Bæjarins besta - 07.03.2001, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001 5
smáar
Ekkert trúboð í
Gamla apótekinu
Þó Sigríður hafi unnið
mikið í kristilegu starfi, þá
þurfa unglingar ekki að
óttast skipulagt trúboð af
hennar hálfu. „Við við-
höldum að sjálfsögðu kristi-
legum gildum eins og gert er
í lífinu sjálfu. Þar er ég að
tala um samskipti og fram-
komu almennt. Ég ætla samt
ekki að koma með neinar
kristilegar áherslubreytingar
inn í Gamla apótekið.
Ég held að þetta verði
mjög skemmtilegt. Ég hef
gaman af því að vinna með
unglingum, en þar að auki
hef ég mikinn áhuga á kaffi-
húsum og hvers kyns matar-
og kaffistússi. Þess vegna
held ég að starfið muni
henta mér ágætlega.“
Vinnueftirlit ríkisins á Vestfjörðum í nýtt húsnæði í Þróunarsetri Vestfjarða
Tekur þátt í reynsluverkefni við gerð
væntanlegrar Slysaskrár Íslands
– starfsmanni bætt við í vor og verkefnin vestra aukin
Vinnueftirlit ríkisins á Vest-
fjörðum hefur flutt skrifstofu
sína úr Stjórnsýsluhúsinu á
Ísafirði í Þróunarsetur Vest-
fjarða við Árnagötu á Ísafirði.
Starfsemin mun á næstunni
aukast í samræmi við þá
stefnu stofnunarinnar að flytja
verkefni út á land. Prufu-
keyrsla á samræmdu slysa-
skráningarkerfi hér á landi
(Slysaskrá Íslands) er að hefj-
ast og tekur Vinnueftirlitið á
Vestfjörðum þátt í þeirri
vinnu. Nú eru tveir starfsmenn
hjá stofnuninni á Ísafirði en
einn bætist við í fullu starfi í
vor.
Jafnframt flutningnum hef-
ur afgreiðslutími á skrifstof-
unni verið lengdur og nú er
opið frá kl. 8 til 14 alla virka
daga. Símanúmerið er nú 450
3080 og bréfasími 450 3085.
Júlíus Már Þórarinsson hef-
ur verið forstöðumaður Vinnu-
eftirlits ríkisins á Vestfjörðum
frá miðju sumri 1995. Auk
hans starfar Elísabet Pálsdóttir
fulltrúi á skrifstofunni á Ísa-
firði og hefur verið í hálfu
starfi en starfshlutfallið eykst
við tilkomu hinnar nýju sam-
ræmdu slysaskráningar fyrir
landið allt. Þátttakendur í
þriggja mánaða prufukeyrslu
kerfisins eru Landspítalinn -
háskólasjúkrahús, lögreglan,
Vinnueftirlit ríkisins og
Tryggingamiðstöðin hf. Hjá
Vinnueftirliti ríkisins er skrif-
stofan á Ísafirði sú fyrsta sem
tekur þátt í þessu og annast
Elísabet það verk. Ef prufu-
tíminn leiðir í ljós að skrán-
ingarkerfið reynist eins og ætl-
ast er til munu fjölmargir fleiri
aðilar koma þar inn.
Að sögn Júlíusar og Elísa-
betar breytir hið nýja húsnæði
miklu fyrir starfsemi og að-
stöðu stofnunarinnar á Ísa-
firði. Áður var skrifstofan í
Stjórnsýsluhúsinu í þröngu
sambýli við Siglingastofnun.
Nú er húsnæði mun rýmra og
auk þess er þar fundasalur þar
sem aðstaða er til námskeiða-
halds. Námskeið eru veiga-
mikill þáttur í starfinu, svo
sem fyrir öryggistrúnaðar-
menn, stjórnendur vinnuvéla
og ýmsa aðra.
Starf Vinnueftirlitsins er
mjög fjölþætt. „Það verður
meira en nóg fyrir okkur að
gera þó að nýr maður í fullu
starfi bætist við í vor“, segir
Júlíus Már. „Þó að menn hafi
öðru hverju verið sendir hing-
að að sunnan, þá höfum við
með engu móti komist yfir
allt það sem gera þarf.“ Júlíus
nefnir, að á hverju ári þurfi
Vinnueftirlitið á Vestfjörðum
meðal annars að skoða um
400 fyrirtæki, um 40 gufu-
katla, um 30 vöru- og fólks-
lyftur og annað eins af bíla-
lyftum, auk um 30 bændabýla.
Stofnunin gefur út réttinda-
skírteini fyrir stjórnendur
vinnuvéla, bifreiðastjóra sem
flytja hættulegan farm og þá
sem meðhöndla sprengiefni.
Júlíus segir að kjörorðið sé
að veita góða þjónustu. „Við
lítum á okkur fyrst og fremst
sem þjónustustofnun við fyrir-
tæki og starfsmenn en viljum
sem minnst vera í lögreglu-
hlutverki, þrátt fyrir óskoraða
lögsögu stofnunarinnar í þeim
efnum á ákveðnum sviðum.
Markmið Vinnueftirlitsins er
fækkun slysa og betri og
heilsusamlegri vinnustaðir.
Elísabet Pálsdóttir og Júlíus Már Þórarinsson í nýju húsakynnunum.
Dómur Héraðsdóms Vestfjarða vegna áleitni á barn
Dæmdur í fjögurra mán-
aða skilorðsbundið fangelsi
Liðlega hálffimmtugur
maður í Ísafjarðarbæ var í
síðustu viku dæmdur í Hér-
aðsdómi Vestfjarða í fjög-
urra mánaða fangelsi, skil-
orðsbundið í þrjú ár, fyrir
kynferðislega áleitni við
stúlkubarn.
Einnig var hann dæmdur
til að greiða stúlkunni kr.
200.000 í miskabætur. Auk
þess greiði ákærði allan
kostnað sakarinnar, þar með
talin málsvarnarlaun skipaðs
verjanda síns og þóknun við
rannsókn málsins, samtals
250.000 krónur, og þóknun
skipaðs réttargæslumanns
brotaþola, kr. 90.000. Dóm-
urinn taldi fært, þrátt fyrir eðli
brotsins, með hliðsjón af at-
vikum málsins, sakaferli
ákærða og því að hann hefur
leitað aðstoðar sérfræðings,
að skilorðsbinda refsinguna.
Sannað þótti að ákærði
hefði vorið 1999 leitað á stúlk-
una með óviðurkvæmilegum
hætti að nóttu til á heimili
hennar. Stúlkan var þá kring-
um átta ára aldur. Hins vegar
taldi dómurinn, að gegn ein-
dreginni neitun ákærða hefðu
ekki verið færðar nægilegar
sönnur á að hann hefði framið
tvö önnur svipuð brot gegn
stúlkunni á sínu heimili
nokkru fyrr, eins og einnig
var ákært fyrir. Var ákærði
því ekki sakfelldur þá hátt-
semi sem honum var gefin
að sök í þeim lið ákærunnar.
Dómurinn var kveðinn
upp af Erlingi Sigtryggssyni
dómstjóra og Ólöfu Péturs-
dóttur dómstjóra og Valtý
Sigurðssyni héraðsdómara
sem meðdómendum.
Lið Hótels Ísafjarðar
sigraði í Spurningakeppni
fyrirtækjanna í Útvarpi
Apótek á Ísafirði sem lauk
í síðustu viku. Hótelfólk
bar þá sigurorð af liði
meirihlutans í bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar mjög
tvísýnni viðureign.
Sigurliðið fékk að launum
fagran stein frá Dýrfinnu
Torfadóttur – Viskusteininn.
Lið Hótels Ísafjarðar
skipuðu Sigríður Ó. Krist-
jánsdóttir, Ólafur Örn
Ólafsson og Elías Oddsson.
Spurningakeppni fyrirtækjanna
Hótel Ísafjörður
bar sigur úr býtum
Hótel Ísafjörður.
Óska eftir skerm og svuntu
á Brio barnavagn. Aðallit-
ur er blár. Upplýsingar í
síma 456 3553.
Til leigu er húseignin að
Hnífsdalsvegi 10. Laus nú
þegar. Upplýsingar í síma
456 3541,
Til sölu er ódýrt skrifborð
með þremur skúffum og
yfirhillu. Upplýsingar í
síma 456 7561.
Til sölu er Toyota Corolla,
4x4, árg. 1998, ekin 41
þús. km. Uppl. í símum
456 3954 eða 450 3215.
Markaðsdagur verður
haldinn í Grunnskólanum
á Ísafirði laugardaginn 10.
mars frá kl. 13-16. Þeir
sem vilja koma vörum sín-
um á framfæri eru beðnir
að hafa samband við
Gunnu Siggu í símum 456
3571 eða 690 3571.
Árgangur ´65! Við erum
20 ára gagnfræðingar í vor.
Hittumst á Pizza´67,
fimmtudaginn 8. mars kl.
20:30 og ræðum málin.
Til sölu er Toyota Tercel,
4x4, árg. 1987, ekinn 138
þús. km. Á sama stað er til
sölu W-Max snjósleði árg.
1995, ekinn 2.000 km.
Hjálmur, ábreiða og hnakk-
töskur og GPS-315 fylgja.
Á sama stað er einnig til
sölu 14 vetra, fallegur og
margverðlaunaður klár-
hestur með tölti. Uppl. í
síma 895 4115.
Óska eftir að kaupa notað
píanó. Upplýsingar gefur
Margrét í síma 456 5082.
Til sölu eða leigu er íbúð
að Engjavegi 17. Upplýs-
ingar í símum 848 3522
eða 867 0397.
Til leigu er 70m² íbúð.
Laus 1. apríl. Uppl. í símum
456 4212 eða 893 1769.
Til sölu er MMC Lancer,
station árg. 1997, ekinn
65 þús. km. Bílalán getur
fylgt. Uppl. í símum 456
3979 eða 863 3972.
Slysavarnakonur! Hatta-
kvöld verður í Sigurðar-
búð laugardaginn 17. mars
kl. 20:00. Matur og
skemmtun. Uppl. í símum
456 4145 og 456 4390.
Til sölu er Suzuki Baleno,
4x4, upphækkaður, árg.
1998. Upplýsingar í síma
456 3478 eftir kl. 18.
Til leigu er 3ja herb. íbúð
í Stórholti á Ísafirði. Laus í
lok þessa mánaðar. Upp-
lýsingar í símum 861 6778
og 898 3834.
Til sölu er húsið að Engja-
vegi 24 á Ísafirði. Húsið er
4-5 herb. og 121 m². Góður
sólpallur og gróinn garður.
Besti staður í bænum.
Áhvílandi er 4,5 milljóna
kr. húsbréfalán. Getur
losnað strax. Uppl. í símum
456 4737 eða 868 6626
(Silla) og 861 8996 (Guð-
jón).
Til sölu er notaleg 2ja
herb. íbúð í hjarta bæjarins
á þessu líka fína verði. Mjög
hagstæð lán. Laus strax.
Upplýsingar gefur Her-
mann í síma 456 3179 og
456 4594.
Til sölu er Subaru 1800
station árg. 1986 til niður-
rifs. Fær ekki skoðun oftar
vegna ryðs í undirvagni.
Góður bíll að öðru leyti og
mjög góð dekk. Uppl. í síma
862 1874.
Naglafræðingur verður á
Ísafirði dagana 9.-12. mars
nk. Pantanir í síma 866
5497.
Ertu orðin(n)
áskrifandi?
Síminn er
456 4560
10.PM5 19.4.2017, 09:245