, skólastjóri. – kristinn@bb.is Kennararáðningar í grunnskólum ganga með besta móti Fullmannað í Súðavík og því sem næst í Bolungarvík Punktamót Löggiltra endurskoðenda á Vestfjörðum Um 40 kylfingar mættu til leiks Punktamót Löggiltra end- urskoðenda á Vestfjörðum var haldið á Syðridalsvelli í Bolungarvík á sunnudag. Um 40 kylfingar léku 18 hol- ur og stóðu þau Benedikt Guðmundsson frá Golf- klúbbi Bolungarvíkur og Ása Grímsdóttir frá Golf- klúbbi Ísafjarðar uppi sem sigurvegarar. Í öðru og þriðja sæti í karlaflokki urðu þeir Egill Björgvinsson og Weera Khiansanthia, en báðir leika fyrir Golfklúbb Bolungarvík- ur. Í öðru og þriðja sæti í kvennaflokki urðu þær Mar- grét Ólafsdóttir (GÍ) og Valdís Hrólfsdóttir (GBO). Bjarni Pétursson (GBO) sló fæst högg á mótinu, alls 77. Þá fékk Rögnvaldur Magnús- son (GBO) verðlaun fyrir lengsta teighögg á 7. braut og þeir Bjarni Pétursson (GBO) og Gunnlaugur Jón- asson (GÍ) fengu nándar- verðlaun á mótinu. Þá fengu Tómas Rúnar Sölvason, Jens Holm og Benedikt Arnar Bjarnason verðlaun í skorkortahappdrætti. Lög- giltir endurskoðendur á Vestfjörðum gáfu alla vinn- inga á mótinu. – halfdan@bb.is Verðlaunahafar á mótinu. Mynd: Baldur Smári Einarsson. Fiðrildi frá fjarlægum slóðum sjást á Vestfjörðum Kóngsvarmi hefur sést í Bolungarvík og á Þingeyri Fiðrildið Kóngsvarmi Agr- ius convolvuli sem lifir aðal- lega í S-Evrópu, Afríku, Asíu og Ástralíu hefur sést á Vest- fjörðum að undanförnu. Nátt- úrustofu Vestfjarða hafa borist tilkynningar um fiðrildið bæði frá Bolungarvík og Þingeyri. Heimilisfólkið að Aðalstræti 53 á Þingeyri tók eftir þremur kóngsvörmum í garði sínum í síðustu viku. Þar sveimuðu þeir um í kringum blómstrandi skógartopp en tvo þeirra tókst að veiða með skordýraháf. Tveir kóngsvarmar sáust í garði við Bakkastíg 11 í Bol- ungarvík. Kóngasvarmar eru næturdýr og því líklegast að sjá þá í ljósaskiptum á kvöldin. Hjá Náttúrustofu Vestfjarða fengust þær upplýsingar að þó kónsvarmar búi á fjarlægum slóðum safnist þeir við og við í stóra hópa sem leggi þá upp í langferðir. Þeir hafa mikla flughæfileika og hafa all oft komið til Íslands. Vænghaf þeirra er 11 cm en vængirnir eru gráir með fíngerðu svörtu mynstri og afturbolurinn hefur rauðbleik og svört belti. – kristinn@bb.is Kóngsvarmi á Náttúrustofu Vestfjarða. 33.PM5 18.4.2017, 11:3612

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.