Heimilispósturinn - 15.12.1950, Side 17

Heimilispósturinn - 15.12.1950, Side 17
MARY BRUCE : Gestir á kránni. ..TTÆ — hver skrambinn — er -H það ekki Bella?“ Dick Peær hallaði sér út úr Fíat bílnum sínum og renndi augun- um undir sólhlíf stúlkunnar. Hún hallaði höfði og leit til hans. „Dick!! Ef það væri ekki þessi blessaður hiti, mundi ég dansa af gleði,“ hrópaði hún hlæjandi. Dick stökk út úr vagn- inum og þrýsti hendur hennar hjartanlega. „Komdu Bella, við skulum fá okkur hressingu og masa ofurlítið.“ Þau gengu inn í Café „Rotonde“, og hann ruddi braut milli borðanna. Þau fundu loks lítið borð í einu horninu; Bella lét fallast í stólinn og tók að hvítta nefið á sér með geysi- stórum púðursvepp. „Þegar þú hefur lokið við listaverkið, gæt- irðu sagt mér, hvað þú ert að gera hér í nautnaborginni — París,“ sagði hann og teygði úr fótunum á sér. Bella hafði enn nóg að starfa við snyrtinguna. „Mamma og ég komum hingað til þess að kaupa nokkra kjóla og annað drasl.“ Hún hallaði sér fram á borðið. „Drasl, segi ég — já! Því að mamma ætlar líka að kaupa handa mér ekta franskan greifa — eitthvert við- bjóðslegt, _ hálfvitlaust snyrti- menni.“ „Ósvikinn greifa?“ „Þú mátt trúa því! Svona mönnum er blátt áfram ofaukið — mig — mig langar alltaf til þess að toga í vatnsgreidda hárið á hon- um og hrifsa í slifsið hans — svo að það fari að minnsta kosti aflaga á honum. Bella hristi glasið sitt, svo að það sauð í gosdrykknum. „Menn þurfa ekki að vera sálfræðingar," sagði Dick, „til þess að —.“ „Til þess að —?“ „Til þess að sjá, að þér stendur ekki alveg á sama um hann.“ „Slúður,“ sagði Bella fyrirlitlega. „Maðurinn er ræfill. Hvað stoðar það, þó að hann sé laglegur og vel til fara, þegar hann er ekki annað en gunga? En mömmu skal nú ekki takast að koma honum í tæri við mig, þessu — þessu skordýri!“ Svona — svona,“ sagði Dick í róandi tón: „Þetta er með öðr- um orðum orðinn heill sorgar- leikur. Og ef ég þekki móður þína rétt, þá er ekki við lambið að leika sér, þegar hún hefur ákveðið eitthvað." „Já, er það ekki voðalegt? Og ég þurfti einmitt svo illilega á hermelínskápu að halda, — og svo var perlufesti, sem —“. ,,Ég skil,“ sagði Dick. „Ef þú lætur ekki undan og verður greifafrú, lokar gamla mamma ávísanabókinni.“ „Þú ert greindari en ég hélt, — en komdu nú með einhverja hugmynd, svo að ég geti opnað augun á henni. Gef mér sígar- ettu og þegiðu svo, þangað til þú hefur fengið hugmyndina." Þegar Dick og Bella óku frá „Rotonde“ skömmu síðar, höfðu þau mikið að tala. Hún steig út úr vagninum við Grand Hotel. Inni í fordyrinu sátu móðir 15 '2 9 2 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.