Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 17

Vinnan - 01.02.1952, Blaðsíða 17
mergðin mikil og barnadauði miklu meiri en hjá hvítum mönnum. í Norðurríkjunum er þessu allt öðru vísi farið. Þar hafa negrarnir fullt jafnrétti við þá hvítu og í sumum ríkjum forréttindi fram yfir þá. Iðnaðar- þróunin er ör um þessar mundir í Norðurríkjun- um og mikill skortur á vinnuafli í iðnaðinum. Negrarnir færa sig því norður á bóginn og kom- ast í vinnu í verksmiðjunum. Þegar þeir koma að sunnan, eru þeir fákænir og félagslega vanþrosk- aðir. Þeir eru nægjusamir um húsnæði og lífsþæg- indi í fyrstu. En verkalýðshreyfingin tekur þeim opnum örmum í Norðurríkjunum. Þeir eru teknir inn í félögin og látnir njóta sömu kjara og þeir hvítu. Brátt gera þeir sömu kröfur til lífsins og hvítir menn. Verkalýðshreyfingin styður þá með oddi og eggju. En negrinn er haldinn minni- máttarkennd og er síkvartandi. Hann tortryggir þá hvítu og heldur jafnvel, að trúnaðarmenn verkalýðshreyfingarinnar séu að hlunnfara sig. Þetta verkar illa á hvíta manninn, sem hefur gert negrana að samstarfsmönnum sínum og jafningj- um í félögunum. Bæjarfélögin og ríkin byggja yfir fátækt fólk, sem býr í vondu húsnæði. Mikið af þessu nýja húsnæði fellur negrunum í hlut. Þeir eru fljótir að mannast í hinu nýja umhverfi, þrifnaðurinn vex ört, barnadauðinn minnkar, en barnsfæðingar halda áfram að vera tíðar. Negr- unum fjölgar því mikið í Norðurríkjunum. Mörg hvít hjón eignast tvö börn á langri ævi, en negra- hjónin eignast oftast sex til tólf börn. Negrarnir búa oftast í bæjarhlutum út af fyrir sig. Þeir kunna því vel, enda flýr hvíti maðurinn negra- hyggðina eftir mætti. Oft flyzt negrafjölskylda í bæjarhverfi hvítra manna. Þá flytja þeir hvítu, sem næstir eru, í burtu, strax og þeir geta, en negrar koma í þeirra stað. Eftir nokkur ár er hverfið oftast orðið alsvart. Þannig eru mörg hverfi í stórborgunum orðin albyggð negrum, þótt þau fyrir nokkrum árum væru efnamannahverfi hvítra manna. Negrarnir gegna margþættum trúnaðarstörfum í verkalýðshreyfingunni, en flestum veigalitlum. Fátítt er, að þeir séu formenn félaga, en þeir eru oft í stjórn og trúnaðarmenn á vinnustað o. s. frv. Þeir eru góðir verkamenn og friðsamir. Kynþátta- deilur eiga sér ekki stað í Norðurríkjunum, og aftökur negra án dóms og laga eru fjarstæða. Verkalýðshreyfingin í Norðurríkjunum berst fyrir velfarnaði negranna, og henni hefur orðið mikið ágengt. Hvort sú barátta leiðir til þess að Gamalt negrahverfi, sem nú verið að rífa í Chieago. svarti kynstofninn verði fjölmennari en sá hvíti í Bandaríkjunum, þegar tímar líða, getur cnginn sagt um nú,'en ýmislegt bendir til þess, að svo geti farið. En jafnvel þótt þetta væri yfirvof- andi, mun verkalýðshreyfingin halda áfram bar- áttunni fyrir heill og hag negranna, „því að þeir eru menn eins og við“. Þannig kemst Kuht að orði, að lokum. Við verkamannaskólann í Madison hlýddum við á prófessor Posey, sem talaði um negravanda- málið í Bandaríkjunum. Hann nefndi erindii sitt: „Negrinn og kommúnisminn“. Prófessorinn er negri. Posey sagði meðal annars: Eg er fyrrverandi verkamaður og hef verið í verkalýðshreyfingunni. Eg tala því af reynslu. Verkalýðsfélögin hafa verið sverð og skjöldur negranna. Þau hafa veitt þeim jafnrétti innan hreyfingarinnar og búið þeim sama kaup og vinnutíma og hvítir menn njóta. Enn þá eru verka- lýðsfélögin þó ekki fær um að veita negrunum VINNAN 17

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.