Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 14

Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 14
blýi. Sjúkdómseinkennin hafa verið mjög mis- munandi, frá lítilfjörlegum óþægindum til tauga- lömunar, sem þó hefur batnað. Þar sem engin sér- stök einkenni eru fyrir þennan sjúkdóm, hafa sennilega verið mörg fleiri tilfelli, sem vér vitum ekki um. Tæki til að ákveða, hvort eitrunin stafi af ethyl- blýi, eru til í rannsóknarstofum. Aðferðin leiðir í Ijós aukningu á blýmagninu í líkamanum. Eins og áður er sagt, greinist blýið í efnasambandinu frá í líffærunum, og stöðug tilfærsla af litlu blý- magni skapar þannig möguleika fyrir hinni vel- þekktu blý-málms-eitrun með sömu einkennum og stafa af ólífrænum (uorganisk) blýsamböndum (blýaska, blýkromat o. fl.). Einkennin eru blóð- leysi, meltingartruflanir, þarmakveisa o. fl. •— fyrir utan þreytu, listarleysi og aðrar lítilfj örleg- ar truflanir á heilsufarinu, sem hægt er að sjá í sambandi við marga sjúkdóma og þar að auki einnig við ethyl-blýeitrun. Ahrifin af málmblýi koma einnig fram í auknu blýi í blóðinu (sem alltaf inniheldur þó svolítið af blýi, sem kemur frá drykkjarvatni og mat) og þvaginu, einnig við sérstaka skemmd á nýmynduðum rauðum blóð- kornum. Það síðast nefnda er auðvelt að sýna fram á með því að lita á sérstakan hátt blóðdropa, sem strokið er á glerplötu og rannsaka blönduna í smásjá. I því sjást umrædd blóðkorn full af ör- smáum ögnum, sem hafa tekið í sig basíska litar- efnið. Er þá talað um „basofili“ blóðkornanna. Vér höfum í mörgum tilfellum sýnt fram á þannig basofili, sem aðeins hefur verið hægt að skýra með því, að sá, sem rannsakaður hefur verið, hafi við vinnu andað að sér eða fengið í gegnum húðina ethylblýið í vélabenzíni og hafi þannig orðið fyrir hættulega miklum blýáhrifum, þ. e. a. s. hafi átt á hættu að fá einnkenni þau af blýeitrun, sem koma í ljós við hættuleg blýáhrif. Hjá ein- staka mönnum, sem gæta benzíntanka, höfum vér veitt athygli slíkum einkennum á blýeitrun, og frá læknum úti á landi höfum vér heyrt um sams konar athuganir. Sé aftur á móti um vélvirkja og bifvélavirkja að ræða, sem gera við benzínvélar með tilheyr- andi, er einnig sá möguleiki fyrir hendi, að þeir verði fyrir áhrifum, ekki af ethyl-blýi í benzíninu, heldur af blýösku í sótinu frá vélunum. A sama hátt og blýsambandið í líffærunum brennur og verður að blýildi, breytist það í vélunum og sezt þar að að nokkru leyti, þrátt fyrir það að blýsótið fjarlægist að mestu leyti með útstreymisgasinu. Blýsótið er þannig einnig hættulegt, en í reynd- inni er það kolildið í útstreymisgasinu, sem er langhættulegast. Fái maður ekki kolildiseitrun af vélareyknum, er heldur engin hætta á blýeitrun. Þessi hætta stafar aftur á móti af sóti, sem fast er á vélunum og í útblástursrörinu. Sumpart getur maður fengið sótið á hendurnar og þaðan við að reykja vindlinga og borða til munnsins, og sumpart getur maður andað að sér sótögnum, sem innihalda blý. Hið síðar nefnda er hættulegra, vegna þess að blýið kemst auðveldlegar gegn- um hinn viðkvæma lungnavef, en í gegnum slím- himnur magans. Reiknað er með, að aðeins þurfi 20—50 sinnum minna blý niður í lungun en í magann til þess að orsaka varanlega blýeitrun, en það er minna en 1/10 mg. blý á dag. En fáein mg. af blýi geta auðveldlega komizt niður í mag- ann, ef borðað er t. d. brauð með óhreinum hönd- um. Það má bæta því við, að öruggasta leiðin til þess að eiga á hættu að anda að sér blýi er að nota blýbenzín á mótorlampa. Notkun á blýbenzíni hefur þannig sett menn í nokkrum atvinnugreinum í þá hættu að fá nýjan atvinnusjúkdóm, þ. e. ethyl-blýeitrun, og hefur sett þá ásamt bifvélavirkjum sérstaklega í þá hættu að fá elztu þekktu atvinnueitrunina, þ. e. blýeitrunina. Hvort tveggja er þó auðvelt að forð- ast. í fyrsta lagi verður að verja fólk það, sem vinnur hjá benzínsölum, þegar það hefur um hönd „ethyl-fluid“ eða þegar hreinsaðir eru benzín- tankar og við allar viðgerðir á þeim. Þetta hefur verið gert í mörg ár, og okkur hefur verið hlíft við alvarlegum sjúkdómstilfellum. Um þetta hafa verið settar reglur, sem hafa verið felldar inn í reglugerð dómsmálaráðuneytisins um eldfima vökva. í öðru lagi má aðeins nota benzín á aflvélar sem brennsli. Til að hreinsa með á aðeins að nota blýlaust benzín. Þetta hefur alltaf verið ’fyrir- skipað af heilbrigðis- og verksmiðjueftirlitinu, en fram hjá því hefur verið gengið ótal sinnum — og í mörgum tilfellum hefur það haft í för með sér veikindi, viðurkenndar eitranir og örugglega enn fleiri sjúkdómstilfelli, sem ekki hafa verið greind. Verksmiðjueftirlitið útbýtir nú aðvörunarskiltum til þeirra fyrirtækja, sem sérstaklega freistast til að nota blýbenzínið og það hefur umsjón með. En þar að auki hvílir sú skylda á þeim, sem gæta benzíntankanna, að afgreiða aðeins vélabenzín á tanka vélknúinna tækja. Einnig mega bifvéla- Framhald á 27. síðu. 14 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.