Vinnan - 01.02.1952, Qupperneq 12

Vinnan - 01.02.1952, Qupperneq 12
BROTABROT TÍMARITIÐ EUROPEAN REVIEW birtir ný- lega upplýsingar með línuritum um aukningu framfærslukostnaðar í flestum löndum Vestur- Evrópu síðan í ársbyrjun 1948. Hefur ísland sam- kvæmt þeim að vísu ekki metið, en gengur næst met- hafanum, Austurríki. Vísi- tala sú, sem notuð er til að sýna samanburðinn á framfærslukostnaði land- anna, er sett 100 í árs- byrjun 1948. Hækkar hún, hvað Island varðar, sama og ekkert fram undir árslok 1949, en á tveimur síðustu árum um 60 stig — eða 60% — miðað við ársbyrjun 1948. A sama árabili hækkar fram- færslukostnaðurinn um aðeins 25 stig í Noregi," 22 í Svíþjóð, 21 í Danmörku og 19 á Bretlandi. * * * ALÞINGI veitti Alþýðusambandi íslands 50 þúsund króna styrk til starfsemi sirinar á fjár- lögum yfirstandandi árs. Ber vissulega að þakka það, því að áður hafði það aðeins fengið árlega 10 þúsund krónur af ríkisfé. Hins vegar sótti stjórn Alþýðusambandsins um 100 þúsund krónur. * * * SAMKVÆMT árbók landbúnaðarins var mjólkursalan á landinu meira en hálfri milljón lítra minni frá 1. jan. — 30. sept. 1951 en á sama tímabili árið 1950 þrátt fyrir mikla fjölgun í þorpum og kaupstöðum. Fyrsta ársfjórðunginn var hún 204 518 lítrum minni, annan 280 277 lítrum minni og þriðja 69 138 lítrum minni. Ber þess að geta, að yfir hásumarið eru tekjur fjöl- margra manna við sjávarsíðuna mestar. Minnk- andi mjólkursala getur ekki stafað af öðru en minnkandi kaupgetu almennings. ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS telur um 26 þúsund félagsmenn innan vébanda sinna. Engin sam- tök hér á landi önnur en Sam- band íslenzkra samvinnufélaga eru fjölmennari. Ef með eru taldir allir þeir, sem félagsmenn Alþýðusambandsins hafa á fram- færi sínu, má telja fullan helm- ing þjóðarinnar undir merki þess. ÞJÓÐARTEKJUR ÍSLENDINGA munu vera um 1700—1800 milljónir króna. En nærri lætur, að á því ári, sem nú er að líða taki ríki og sveitar- félög í skatta af þjóðinni um 460 milljónir króna samkvæmt áætlun á fjárlögum og allnákvæmri ágizkun um útsvör. Þannig fer um fjórðungur af tekjum þjóðarinnar í ríkissjóð og sveitarsjóði með innheimtu skatta og tolla. * * * NOKKRU FYRIR ÞINGLAUSNIR í janúar samþykkti alþingi að heimila ríkisstjórninni að verja allt að 4 milljónum króna til að bæta úr atvinnuörðugleikum í landinu. Var það viður- kennt í þinginu, að helzt kæmi til greina að reisa ný fiskiðjuver í þessu skyni. A fjárlögum var stjórninni og heimilað að veita ríkisábyrgð fyrir lánum, að upphæð allt að 8 milljónum króna, til nýrra hraðfrystihúsa, svo að hún hefur því alls til umráða 12 milljónir króna til slíkra fram- kvæmda. - SMÆLKI - Prestur nokkur gisti hjá kunningiia sínum, en vegna þess, hve 'þröngt var í húsinu, var hann látinn sofa hjá fimm ára gömlum syni hjónanna. Þegar þeir voru að hátta, skauzt drengurinn aftur fyrir fótagafhnn á rúminu og kraup þar á kné. Prestur hélt, að hann væri að gera bæn sína, og þótti það fallegt af honum. Hann kraup svo sjálfur við höfðalagið. — Hvað ertu að gera? spurði drengurinn. — Það sama og þú, svarar prestur. — Þá held ,ég mamma verði vond, segir sé litli, því að potturinn er hérna megin. — o — Sjómaður nokkur fór inn í ritfangaverzlun og tók að skoða póstkort, er þar var raðað á afgreiðsluborðið. Af- greiðslustúlkan vék sér að honum og spurði, hvað hún gæti gert fyrir hann. En sjómaðurinn var að leita að korti, sem á væri letrað: Til einustu unnustunnar. Slík póstkort voru til í verzluninni, og sjómaðurinn keypti heila tylft. 1948 1949 1950 1951 12 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.