Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Page 19

Vinnan - 01.05.1945, Page 19
6. gr. í öllum löndum, þar með og nýlendunum, er nauðsynlegt að skipuleggja vandlega breytingu fram- leiðslunnar frá stríSsframleiðslunni, til hinnar venju- legu og tryggja það, að allir, sem losna úr herþjón- ustu, stríðsfangar og hernumdir verkamenn, verði settir í starf. 7. gr. Heimsráðstefnan krefst þess af öllum ríkis- stjórnum, að þær komi á fót stofnun, með aöstoð og undir eftirliti verkalýðssamtakanna, sem annist þessa umskipulagningu framleiðslunnar. — Strangt eftirlit þarf að vera með vöruveröi, til að hindra okur, og koma í veg fyrir að gróðabrall geti komið af stað hruni, Iíkt og átti sér stað í lok fyrri heimsstyrjaldar- innar. 11. gr. Ríkisstj órnir verða, án undanbragða, að við- urkenna þá skyldu sína að tryggja öllum vinnufærum atvinnu með viðhlítandi kjörum. Þær verða þegar í stað að grípa til ráöstafana er tryggja framgang þess- arar kröfu. Jafnhliöa verður að sjá til þess að kaupgeta verka- lýðsins, sem er meginþorri allra neytenda, vaxi í sam- ræmi við aukningu framleiðslunnar. 13. gr. Heimsráðstefnan vill taka það fram, að hún telur aukna framleiðslu fyllilega réttlæta, og beinlínis krefjast aukinna frístunda fyrir vinnandi fólk. Þar af leiöir, að hraða verður framkvæmd 40 stunda vinnuvikunnar, sem hámarksvinnutíma, án skerðingar á kaupi. Þessi krafa er á engan hátt fram sett til að draga úr styttri vinnuviku, þar sem þróun framleiðslunnar er komin á það stig að styttri vinnuvika er æskileg eða jafnvel nauðsynleg. Hverjum verkamanni ber að tryggja að minnsta kosti 2ja vikna frí með fullu kaupi, á ári hverju, og fyrir þá er ekki vinna að staöaldri, frítíma í samræmi við þann tíma. Allir almennir helgidagar greiðist með fullu kaupi. 14. gr. Þjóðfélagstryggingar eru einn af þýðingar- mestu hornsteinum hvers menningarþjóðfélags. Hversu vel, sem þjóðarbúskapnum er háttað, verða alltaf til einstaklingar, sem ekki eru færir um að sjá sér far- borða með vinnu sinni. Það er því nauösynlegt, að hvert ríki komi sér upp fullkomnu tryggingarkerfi, sem tryggi hverjum þjóðfélagsþegn framfærslu, ef þeir eru ekki færir um það sjálfir vegna atvinnuleysis, sjúk- dóma slysa, elli eða örorku, þeim að kostnaðarlausu. Setja þarf lög um heilsuvernd og vinnuöryggi, og verð- ur hver ríkisstjórn að telja það skyldu sína að sjá svo um, að heilbrigði fari vaxandi og slysum fækki. Komið verði á fót ókeypis heilsu- og hressingarhælum. Ein af höfuðskyldum hverrar ríkisstjórnar er að sjá urn heilbrigt uppeldi barna með stofnun barnahæla, vöggustofa og annarra slíkra stofnana. VINNAN Nokkrir úr Sovétsendinefndinni. 73

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.