Vinnan - 01.02.1952, Qupperneq 18

Vinnan - 01.02.1952, Qupperneq 18
jafnrétti til vinnu í framkvæmd. Negrinn er tek- inn síðastur í vinnu og látinn hætta fyrstur, ef fækka þarf starfsfólki. I sex ríkjum í Bandaríkj- unum eru í gildi lög, sem skylda atvinnurekendur til þess að taka negra í vinnu, ef þá vantar verka- fólk. Ef atvinnurekandi verður uppvís að því að hafa neitað manni um vinnu vegna litarháttar hans, er hann skaðabótaskyldur samkvæmt þess- um lögum. Nokkrir atvinnurekendur hafa verið dæmdir eftir lögunum í þungar fésektir. í Norðurríkjunum eru sameiginlegir skólar fyrir hvíta menn og negra. En í Suðurríkjunum eru skólarnir aðskildir. Það væri hagkvæmara að hafa skólana aðskilda, en negraskólarnir dragast alltaf aftur úr. I negraskólana fást ekki góðir kennarar, hreinlæti er minna en í sameiginlegu skólunum og kröfur til húsnæðis og aðbúnaðar verða minni. I Suðurríkjunum varðar við lög að hýsa negra í gistihúsum hvítra manna eða veita þeim þjón- ustu meðal þeirra. Negrarnir eru ekki kommúnistar fremur en hvítir menn. En kommúnistar róa ákaft undir á meðal negranna og færa sér negravandamálið óspart í nyt. Ef negri verður fyrir árás eða óþæg- indum, setja kommúnistar heimspressu sína í gang og láta hana hrópa um múgmorð og negraofsóknir. Ef hvítur maður verður fyrir sams konar árás, gerir enginn veður út af því. Negrarnir vilja að vísu nota dekur kommúnistanna við sig til þess að ýta undir þá hvítu um að gera sitt til þess, að negrarnir nái fullu jafnrétti við aðra borgara í Bandaríkjunum. En flestir leiðandi menn á meðal negranna eru andkommúnistar. Þeir ætla sér að ná settu marki í jafnréttisbaráttunni með lýðræðis- legum aðferðum. Þeim hefur orðið mikið ágengt á síðustu tíu árum. C. I. O. á sinn mikla þátt í þeim góða árangri. Að lokum sagði Posey eftirfarandi sögu: Þegar ég var í skóla, vann ég að nokkru fyrir mér með því að vinna í eldhúsi í gistihúsi nokkru í frí- stundum mínum. Með mér vann hvítur skóla- bróðir minn. Við vorum miklir mátar, en leiðir okkar skildust að loknu prófi. Eg varð kennari við háskóla og hvarf því af vinnumarkaðinum. Eftir nokkur ár gisti ég í gistihúsinu, sem við unnum í. Þá var vinnufélagi minn og skólabróðir orðinn forstjóri fyrir gistihúsinu. Sérþekking hans úr eldhúsinu, varð honum til framdráttar á frama- brautinni. En þótt ég hefði unnið alla ævi í eld- Framhald á 28. síðu. Járnkarl skrifar: Um flótta fró framleiðslustörfum og mannvirðingar. VIÐUBKENNT ER ÞAÐ, hve mikil sókn er frá bein- um framleiðslustörfum í þjóðfélagi Islendinga. Skrifstofu- stéttin stækkar, samtímis því sem fækkar þeim mönnum, sem nema verðmæti beint úr skauti náttúrunnar. Og enda þótt viðurkennt sé einnig, að nú þurfi færri menn til framleiðslustarfa en áður vegna mikilla tækniframfara, þykir breytingin samt mjög um of. Því er jafnan við borið, að skrifstofustörf og önnur opinber þjónusta og ýmiss konar viðskipti séu léttari og þægilegri en erfiðis- vinna til sjávar og sveita og auk þess betur borguð. Lífs- þægindin verði því meiri við þessi störf og afkoman tryggari að ógleymdum mannvirðingunum. En sé þessu þann veg farið, liggur í augum uppi, að framleiðslustörf- in, þ. e. störf þess, sem jörðina yrkir, fiskinn veiðir eða býr til gagnlegar vörur úr innlendum eða erlendum hrá- efnum, eru verr borguð en vert er. Of mikill hluti þess verðmætis, sem hinar vinnandi hendur skapa, sé frá þeim tékinn og fenginn hinum, er ekki framleiða verðmæti beinlínis, hvort sem þeir nú hanga með einhverjum hætti utan í atvinnurekstrinum eða gegna eirihverjum störfum í þágu samfélagsins. Mér skilst að minnsta kosti, að svo hljóti að vera, ef þessi algenga skýring á flóttanum frá framleiðslustörfunum er ekki gripin úr lausu lofti. Nú leikur það víst ekki á tveim tungum, að framleiðslu- störfin séu grundvöllur allrar velmegunar þjóðfélagsins, vellíðunar og lífsþæginda allra stétta, og það er því ærið hrapalleg stefna, ef menn eru flæmdir frá þeim vegna fátæktar og skorts á lífsþægindum. Það er annars hreint ekki einleikið, hve gífurlegt kapp- hlaup er um ábyrgðarmiklar stöður og hve metnaður sumra og sókn eftir því að komast áfram, eins og það er kállað, er áberandi. Þetta er ef til vill ekki ný bóla, en þó hvarflar það að óbreyttum almúgamanninum, hvort hér sé allt með felldu. Eru það ef til vill lífsþægindin og virðingin einvörðungu, sem um er almennt keppt, og getur það vérið, að ábyrgðin sé, eins og á málum er haldið, hlutfallslega minni, jafnvel allmiklu minni, en sem svarar laununum og virðingunni? Metorðin eiga þó helzt ekki að gera mikið meira en jafngilda vandanum. Og í framhaldi af þessum þankabrotum skýtur upp þeirri spurningu, hvort ekki þurfi, þegar öllu er á botninn hvolft, meira þrek og meiri dug til að vera „bara“ verkamaður, bóndi, iðnaðarmaður eða sjómaður, en þó ánægður með hlutskipti sitt, heldur en embættismaður með hvítt um hálsinn. Það krefst þó alltaf að auki þreks til að standast freistingar hæpinna metorða. Við skulum hugleiða þetta. Það er stundum ekkert á móti því að hafa endaskipti á hlutunum. 18 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.