Vinnan - 01.02.1952, Síða 5

Vinnan - 01.02.1952, Síða 5
VINNAN 1. tölublað 10. árgangur Janúar — febrúar 1952 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10 Sími: 3980 Útgefandi: Alþýðusamband íslands Atvinnuleysið SAMKVÆMT þeim upplýsingum, sem Alþýðu- sambandið hefur aflað sér, er atvinnuleysið svo geigvænlegt allvíða úti um land, að skorturinn er við dyr fjölmargra alþýðuheimila, auk þess sem þúsundir manna ganga atvinnulausar í höfuð- staðnum sjálfum að dómi fulltrúaráðs verkalýðs- félaganna þar. Og þótt atvinnuleysið væri orðið mikið snemma á vetrinum, hefur enn ekkert verið gert að gagni af hálfu hins opinbera til að ráða bætur á því. Alþýðusamtökin um land allt aðvöruðu stjórnar- völdin í tíma um að snúast gegn atvinnuleysinu þegar, og segja má, að örlað hafi á nokkrum skiln- ingi hjá þeim, er alþingi fékkst til að heimila ríkisstjórninni að verja 4 milljónum króna til að bæta úr því. En þær ráðstafanir koma þó að engu haldi fyrr en seint og síðar meir, þar eð helzt kom til orða að verja þessu fé til að reisa hrað- frystihús og fiskiðjuver. Slíkar framkvæmdir eru ágætar og sjálfsagðar og nauðsynlegar til að tryggja atvinnu og afkomu fólks í sumum lands- hlutum, en jafnframt þurfti vitaskuld að bæta úr skortinum, sem nú þegar steðjar að alþýðunni. Atvinnutæki, sem ekki er til nema á pappírnum og varla það, veitir engum verkamanni atvinnu að sinni. Það eina, sem dugir, eru ráðstafanir til úrbóta strax. Þegar þess er gætt, að samfara atvinnuleysinu er mikil og vaxandi dýrtíð, ætti öllum að vera EFNI: Atvinnuleysið. o Hannibal Valdimarsson: Reistu í verki viljans merki — o Helgi Hannesson: Vorsetinn látinn. o Hafnarverkamenn í Reykjavík. o Helgi Hannesson: Vinnur Jónsson látinn. o Verkfall á togurunum. o Hlíf 45 ára. o Poul Bonnevie prófessor: Eitrunarhætta af blýbenzíni. o Samband matreiðslu- og framreiðslu- manna 25 ára. o Sæmundur Ölafsson: Negrarnir og verkalýðshreyfingin. o Sambandstíðindi, Kaupgjaldstíðindi o. fl. ljóst, að ekki getur öðru vísi en illa farið, sitji stjórnarvöldin með hendur í skauti. Og svo er nú komið, að verkamaður í Reykjavík á fullt í fangi með að sjá fjölskyldu sinni farborða, þótt hann hafi vinnu alla daga. Slík er dýrtíðin orðin. Það hefur ekki verið reiknað út, hve mikinn þátt dýr- tíðin og minnkandi kaupgeta almennings á í atvinnuleysinu. Vafalaust er hann mikill, ef til vill meiri en menn almennt grunar, en þeim mun skyldugri eru þau stjórnarvöld, sem ábyrgð bera á dýrtíðinni og minnkandi kaupgetu, til að firra almenning vandræðunum, þegar þess er einnig gætt, að ríkisstjórnin lýsti yfir því, er hún kom til valda, að hún teldi það eitt aðalhlutverk sitt að viðhalda fullri atvinnu. Alþýðusamtökin verða, er atvinnuleysið er annars vegar, að snúa sér beint til stjórnarvald- anna. Þau eiga ekki í annað hús að venda um það. Þess vegna bera alþýðusamtökin • fram þá kröfu við ríkisstjórnina, að hún reyni að standa við orð sín og sjá alþýðunni fyrir nægilegri at- vinnu. VINNAN 5

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.