Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 9

Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 9
Hafnarvinna er í eðli sínu ótrygg vinna. Hlé verður á komu skipa alltaf við og við, en þess á milli er stundum svo mikið um að vera, að fjölga þarf til muna. Hlýtur því mikil vinna að ganga þeim úr greipum, sem þó hafa gerzt hafnarverka- menn að atvinnu, enda eru engar hömlur á því, að menn úr hvaða starfsgrein sem er geti fengið vinnu við höfnina, ef svo ber undir. Það væri því óneitanlega mikil kjarabót fyrir hafnarverkamenn að ná samningum við atvinnu- rekendur um einhvers konar kauptryggingu. Kom það og til orða fyrir nokkrum árum, en ekki varð úr framkvæmdum. En jafnframt kauptrygg- ingunni væri heppilegt að setja tvo kauptaxta: annan, hærri, fyrir þá, sem aðeins hafa hlaupa- vinnu og enga tryggingu, og hinn fyrir þá, sem fastráðnir eru, og væri kaup þeirra hið sama og annarra verkamanna. Hlaupavinnutaxtann mætti setja ákveðnum hundraðshluta hærri en hinn, þannig að hann breyttist af sjálfum sér með öðru kaupgjaldi eins og nú tíðkast um álag á kaup í eftirvinnu. Hafnarverkamenn vinna bæði úti og inni, í lestum skipa við lúgurnar, vindurnar, á bakkan- um og inni í vöruhúsum. Vinnan er óþrifaleg og erfið, þótt mikill léttir sé vélaaflið fyrir mennina. Má segja, að í því efni hafi orðið stórstígar breyt- ingar til bóta síðasta áratuginn þar sem annars staðar. En yfirleitt er vinnuaðstaðan bágborin. Þeir, sem vinna á bakkanum, við lúgur, vindur eða á óyfirbyggðum dráttarvögnum, verða að vera úti, hverju sem viðrar, en í skipum og vöru- húsum eru skilyrðin misjöfn. í aðeins einu vöruhúsi er loftræsting, vöruhúsi SÍS, sem telja verður að þessu leyti til fyrir- myndar. Hin eru öll loftræstingarlaus til hinnar mestu óhollustu fyrir verkamennina sökum gas- lofts, sem leggur af vélknúnum vinnutækjum. Hefur kveðið svo rammt að á stundum, að menn hafa fallið í öngvit við vinnu sína vegna gas- loftsins. Og ekki er einu sinni hægt að opna í gegn, þannig að súgur myndist, í sumum hús- unum. Þyrfti að kippa þessu í lag hið bráðasta. Búið er nú að setja hús á alla dráttarvagna hjá Eimskipafélagi íslands til skjóls fyrir ökumennina og öryggisþak á lyftarana flesta, svo að vörur geti ekki hrunið yfir þann, sem stjórnar, þótt út af beri. Stór bót er að því, en slíku er ekki fyrir að fara hjá öðrum. Framhald á 27. síðu. Finnur Jónsson lótinn FINNUR JÓNSSON alþingismaður lézt að heimili sínu í Reykjavík þann 30. des. s. 1. Við fráfall hans hafa alþýðusamtökin orðið að sjá á bak einum sinna ágætustu brautryðjenda og forystumanna og íslenzka þjóðin orðið einum mætustu sona sinna fátækari. Finnur Jónsson var formaður verkalýðsfélags- ins Baldurs á ísafirði um 11 ára skeið. Forseti Alþýðusambands Vestfjarða var hann frá stofn- un sambandsins og um Iangt skeið. í mörg ár átti hann sæti í stjórn Alþýðusam- bands íslands og sat jafnan þing þess fyrir verkalýðsfélagið Baldur. Bæjarfulltrúi Alþýðu- flokksins á ísafirði yar Finnur um tvo áratugi og alþingismaður Isfirðinga í 18 ár. Forustuhæfileikar Finns Jónssonar, óbilandi viljaþrek, festa í málflutningi, lagni og lipurð í samningum samfara þrotlausum áhuga hans á að vinna málstað alþýðunnar allt það gagn, er hann mátti, ollu því, að á hann hlóðust hin mikilvægustu og margvíslegustu störf fyrir verkalýðssamtökin og Alþýðuflokkinn. Finnur Jónsson var einlægur andstæðingur íhalds og einræðis, herskár en drengilegur og ótrauður baráttumaður jafnréttis og frelsis. Þótt hann sé nú horfinn, mun minningin um hann lifa og hvetja til dáðríkra starfa fyrir al- þýðusamtökin. Alþýðusambandið þakkar honum heillaríkt brautryðjandastarf og sendir konu hans, börnum og nánum ástvinum hlýjar samúðarkveðjur. Helgi Hannesson. VINNAN 9

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.