Bæjarins besta - 07.03.2001, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001
Kaffi
og kökur,
listir
og leikir
Samtal við Sigríði Schram, verðandi forstöðumann Gamla apóteksins
Nú hefur gamla apóteks-
húsið við Hafnarstræti á
Ísafirði hýst kaffi- og menn-
ingarhús ungs fólks í næst-
um ár. Aldís Sigurðardóttir
hefur stýrt starfseminni og
virðast menn vera sammála
um að henni hafi gengið vel
að koma henni af stað og
fram á veginn. Það er kann-
ski vegna þess hversu mikil
vinna hefur farið í starfið að
hún hefur nú ákveðið að fá
sér aðra vinnu. Menn hafa
látið þau orð falla að það sé
ekkert skrítið að fólk endist
ekki lengi í þessu. Ekki er
heldur víst hversu lengi
nýráðinn forstöðumaður,
Sigríður Schram, verður í
starfinu.
„Ég lít fyrst og fremst á
þetta sem spennandi verk-
efni og er ekkert að hugsa
um hversu lengi ég verð. Ég
lít þó ekki á þetta sem eitt-
hvert tíu ára dæmi og ætla
mér ekki að gera þetta að
ævistarfi. Ég hef samt alltaf
haft mikinn áhuga á félags-
störfum og hef unnið mikið
með unglingum. Þess vegna
réð ég mig í þetta starf. Ég
vona bara að ég geti haldið
áfram því góða verki sem
Aldís hefur unnið. Vissulega
verða alltaf einhverjar
breytingar þegar nýr kall er
settur í brúna. Hverjar þær
verða er þó ekki orðið ljóst.“
Vildi vinna
úti á landi
Sigríður er fædd og
uppalin í Reykjavík. „Ég
gekk í Kennaraháskólann og
útskrifaðist þaðan fyrir um
sjö árum. Ég og vinkona
mín, sem er hjúkrunarfræð-
ingur, ákváðum að fara eitt-
hvað út á land til að vinna.
Ég hafði áður verið fyrir
austan, hún hafði unnið á
Vesturlandi, okkur fannst
Suðurland of nálægt Reykja-
vík og við vildum ekki fara
til Akureyrar. Þess vegna
varð Ísafjörður fyrir valinu.
Skömmu áður en við flutt-
um hingað bættist sú þriðja
við sem einnig er hjúkka.
Við komum til bæjarins
árið 1994. Ég fór að kenna í
Grunnskólanum á Ísafirði en
vinkonur mínar fóru á Fjórð-
ungssjúkrahúsið. Við vorum
reyndar aldrei kallaðar ann-
að en hjúkkurnar þrjár. Þær
entust í hálft annað ár, önnur
þeirra fór reyndar suður með
Ísfirðing í eftirdragi en ég
fór ekki aftur til Reykjavíkur
fyrr en að fullum tveimur
árum liðnum.“
Fékk heimþrá
í Reykjavík
„Ég fór að kenna við
Ölduselsskóla. Þar sinnti ég
almennri bekkjarkennslu,
kenndi myndmennt og vann
með unglingunum í félags-
starfi. Það var mjög gott að
kenna við skólann.
Af einhverjum ástæðum
fannst mér samt ómögulegt
að vera í Reykjavík, þó að
hún væri minn heimabær.
Mig langaði alltaf aftur til
Ísafjarðar. Ætli það hafi ekki
verið fólkið hér, umhverfið
og bærinn sjálfur sem dró
mig hingað aftur.“
Hefur unnið mikið
með Þjóðkirkjunni
Sigríður hefur unnið
nokkuð mikið með Þjóð-
kirkjunni að félagsstörfum
barna og unglinga. „Ég hef
unnið nokkuð í svokölluðu
tíu til tólf ára starfi í borg-
inni. Einnig var ég með
sumarbúðir á Núpi fyrir um
það bil einu og hálfu ári og
hef unnið talsvert í sumar-
búðum KFUK í Vindáshlíð í
Kjós. Ég er prestsdóttir.
Faðir minn heitir Friðrik
Schram og er prestur í Ís-
lensku Kristkirkjunni, sem
er lútersk fríkirkja og ég hef
líka unnið talsvert með
unglingum í minni kirkju.“
Skyld Bryndísi
Vegna nafnsins liggur
beint við að spyrja Sigríði
hvort hún sé skyld Bryndísi
Schram, eiginkonu Jóns
Baldvins Hannibalssonar,
sendiherra og fyrrverandi
skólameistara Menntaskól-
ans á Ísafirði. „Jú, jú. Við
erum skyldar í fjórða og
fimmta ættlið. Ég hef meira
að segja afrekað að hitta
hana einu sinni eða tvisvar.
Við tilheyrum sömu
Schram-ætt.“
Vona að ekki
ríki stjórnleysi
Nú hefur Sigríður verið
ráðin forstöðumaður Gamla
apóteksins. Hvernig kom
það til? „Hlynur Snorrason
sem er í stjórn Gamla apó-
teksins á barn í bekknum
mínum. Hann hringdi í mig
einn daginn og hélt ég fyrst
að hann ætlaði að spyrja út í
námsárangur barnsins en
svo var ekki. Hann sagði
mér að þessi staða væri að
losna og hvatti mig til að
sækja um.
Fram að því hafði ég svo
sem ekkert hugsað um að
sækja um þetta, en eftir
samtalið við Hlyn leist mér
strax vel á það. Eftir stutta
umhugsun og ráðfæringar
við vini sótti ég um og var
ráðin. Ég byrja þann 1. mars
í hlutastarfi. Þá mun ég
vinna með Aldísi og koma
mér inn í starfið. Eins og
kunnugt er hættir hún í byrj-
un maí. Ég þarf hins vegar
að klára skólann og get ekki
byrjað í fullu starfi fyrr en í
júní. Þó mun ég sinna for-
mennsku í apótekinu í maí
en það verður gert í hluta-
starfi. Við skulum bara vona
að ekki ríki algert stjórnleysi
á meðan.“
Mikilvægt
að dreifa valdinu
„Í grófum dráttum gengur
starfið út á að sjá um allan
rekstur menningarhússins
sem er bæði félagsstarf
krakkanna og kaffihúsið.
Tilgangur hússins er að
krakkarnir finni sér þarna
samastað til að sinna áhuga-
málum sínum og hitta hvert
annað. Þetta er þeirra hús og
markmiðið er að starfsemin
sé sem mest í þeirra hönd-
um. Ef forstöðumanninum
tekst að dreifa valdinu eins
og hægt er, þá hefur hann
unnið vinnuna sína vel.
Kaffihúsið er svo auðvitað
opið almenningi á daginn.
Ég vona að ég fái að komast
eitthvað í kaffi- og kökuaf-
greiðslu. Síðan taka krakkar-
nir við á kvöldin við að selja
kaffi.“
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
Hafnarstræti 1 – Ísafirði
Símar: 456 3940 & 456 3244
Fax: 456 4547 – Netfang: tryggvi@snerpa.is
F
as
te
ig
n
vi
k
un
na
r
Fasteignaviðskipti
F
as
te
ig
n
vi
k
un
na
r
Einbýlishús / raðhús
4-6 herb. íbúðir
2ja herb. íbúðir
Suðureyri
Fjarðarstræti 29: 78 m²
séríbúð í tvíbýlishúsi ásamt
nýlegum geymsluskúr.
Verð 3 m.kr.
Grundargata 4: 55,3 m²
íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi
ásamt sér geymslu.
Verð 3,6 m.kr.
Pólgata 6: 70 m² íbúð á 1.
hæð til hægri í fjölbýlishúsi.
Áhv. ca. 2,4 m.kr.
Verð 3,7 m.kr.
Silfurgata 11: 56,2 m² (75m²
gólfflötur, mikið rými í risi)
Björt og glæsileg íbúð með
frábæru útsýni. Ótrúlega
hagstæð í rekstri. Áhv. ca.
3,4 m.kr. Verð 5,8 m.kr.
Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á
3ju hæð fyrir miðju í fjölb.-
húsi ásamt sér geymslu. Áhv.
ca. 2 m.kr. Verð 5,3 m.kr.
Stórholt 13: 79,2 m² íbúð á
3ju hæð til hægri í fjölbýl-
ishúsi ásamt sér geymslu.
Skoða öll tilboð. Möguleiki
að taka bíl uppí. Áhv. ca. 3
m.kr. Verð 5,5 m.kr.
Túngata 21: 84,9 m² íbúð á
jarðhæð í þríbýlishúsi ásamt
bílskúr. Áhv. ca. 3,7 m.kr.
Verð 5,9 m.kr.
Grundargata 6: 49,2 m²
íbúð á 2. hæð til hægri í
fjölbýlishúsi. Tilboð óskast
Sundstræti 24: 69 m²
skemmtileg og rúmgóð íbúð
á jarðhæð í fjórbýlishúsi
Verð 4,5 m.kr.
Túngata 3: 80,7 m² íbúð á
2. hæð ásamt rislofti.
Verð 4,5 m.kr.
Túngata 12: 62 m² íbúð í
kjallara í þríbýlishúsi.
Verð 3,9 m.kr.
Túngata 18: 53,4 m² íbúð á
jarðhæð í nýlega uppgerðu
fjölbýlishúsi ásamt sér
geymslu. Verð 3,8 m.kr
Túngata 18: 53,4 m² íbúð á
1. hæð í nýlega uppgerðu
fjölbýlishúsi ásamt sér
geymslu. Verð 4,9 m.kr.
Hrannargata 2: 164,1 m² verslunarhúsnæði á 1.
hæð ásamt kjallara. Verslunarinnréttingar geta fylgt
með. Verð 6,3 m.kr.
Engjavegur 6: 223 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum.
Getur selst í tvennu lagi, 5
herb. íbúð á e.h. og 4ra
herb. íbúð á n.h.
Tilboð óskast
Hjallavegur 19: 242 m²
einb.hús á 2 hæðum ásamt
innbyggðum bílskúr. Sér
íbúð á n.h. Ýmis skipti
möguleg. Áhv. ca. 5 m.kr.
Verð 10,5 m.kr.
Hlíðarvegur 37: 185,9 m²
raðhús á þremur hæðum
ásamt bílskúr og einstakl.-
íbúð. Sk. á minni eign koma
til greina. Verð 10,2 m.kr.
Hnífsdalsvegur 10: 120,9
m² einbýlishús á tveimur
hæðum ásamt grónum garði
og eignarlóð Tilboð óskast
Miðtún 45: 188,9 m² raðhús
á tveimur hæðum ásamt 31,3
m² bílskúr. Tilboð óskast
Seljaland 16: 200,1 m²
einbýlishús á tveimur hæð-
um ásamt bílskúr. Sér íbúð á
n.h. Verð 11,5 m.kr.
Smiðjugata 1 og 1a: glæsi-
legt 145,2m² uppgert ein-
býlishús á tveimur hæðum
og kjallara ásamt 33,6 m²
viðbyggingu og glæsilegum
garði Tilboð óskast
Stakkanes 4: 144 m² raðhús
á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Skipti möguleg á
íbúð á Eyrinni. Áhv. ca. 3,5
m.kr. Verð 9,5 m.kr.
Stakkanes 16: 226,2 m²
raðhús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr. Tilboð óskast
Tangagata 21: 85,4 m² lítið
einbýlishús, hæð, ris og
kjallari. Skoðum öll tilboð
en verð er aðeins 4,8 m.kr.
Urðarvegur 64: 214 m²
raðhús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr. Tilboð óskast
Fjarðarstræti 14: 133,4 m²
4ra herbergja íbúð á e.h. í
tvíbýlishúsi ásamt bílskúr,
háalofti og hluta kjallara.
Tilboð óskast
Fjarðarstræti 14: 163 m²
falleg 4ra herbergja íbúð á
n.h. í tvíbýlishúsi ásamt
geymsluskúr og hluta kjall-
ara. Áhv. ca. 1,5 m.kr.
Verð 6,2 m.kr.
Pólgata 5a: 127,7 m² 5
herbergja íbúð á efri hæð í
þríbýlishúsi ásamt helmingi
kjallara. Íbúðin er skemmti-
leg og vel staðsett.
Verð aðeins 4,5 m.kr.
Smiðjugata 7: 96,1 m² 4ra
herbergja íbúð á efri hæð í
tvíbýlishúsi. Tilboð óskast
Sólgata 5: 102 m² 6 herb.
íbúð á tveimur hæðum í
norðurenda í tvíb.húsi. Áhv.
ca. 3,5 m.kr. Verð 5 m.kr
Stórholt 13: 123 m² 4ra
herbergja íbúð á 3ju hæð í
fjölbýlishúsi ásamt bílskúr.
Íbúðin er mikið uppgerð.
Verð 7,8 m.kr.
Sundstræti 22: 196,8 m² ca.
140m² 4-5 herb.íbúð á mið-
hæð í tvíb.húsi ásamt 28 m²
3ja herb. íbúðir
bílskúr og 3ja herb. sér íbúð
í kjallara ca. 60 m². Getur
selst saman eða í sitt hvoru
lagi. Áhv. ca. 5 m.kr. Verð
á hæð og bílskúr 10,5 m.kr.
og á kjallaraíbúð 3,7 m.kr.
Eyrargata 6: nýendurbyggt,
glæsilegt einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt kjall-
ara. Verð 9,8 m.kr.
Fasteignir í þessari
auglýsingu eru
aðeins sýnishorn af
söluskránni.
Allar frekari
upplýsingar eru
veittar á
skrifstofunni að
Hafnarstræti 1
10.PM5 19.4.2017, 09:244