Bæjarins besta - 07.03.2001, Side 1
Miðvikudagur 7. mars 2001 • 10. tbl. • 18. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Stefnt er að formlegri stofn-
un Sparisjóðs Vestfirðinga
laugardaginn 28. apríl, að
sögn Eiríks Finns Greipsson-
ar, sparisjóðsstjóra í Spari-
sjóði Önundarfjarðar. Um
svipað leyti er ætlunin að opna
afgreiðslu í nýju húsnæði við
Aðalstræti 20 á Ísafirði. „Und-
irbúningur sameiningarinnar
gengur eðlilega eftir áður
gerðri samrunaáætlun og
reiknað er með því að sam-
runakeyrslur allra sparisjóð-
anna fjögurra fari fram laugar-
daginn 5. maí.“ Að hinum nýja
Sparisjóði Vestfirðinga standa
Eyrasparisjóður, Sparisjóður
Þingeyrarhrepps, Sparisjóður
Önundarfjarðar og Sparisjóð-
ur Súðavíkur. Í tengslum við
hina fyrirhuguðu sameiningu
yfirtók Eyrasparisjóður í nóv-
ember öll þrjú útibú Lands-
banka Íslands í Barðastrand-
arsýslum.
Afgreiðslustaðir Sparisjóðs
Vestfirðinga verða átta: Í
Króksfjarðarnesi, á Patreks-
firði, Tálknafirði, Bíldudal,
Þingeyri, Flateyri, Ísafirði og
í Súðavík. Undirbúningsstjórn
sjóðsins hefur rætt við núver-
andi sparisjóðsstjórana fjóra
um verksvið þeirra í nýja sjóð-
num. Ákveðið er að Angantýr
Valur Jónasson á Þingeyri
verði sparisjóðsstjóri en Hilm-
ar Jónsson á Patreksfirði verði
útibússtjóri á vestursvæði.
Ekki er enn frágengið hvaða
verksvið verða í höndum
Eiríks Finns Greipssonar á
Flateyri og Steins Kjartans-
sonar í Súðavík eða hvaða titla
þeir muni bera.
Samningar við verktaka
vegna standsetningar húsnæð-
isins að Aðalstræti 20 á Ísa-
firði eru á lokastigi og má
jafnvel vænta þess að vinna
þar hefjist eftir helgina. Þar
verða Íslensk verðbréf hf.
einnig með afgreiðslu en hús-
næðið sjálft verður í eigu eign-
arhaldsfélags sem að munu
standa Sparisjóður Vestfirð-
inga, Íslensk verðbréf og
Sparisjóður Bolungarvíkur.
Þegar Eiríkur Finnur er
spurður hvort einhverjar þreif-
ingar séu á ferðinni varðandi
aðild Sparisjóðs Bolungarvík-
ur að hinum nýja sparisjóði,
segir hann: „Það eru engir
möguleikar á slíkum viðræð-
um meðan þetta ferli stendur
yfir. Hvað síðar kann að gerast
er algerlega óskrifað blað,“
sagði Eiríkur Finnur.
Angantýr verður sparisjóðsstjóri
Framkvæmdir að hefjast við nýtt húsnæði Sparisjóðs Vestfirðinga á Ísafirði
Þjónandi
þingmaður
– sjá viðtal í miðopnu við sr. Karl V. Matthíasson, hinn nýja þingmann Vestfirðinga
10.PM5 19.4.2017, 09:241