Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Page 2

Vinnan - 01.05.1945, Page 2
„Þó Þjóðviljinn sé ekki alltaf prent- villulaus og niargt megi að honum finna, þá er hann þó ef til vill bezta eignin í hverju smáu húsi á landinu. Þetta virðist ekki trúlegt í fyrstu, en þegar við gætum að, sjáum við fljótt, að fá vopn voru sterkari en hann í þeirri baráttu, sem háð hefur ver- ið til þess að bæta gengi vinnandi manna á íslandi. Alltaf stóð hann fremstur, þegar harizt var urn líf og afkomu launþiggj andi verkamanna, vissulega, gat honum skjátlazt í mörgu atriði, en stefnan var alltaf rétt af því takmarkið var að hefja alþýðuna í landinu til betra lífs, veg- samlegri kjara. Sumu fékkst fram- gengt, öðru varð afstýrt af því, Þjóðviljinn gekk fram fyrir skjöldu. Hvenær sem átti að svipta alþýðuna einhverjum góðum hlut, var Þjóðviljanum að mæta. Og hvenær sem alþýðan var þess umkomin á einhverjum stað að hefja haráttu fyrir öflun góðs hlutar, var Þjóðviljinn sterkasta vopnið í höndum hennar. Ekkert er jafnauðvelt og benda á galla hans, en aldrei í nokkurt skipti brást hann í máli, sem varðaði velferð alþýðunnar og eflingu verkalýðsstéttarinnar.“ ALÞÝÐUMENN! Gerizt áskrifendur Þjóðviljans með því að skrifa eða hringja til afgreiðsl- unnar, Skólavörðustíg 19, Reykjavík, sími 2184. — Verðið er 6 kr. á mán- uði í Reykjavík, 5 kr. úti á landi. • Halldór Kiljan Laxness ritar: ÞJÓÐVILIINN blað íslenzkrar alþýðn VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.