Vinnan - 01.02.1952, Síða 16
Sæmundur Ólafsson:
Negrarnir og verkalýðshreyfingin
Frásögn tveggja manna úr verkalýðssamtökum Bandaríkjanna.
VIÐ KÖNNUMST við sögurnar af meðferðinni,
sem negrarnir í Bandaríkjunum verða að sæta að
sögn áróðursmannanna. Við könnumst við það
hvernig þeir eru teknir af lífi af uppæstum skríl
án dóms og laga á hinn hryllilegasta hátt. Við
könnumst við það, hvernig þeim er bægt frá at-
vinnu og mannréttindum, skólagöngu og félags-
lífi við hvfta menn, sem hundelta þá og ofsækja.
Við höfum heyrt, að negrarnir vinni klæðlitlir
og búi í hreysum í útjöðrum stórborganna, og
dragi þar fram lífið við sult og seyru. Þannig
kunni ég þessa sögu, þegar ég lenti á flugvelli við
New York í júnímánuði síðast liðnum. Síðari
hluta sama dags stóð ég á gatnamótum í skýja-
kljúfahverfi Manhattaneyjar og horfði á þúsundir
vegfarenda, sem voru að koma út í sólskinið að
loknu dagsverki í búðum, skrifstofum og á ýms-
Nýr negrabústaður. Þannig er nú byggt yfir negrana.
um vinnustöðum stórborgarinnar. Iðandi mann-
hafið leið áfram eftir strætunum í stríðum
straumum. Það sérkennilega við manngrúann var
það, að meira bar á svörtum mönnum en hvítum.
Fólkið var allt frjálsmannlegt, glaðlegt og óþving-
að að sjá, negrarnir engu síður en þeir hvítu.
Allir voru léttklæddir, í þægilegum smekklegum
og vel hirtum fötum. Klæðnaður negranna bar
af sökum skrauts og prjáls, sem þeir eru veikir
fyrir. Negrarnir gengu háleitir og steigurmann-
legir. Á þeim voru engin merki um undirokun
og þrælkun sjáanleg. Þeir báru með sér öll merki
um vellíðan og frelsi.
í Kenosha, sem er iðnaðarborg á vesturströnd
Michigansvatns, naut ég gestrisni W. C. Kuht.
Hann er aðalféhirðir í félagi nr. 72 í borginni.
Kuht er af þýzkum ættum og hefur verið starfs-
maður verkalýðshreyfingarinnar lengi. Tal okkar
barst að negrunum og afstöðu verkalýðshreyfing-
arinnar til þeirra. Kuht er raunsær maður. Afstaða
hans til negranna er mjög ákveðin, en laus við
fjandskap. En hann dregur enga dul á það, að það
er mikið vandamál að umgangast þá og skapa
þeim þann sess, sem þeim ber sem frjálsum mönn-
um í þjóðlífinu, en gæta þess jafnframt, að áhrif
þeirra verði eðlileg. Kuht fórust meðal annars
orð á þessa leið:
Hvítum mönnum er í blóð borin andúð á'negr-
um. Sú andúð á ekkert skylt við kynþáttahatur
eða drottnunargirni. I Suðurríkjunum njóta negr-
arnir ekki sömu réttinda og hvítir menn. Þeir
lifa því þar mikið út áf fyrir sig, enda kunna þeir
því vel. Hvítir menn sækja heldur ekki eftir neinu
samlífi við þá svörtu. Engum hvítum manni er
ráðlegt að sækja samkomustaði negranna. Þar éta
því hvorir úr sínum poka.
I Suðurríkjunum standa negrarnir á fremur
lágu menningarstigi. Þeir búa í slæmum íbúðum.
Þrifnaðurinn er af skornum skammti, barna-
16 VINNAN