Bæjarins besta - 22.08.2001, Side 12
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Steinþór Bjarnason, tölvu-
fræðingur hjá alþjóðlega stór-
fyrirtækinu Cisco Systems
með aðsetur í Noregi, var val-
inn úr liðlega hundrað manna
hópi sem tæknimaður ársins
hjá Cisco Systems í norðan-
verðri Evrópu. Áður var hann
valinn tæknimaður ársins í
Noregi. Þetta er mikil viður-
kenning, ekki síst í ljósi þess
að hjá Cisco er í gildi það
boðorð að ráða einungis „topp
tíu“ til starfa, þ.e. starfsmenn
sem eru í hópi bestu tíu prós-
entanna. Hér var því verið að
velja þann besta úr hópi hinna
bestu.
Útnefningin var tilkynnt á
árlegum fundi tæknimanna og
sölumanna Cisco Systems í
Evrópu, Mið-Austurlöndum
og Afríku, sem haldinn var í
París í síðustu viku. Á þeim
fundum er fastur liður að út-
nefna þá sem eru taldir hafa
staðið sig best í starfi hjá fyrir-
tækinu á liðnu ári. Cisco Syst-
ems starfar um allan heim og
starfsmennirnir munu vera um
40 þúsund.
Meðal þess sem Steinþór
hefur á sinni könnu í Noregi
eru samskipti við Ísland. Af
háskólasjúkrahús, sem hafa
ákveðið að taka upp nýja
símatækni frá Cisco (Call-
Manager IP-símakerfi). „Það
kom í minn hlut að sjá um
tæknilegu hliðina í þeim
samningum og sannfæra þá
um að tæknin hjá okkur er
fullkomlega áreiðanleg“,
sagði Steinþór þegar BB
hringdi í hann út til Parísar.
Steinþór er 35 ára að aldri,
ættaður úr Aðalvík og af
Ströndum og úr Ísafjarðar-
djúpi. Hann er fæddur í Bol-
ungarvík en fluttist með fjöl-
skyldu sinni fimm ára gamall
til Ísafjarðar og ólst þar upp.
Hann gekk í Iðnskóla Ísafjarð-
ar og lauk honum á mettíma
og fékk síðan inngöngu í Há-
skóla Íslands 18 ára gamall
þar sem hann lagði stund á
tölvufræði. Á sínum tíma
starfaði Steinþór sem tölvu-
fræðingur hjá Íslandsbanka en
hefur verið búsettur í Noregi í
sex og hálft ár. Lengst af starf-
aði hann þar hjá fyrirtæki sem
sérhæfir sig í bankakerfum en
síðasta eitt og hálft árið hefur
hann unnið hjá Cisco. Eigin-
kona Steinþórs er Kristín Páls-
dóttir úr Grundarfirði.
nýjum viðskiptavinum Cisco
á Íslandi má nefna Hitaveitu
Suðurnesja og Landspítala-
Steinþór Bjarnason.
Tæknimaður ársins hjá Cisco Systems
Vestfirskum tölvufræðingi, Steinþóri Bjarnasyni, hlotnast mikil viðurkenning
Mikil og góð loðna á Halamiðum en bannað að veiða hana
Frátekin fyrir hvalinn og selinn
– enginn þorskur eða annar botnfiskur virðist fylgja loðnunni
Loðnuveiðibann er í gildi
til 15. september. Sjómenn
hafa orðið varir við geysimik-
ið af mjög góðri loðnu á Hala-
miðum út af Vestfjörðum þar
sem miklar vöður af hval og
sel eru að éta hana upp. Aftur
á móti virðist enginn þorskur
fylgja loðnunni. „Núna í
loðnustoppinu erum við að
bræða rækjuskel og fiskúr-
gang og slíkt en vonandi finnst
einhver loðna fljótlega eftir
15. september“, segir Einar
Jónatansson, framkvæmda-
stjóri fiskimjölsverksmiðj-
unnar Gnár í Bolungarvík.
Í fréttum RÚV sagði Run-
ólfur Guðmundsson skipstjóri
á Hring SH að hann hefði al-
drei séð eins mikið af loðnu á
þessum slóðum. Þar væri
einnig haus við haus af sel og
vöður af hnúfubak og fleiri
hvalategundum. Í Þverál voru
torfur af háhyrningi og taldi
Runólfur að hann væri þar að
éta síld. Hann sagði að hvergi
væri þorsk eða annan botnfisk
að finna.
Um þessar mundir er
Magnús Sigurjónsson
múrarameistari að gera við
múrklæðningu á húsinu
við Hafnargötu 108 í Bol-
ungarvík. Húsið gengur
undir nafninu Steinhúsið
enda fyrsta steypta húsið í
Víkinni samkvæmt
heimildum blaðsins.
Kristján Halldórsson
byggði þetta hús árið 1907
en það hefur nú staðið autt
á annan tug ára. Til stóð að
rífa húsið en kaupandi
kom til skjalanna og lík-
lega verður það tilbúið að
utan nú í haust. Á mynd-
inni er Magnús að klína
viðeigandi efni meðfram
dyrum sem nú eru hátt á
vegg því að tröppurnar eru
horfnar.
Steinhúsið í
Bolungarvík
gert upp
Flugvél Landhelgisgæsl-
unnar, TF SYN, stóð Aðalvík
SH 443 frá Ólafsvík að meint-
um ólöglegum veiðum á Vest-
fjarðamiðum á mánudag.
Skipinu var stefnt til hafnar á
Þingeyri þar sem lögreglan
frá Ísafirði tók á móti því.
Rannsókn málsins var í
höndum sýslumannsins á Ísa-
firði. Hann vildi ekkert tjá sig
um málavexti áður en blaðið
fór í vinnslu.
Gæslan færði
skip til hafnar
Þingeyri
34.PM5 19.4.2017, 09:4012