Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 2
„Þó Þjóðviljinn sé ekki alltaf prent-
villulaus og niargt megi að honum
finna, þá er hann þó ef til vill bezta
eignin í hverju smáu húsi á landinu.
Þetta virðist ekki trúlegt í fyrstu, en
þegar við gætum að, sjáum við fljótt,
að fá vopn voru sterkari en hann í
þeirri baráttu, sem háð hefur ver-
ið til þess að bæta gengi vinnandi
manna á íslandi. Alltaf stóð hann
fremstur, þegar harizt var urn líf og
afkomu launþiggj andi verkamanna,
vissulega, gat honum skjátlazt í
mörgu atriði, en stefnan var alltaf
rétt af því takmarkið var að hefja
alþýðuna í landinu til betra lífs, veg-
samlegri kjara. Sumu fékkst fram-
gengt, öðru varð afstýrt af því, Þjóðviljinn gekk fram fyrir skjöldu. Hvenær sem átti
að svipta alþýðuna einhverjum góðum hlut, var Þjóðviljanum að mæta. Og hvenær
sem alþýðan var þess umkomin á einhverjum stað að hefja haráttu fyrir öflun góðs
hlutar, var Þjóðviljinn sterkasta vopnið í höndum hennar. Ekkert er jafnauðvelt og
benda á galla hans, en aldrei í nokkurt skipti brást hann í máli, sem varðaði velferð
alþýðunnar og eflingu verkalýðsstéttarinnar.“
ALÞÝÐUMENN!
Gerizt áskrifendur Þjóðviljans með því að skrifa eða hringja til afgreiðsl-
unnar, Skólavörðustíg 19, Reykjavík, sími 2184. — Verðið er 6 kr. á mán-
uði í Reykjavík, 5 kr. úti á landi.
• Halldór
Kiljan
Laxness
ritar:
ÞJÓÐVILIINN
blað
íslenzkrar
alþýðn
VINNAN