Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Side 43

Vinnan - 01.05.1945, Side 43
sagði hún dálítið byrst: — SkilaSu mér aftur ábreiS- unni minni. Hún er peninga virSi. -— Hún skýlir mér á nóttunni, hreytti hann út úr sér. — Ég skal sjóSa fyrir þig, sauma, þvo og taka til, sagSi hún. — Og fyrir ekkert. Og ég skal sofa á dýnu fyrir framan arininn. — ÞaS eru notalegir skurSir meS fram veginum, sagSi hann hlæjandi. Svo læsti hann dyrunum, slökkti ljósið og þrammaði upp stigann. Hún þrýsti vanganum upp aS kofaveggnum, eins og hún væri að leita sér skjóls. Svo staulaðist hún niður veginn í myrkrinu. Viku seinna hvarf maður hennar, og sveitin sá henni fyrir fæði og húsnæði, þangað til hún fékk lítilfj örlegt starf í eldhúsi gistihússins í borg- inni. Þetta varð henni sár niSurlæging, því að hún mundi ennþá eftir fallega vaxtarlaginu sínu, gula hár- inu, silkikjólunum og þrýstnu brjóstunum. Og á frost- bitru kvöldi í janúarmánuSi lagði hún enn af stað til æskustöðva sinna og læddist þar um eins og flökku- kind. Föl var á veginum og frostvindurinn næddi um skóginn, svo að hann stundi og veinaði. Dan var að telja mánaðartekjurnar og ætlaði að fara með peningana í bankann daginn eftir. Það skrjáfaði í seðlum og silfur- og koparpeningarnir lágu í hrúgum. Hann leit ekki við, þegar hann heyrði drepið drauga- lega á gluggann, en tók upp handfylli sína af silfur- peningum og hampaði þeim í ljósinu frá lampanum. Hann glotti. — Dan, kallaði hún aumkvunarlega. — Catti langar til að koma inn. Hún er þrjátíu og tveggja ára, og þú verður þrjátíu og sex næsta afmælisdaginn þinn. ViS skulum ekki eyða árunum lengur, Dan, en láta allt falla í ljúfa löð. FitaSu mig, Dan, og taktu úr mér hrollinn. Hún klappaði mjúklega á gluggann. Hann leit ekki við, en hreytti úr sér: — Farðu og leitaðu að þorskinum, manninum þínum, niðri í svölum sjónum. Hún kallaði: — Ég skal gera vistlegt kringum þig í notalega húsinu þínu, og matinn þinn skal ég sjóða á hverjum degi. Ég er ekki eins skapvond og ég var og gömlu hrekkina hef ég lagt niður. ViS áttum vel sam- an, Dan, það er ekki vafi á því. Hann lét peningana í leðurpyngju, leit ekki á hana, en kallaði út: — FarSu burtu! Ég kæri mig ekki um sporðinn á skötunni. — OpnaSu dyrnar, veinaði hún. Hann slökkti ljósið, læsti dyrunum og þrammaði upp stigann. Peningapyngjuna lét hann undir sængina sína og teygði úr sér milli ullarvoðanna. Efst var ábreiðan hennar, ísaumuð rauðum liljum og fljúgandi svönum. Undir henni svaf hann eins og steinn alla nóttina. Um morguninn opnaði hann útidyrnar og líkami hennar féll að fótum hans. Hendur hennar og andlit var frosið og öskugrátt hár hennar allt í óreiðu. Hann hallaði henni upp við vatnsfötuna, læsti dyrunum og ók í bílnum sínum til lögreglunnar í þorpinu. — HvaS heldurðu, að Catti hafi gert. Emrys? sagði hann í kvörtunartón. -— Hún dó á þröskuldinum mín- um. Þér er bezt að hringja í sveitarstj órnina og segja henni að sækja hana í sjúkravagninum, því að ég er í önnum með fullan bílinn af eggjum og alifuglum frá búgarði Powels. Á næsta markaðsdegi seldi hann ábreiðuna fyrir aðeins tíu skildinga, svo að ekkert skyldi minna hann á hana framar. Sveitarstjórnin lét grafa Catti, en Dan málaSi kofann sinn grænan, drakk geitamjólk á hverj- um degi, keypti sér ný, svört föt og nýtt úr. En svo fékk hann einhverja uppdráttarsýki. Ljóminn hvarf úr augum hans, og beizkyrði hrutu honum ekki af vörum frarnar. TréskurSarmyndirnar hans urðu klaufalegar, og hann varð stirðhendur. Hann gekk um stefnulaust, eins og ekkert væri í veröldinni lengur, sem gæti knúið hann áfram. Hann dó dag nokkurn, þegar hann var að aka bílnum sínum niður brekkuna, í stað þess aS liggja í rúminu. Bíllinn rakst á tré og brotnaði. Hann átti engan erfingja að peningum sínum, og ekki heldur eyðilega kofanum, þar sem rotturnar voru farn- ar að hlaupa um tómt rúmið. Háspenna! Lííshætta! A hreppsnefndarfundi norður á Sauðárkróki var fyrir löngu síðan rœtt um fyrirhugaða girðingu og voru sumir henni meðmœltir, en aðrir mæltu á móti, eins og algengt mun vera á hreppsnefndarfundum. Loks reis einn hreppsnefndarmanna úr sæti, flutti þrumandi ræðu gegn hinni fyrirhuguðu girðingu og skorti þá hvorki sannfœrandi rök né eftirminnileg snjallyrði. Að hrepps- nefndarfundinum loknum tók höfuðskáld þeirra Sauð- krœkinga sig til og fœrði téða rœðu í rím, þar sem hann tilgreindi rökin og notaði snjallyrði rœðumanns. Ljóðið er þannig: Eg vil benda ykkur á og það megið virða: Mínu sjónarmiði frá mœtti enginn girða. Ég vil benda ykkur á, ef menn, nefnilega, riðu Króknum fullir frá og fœru glannalega — og nefnilega í náttmyrkri nefnilega mættu nefnilega nokkurri nefnilega hœttu. VIN N A N 97

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.