Heimilispósturinn - 15.12.1950, Page 30

Heimilispósturinn - 15.12.1950, Page 30
hússtjórinn gerði allt, sem í hans valdi stóð. Loks sendi hann dyra- vörðinn til þess að leita að ökumann- inum, sem hafði ekið stúlkunni frá járnbrautarstöðinni. Það var að vísu þýðingarlítið, en stúlkan vildi ólm ná tali af honum. Sem betur fór náð- ist í ekilinn. Hann var enn með vagn sinn á stöðinni. Og klukkan tvö um nóttina stóð hann í forsal gistihúss- ins með hattinn í hendinni. „Var það sami ökumaðurinn?" spurði ég. „Ungfrú Farringham þekkti hann strax. „Þér munið eftir mér?“ spurði hún áköf. „Vissulega, ungfrú. Þér komuð klukkan átta — ein. Ég ók yður til þessa gistihúss. Tvær töskur." „Nei, nei. Móðir mín var með mér. Það voru þrjár töskur og stór, grænn poki.“ Ekillinn horfði hvumsa á hana. „Og munið þér ekki eftir þvi, að þér færðuð pokann til, áður en við ókum af stað. Ef til vill hafið þér haldið að það væri ekki óhætt að hafa hann uppi á þakinu. Þér settuð hann við fætur yðar hjá ekilssætinu. Ó, þér hljótið að mima eftir þessu, þér hljótið að muna eftir þessu!“ Ökumaðurinn var greinilega for- viða. „En það var enginn grænn poki,“ sagði hann. „Ég man þetta vel. Ungfrúin hlýtur að vera amerisk eða ensk, annars myndi hún ekki ferðast ein, hugsaði ég með mér.“ Ungfrú Farringham starði með æð- isgengnu augnaráði í kring um sig og féll í ómegin. Þeir komu henni í rúmið og lofuðu að senda símskeyti til Englands. Snemma næsta morgun hélt hún ferð- inni áfram yfir Ermasund eins og í leiðslu. Á járnbrautarstöðinni í Lond- on tóku vinir hennar á móti henni o,g þeim fannst þetta ekki síður dular- fullt en henni sjálfri. Um kvöldið veiktist hún hastarlega. Heilabólga.“ „En móðirin ?“ spurði ég. „Það spurðist aldrei til hennar," sagði John Chester. Bjallan í þingsalnum hringdi og Chester afsakaði sig. „Eg verð að fara og greiða at- kvæði,“ sagði hann. „Ég verð kom- inn aftur eftir tíu mínútur, og þú færð sextíu sinnum lengri tíma tíl að ráða gátuna en forsætisráðherrann fyrrverandi." Hann kinkaði kolli og hraðaði sér út. Ég reyndi að beita þeim hæfileik- um, sem leynilögreglumenn skáld- sagnanna nota. Annað hvort hafði frú Farringham komið til gistihússins í París eða hún hafði ekki komið þangað John Chester hafði fullyrtt að hún hefði komið þangað, og þess- vegna . . . * „Erfið gáta?“ sagði Chester, þegar hann kom aftur. „Játaðu bara, að þú ráðir ekki við hana.“ „Ég játa það,“ sagði ég. „Komdu þá út á svalirnar,“ og við gengum út og horfðum yfir Thamesá. „Ég hef oft velt því fyrir mér,“ sagði hann loks, „hversvegna frú Farringham datt allt i einu í hug að kaupa ábreiður fyrir heimili sitt í London.“ Ég reyndi strax að komast að ein- hverri niðurstöðu í sambandi við á- breiðurnar, en varð að gefast upp. „Ef til vill,“ hélt hann áfram, „var það fyrirsláttur. Ef til vill var hún að reyna að blekkja sjálfa sig, eins og flestar konur gera. Það er ekki ólíklegt að frú Farringham hafi hætt við hið fyrirhugaða ferðalag til Litlu Asíu vegna þess að hún var orðin lasin.“ Hann þagði svo lengi, að ég vakti athygli hans á því að kvöldloftið væri kalt. „Þá skal ég segja þér, hvernig 28 HEIMILISPÖSTURINN 2 2 2

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.