Bæjarins besta - 22.08.2001, Page 1
Syngur hlutverk
Næturdrottningar-
innar í Töfraflautunni
– sjá viðtal í miðopnu við Sigrúnu Pálmadóttur
óperusöngkonu úr Bolungarvík sem ráðin hefur
verið að Óperuhúsinu í Bonn í Þýskalandi
Miðvikudagur 22. ágúst 2001 • 34. tbl. • 18. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Hraðfrystihúsið–Gunnvör hf.
Tapaði 178 milljónum
fyrstu sex mánuðina
Hraðfrystihúsið – Gunnvör
hf var rekið með 178 milljóna
króna tapi á fyrstu sex mán-
uðum ársins 2001 samanborið
við 41 milljóna króna hagnað
árið áður. Félagið segir skýr-
inguna á þessum viðsnúningi
þá að gengistap á fyrstu sex
mánuðum ársins 2001 var 529
milljónir króna samanborið
við 64 milljónir króna gengis-
tap árið áður. Gert er ráð fyrir
því að afkoma félagsins á síð-
ari hluta ársins verði betri en
á þeim fyrri að því gefnu að
gengi íslensku krónunnar
verði stöðugt.
Félagið segir í tilkynningu
að bolfiskveiðar og vinnsla
hafi gengið vel á tímabilinu
sem og útgerð frystiskips fé-
lagsins þrátt fyrir frátafir frá
veiðum vegna sex vikna verk-
falls sjómanna í apríl og maí.
Útgerð rækjuveiðskipa fé-
lagsins var rekin með nokkr-
um halla á tímabilinu. Þá segir
félagið að rekstur félagsins
fyrir afskriftir og fjármagnslið
hafi gengið betur en áætlanir
gerðu ráð fyrir og sé megin
skýring þess að við veikingu
íslensku krónunnar hafi tekjur
félagsins aukist.
Hagnaður fyrir afskriftir var
419 milljónir eða 30,8% af
rekstrartekjum. Rekstrartekj-
ur félagsins voru 1.356 millj-
ónir krónur samanborið við
1.353 milljónir króna árið
áður. Rekstrargjöld námu 937
milljónum króna en voru
1.039 milljónir króna árið áð-
ur sem er lækkun um 10%.
Rekstrarhagnaður fyrir af-
skriftir var 419 milljónir króna
eða 30,8% af rekstrartekjum
samanborið við 314 milljónir
króna árið áður eða 23,2% af
rekstrartekjum.
Veltufé frá rekstri var 257
milljónir króna á tímabilinu
sem er 19% af rekstrartekjum,
samanborið við 200 milljónir
króna árið áður sem er 15% af
rekstrartekjum. Heildareignir
félagsins voru 5.388 milljónir
króna í lok júní og eigið fé var
838 milljónir króna. Eiginfjár-
hlutfall hefur lækkað úr 20,6%
í 15,5% á tímabilinu janúar til
júní.
34.PM5 19.4.2017, 09:401