Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 52

Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 52
nógu löng, sem menn fengu fyrst. Sumir skipstjórarnir eru nú farnir að sjá, að þeir hafa ekki nema helberan skaða af að láta menn vaka svona mikið, og eru það einkum hinir eldri og reyndari, en sumir eru ennþá svo blindir og hrokafullir, að þeir hvorki sjá þetta né vilja sjá. Sér og útgerðinni til mikils tjóns láta þeir menn vaka þangað til þeir eru orðnir ónýtir til vinnu og dragast áfram af veikum mætti, af eintómri undirgefni og hlýðni, því þeir vita sem er: ef einhver gengur (að skipstjórans dómi) lakar fram en annar, þá má hann búast við að fá aS „taka pokann sinn“ og fara í land við fyrsta tækifæri; en þá er hræðslan við atvinnuleysi, þegar á land er komið, svo þeir eru eins og í milli steins og sleggju; þeir kjósa heldur að láta pína sig og kvelja heldur en að fara á vonarvöl. Þetta vita líka skip- stjórarnir. Þeir geta alltaf fengið menn, hvernig sem þeir haga sér við þá, þegar út á sjóinn er komið. Margan langar til aS reyna þessa vinnu og álíta hana sæmilega borgaða, en margur fær nóg af því strax á fyrsta ári og leggur það ekki upp oftar, og margur er rekinn í land eftir fyrsta túrinn. Þeir allra duglegustu og hraustustu halda þaS út nokkur ár. Kvillar eru algengir á trollurunum, einkum ígerðir í höndum og úlfliðum, og er það mjög eðlilegt, þar sem menn eru dag eftir dag með heita og sloruga vetllinga á höndum og þess á milli í koltjöru (úr netum), og verði menn handlama og geti ekki unnið, þá er vanalega álitið, að maðurinn geri sér það upp og mörg dæmi veit ég þess, aS handlama men nhafa ekki þoraS að ganga aftur á skipið til að fá sér að borða, af því þeir hafa búizt við ónotaorðum úr skipstj óranum. . . . Tveim árum síðar farast sjómanna svo orð um vök- urnar á togurunum: Togaramönnum ber saman um það, að eftir svona hálfs annars sólarhrings vöku (ekki sízt ef búið er að vaka oft það, eða meira til, með stuttum svefni á milli), þá verði flestir eins og hálfsturlaðir, sumir fara t. d. að hlæja og eru síflissandi. Einn háseti sagði, að hann og annar, er næstur honum stóS, hefðu farið að skelli- hlæja að því, er maður stórslasaðist og aS það kæmi fyrir, að menn eftir langar vökur reiddust stundum út af litlu eða engu, svo að þeir vissu ekki sitt rjúk- andi ráð. SigurSur Einarsson kveður svo í kvæðinu Togarar: Veifur svífa við sigluhnokka, sólin stirnar á málaða skrokka. Hér liggja þeir bundnir röð við röð, eins og risaflákar í þröngri tröð. Þeir spúa bólstrum af blökkum mekki, svo bryggjan er vafin í reyk, sem skríður við jörðu, kastast í kekki, með kulið á vanga þeir toga í hlekki, sem vildu þeir komast á kreik. Þar leggur einn út með leystum taugum, hann lítur ísköldum festaraugum með drottnandi þótta yfir dimmgrænt svið, hann dýfist í báruna, þyngir skrið, skínandi fagur um skrokk og reiða með skutinn í fossandi röst. Mjallhvítt löður um bógana breiða, bólstrar af reyk við loftið heiða og stefnan strikbein og föst. Glaðlegir drengir ganga. á þiljum, þeir glotta við tönn mót sogandi hyljum, þreknir, með útilofts þeldökka rún á þróttlegum kinnum og harðlegri brún. Kornungir garpar, sem engu eira, þótt æði rjúkandi hregg, sem fóru víðar og vita fleira, sem vinna betur og kunna meira, en sú kynslóð, sem kom þeim á legg. Og þessi sveit, er á sænum drottnar, á sjálfstraust frjálsborins manns, þótt hlytu hennar forfeður herðar lotnar og hendur lúnar og kröftum þrotnar á fleytunum fógetans. Því hún á mannvitsins mátt sér að baki og málmsins vald, þó að byrðinginn skaki ólmar hrannir, á yztu mið er örugg stefnt og ei beðið um grið. En þessir garpar, sem engu eira, þótt æði rjúkandi hregg, þeir skynja réttar og skilja fleira, þeir skyggndust víðar, og heimta meira, en sú kynslóð, sem kom þeim á legg. A öðru ári heimsstyrjaldarinnar, hinn 10. júní 1915, hóf nýtt blað göngu sína í Reykjavík. Það var Dagsbrún — blað jafnaðarmanna. Tvö hin fyrri blöð verkamanna höfðu ekki orðið langlíf. En síðan Dagsbrún kom út hefur íslenzkur verkalýður jafnan átt sér ritað málgagn. Stefna blaðsins var túlkuð á þessa lund: Jöfnuður sá, er við viljum koma á, er að allir, hvert einasta mannsbarn, sem fæðist hér á landi, hafi jafnt tækifæri til þess að þroska og fullkomna alla góða og fagra meðfædda hæfileika (og við viljum að allir geri það), svo að þeir geti lifað ríkara og hamingjusamara lífi, og hver einstaklingur unnið þjóðinni í heild sinni meira gagn. FÁTÆKTIN ÚTLÆG Það sem fyrst og fremst þarf að gera til þess að geta kornið fram áformi okkar, er að koma á svo almennri velmegun, að hver einstaklingur hafi ráð á að veita sér þá þekkingu, er hugur hans hneigist að. En til þess þarf að gera fátæktina útlæga úr landinu. Til þess að koma þessu í framkvæmd ætlum við á allar lundir að stuðla að því að láta auðsuppsprettur landsins renna sem ríku- legast, og þannig, að það verði þjóðin, sem ábatast á því, en ekki einstakir fáir menn. Framh. 106 VIN N A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.