Bæjarins besta - 07.03.2001, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001 3
KFÍ-kempurnar tvöfaldir meistarar áhugamanna
Unnu Vestfjarðameist-
aratitilinn á reynslunni
KFÍ-kempurnar (gamlir
naglar) urðu Vestfjarða-
meistarar í Meiradeildinni,
Vestfjarðadeild áhuga-
manna í körfubolta. Úrslita-
leikurinn var háður á Torf-
nesi á Ísafirði á föstudags-
kvöld þar sem KFÍ-kemp-
urnar sigruðu Englana, en
lið þeirra er skipað Súðvík-
ingum og Ísfirðingum. Leik-
urinn var jafn og tvísýnn en
segja má að KFÍ-kempurnar
hafi sigrað á reynslunni. Lið
þeirra var mun eldra en lið
Englanna og ljóst var að þeir
gömlu kunnu sitthvað af forn-
um klækjum.
Í áhugamannadeildinni á
Vestfjörðum í vetur kepptu
fimm lið. KFÍ-kempurnar
urðu deildameistarar en leik-
urinn á föstudag var úrslita-
leikur tveggja efstu liðanna
um Vestfjarðameistaratitilinn.
Þannig unnu þeir gömlu því
tvo titla að þessu sinni. Þar eð
fá lið tóku þátt í keppninni í
vetur var bikarinn hafður þeim
mun stærri. Á myndinni er
elsti maðurinn hjá KFÍ-kemp-
unum, Óli Reynir Ingimars-
son, sem stundum er nefndur
afi körfuboltans á Ísafirði.
Hann mun hafa spilað fremur
lítið á seinni árum. Óli Reynir Ingimarsson með bikarinn.
byggðarlögum að koma dísil-
vélum í gang. Bæði var mikil
ófærð og auk þess sunnudags-
morgunn þegar starfsmenn
eru einungis á bakvakt heima
hjá sér.
Um kl 10.40 var aftur komið
rafmagn með eðlilegum hætti
og keyrslu dísilvéla hætt. Ekki
er vitað um ástæður útsláttar-
ins en ekki varð neitt tjón á
línum vegna snjóflóða.
Rafmagnsleysi um alla Vestfirði á sunnudagsmorgun
Útsláttur á Vestur-
línu Landsvirkjunar
Rafmagnstruflanir urðu á
Vestfjörðum í á sunnudags-
morgun vegna útsláttar á Vest-
urlínu Landsvirkjunar. Raf-
magnið fór um kl. 8.50 og tók
misjafnlega langan tíma eftir
Salur Grunnskólans á Ísafirði
Handverksmarkaður á laugardag
Handverkskonur úr ýms-
um byggðum á norðanverð-
um Vestfjörðum (og hugs-
anlega einhverjir karlar
líka) verða með markað í
sal Grunnskólans á Ísafirði
á laugardaginn, 10. mars,
milli kl. 13 og 16. Þar verður
kynning á því sem hand-
verksfólkið á svæðinu er að
fást við og jafnframt verða
gripirnir til sölu.
Að sögn Guðrúnar Matt-
híasdóttur, einnar þeirra
sem að markaðinum standa,
hafa enn engir karlar skráð
sig til þátttöku en hún von-
ast til að þeir geri það. Í það
minnsta gætu þeir verið þar
með harðfisk og hákarl á boð-
stólum, þótt vafi leiki á því
hvort vörur af því tagi flokkist
undir handverk, í venjulegum
skilningi þess orðs. Hægt er
að hafa samband við Guð-
rúnu í síma 456 3571 eða
690 3571 til þess að skrá
sig og fá aðstöðu fyrir varn-
ing á markaðnum.
Aðalfundur
Aðalfundur Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða
verður haldinn miðvikudaginn 14. mars kl.
15:00 í sal Menntaskólans á Ísafirði.
Kl. 16:15, að loknum aðalfundi verður
opin dagskrá og eru allir sem hafa áhuga á
fræðslumálum og símenntun hjartanlega
velkomnir.
Dr. Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Há-
skólans í Reykjavík, fjallar um hugmyndir að
baki fjarnáms á háskólastigi, áætlanir í Há-
skólanum í Reykjavík um fjarnám og verk-
efnið ,,Auður í krafti kvenna“.
Dagný Sveinbjörnsdóttir og Guðrún Anna
Finnbogadóttir kynna danska þarfagreining-
arverkefnið MUS (markviss uppbygging
starfsmanna) sem auðveldar fyrirtækjum
og stofnunum að meta mannauð sinn og
þörf fyrir símenntun.
Notið einstakt tækifæri til að hlýða á
áhugaverð efni!
Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
LEIKSKÓLINN BAKKASKJÓL
Okkur bráðvantar matráð í 50% stöðu.
Vinnutími frá kl. 10-14.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í
síma 456 3565.
Nýr bátur, Guðbjörg ÍS 46,
var sjósettur hjá Knerri á
Akranesi á laugardaginn. Bát-
urinn er smíðaður fyrir feðg-
ana Ásgeir Guðbjartsson og
Guðbjart Ásgeirsson á Ísa-
firði. Nýja Guðbjörgin er 5,9
tonn og því öllu minni en hinar
fyrri Guðbjargir sem aflaklær-
nar frægu hafa áður haldið til
veiða frá Ísafirði. Hún er hins
vegar gul eins og þær. Þessi
nýja Gugga verður sú áttunda
í eigu Ásgeirs Guðbjartssonar
á 45 árum. Báturinn verður
gerður út á línu.
Í haust keyptu þeir feðgarnir
smábátinn Sigga ÍS og hefur
Guðbjartur róið á honum við
annan mann og gert það gott.
Segja má að mokveiði hafi
verið af þorski hjá trillunum
hér vestra að undanförnu.
Þessa dagana er verið að
vinna að síðasta frágangi í
nýja bátnum, setja niður tæki
og mæla stöðugleikann. Að
því loknu kemur Guðbjartur
með bátinn heim til Ísafjarðar,
að öllum líkindum fyrir helgi.
Sigga verður síðan lagt.
Ný Guðbjörg ÍS sjósett hjá skipasmíðastöðinni Knerri á Akranesi
Væntanleg heim til Ísa-
fjarðar á næstu dögum
10.PM5 19.4.2017, 09:243