Heimilispósturinn - 15.02.1951, Qupperneq 10

Heimilispósturinn - 15.02.1951, Qupperneq 10
JOSEPH E/McDOUGALL: Drottningin í járnbrautarvagninum Ég sá hana fyrst, þegar hún kom inn um hóteldyrnar, og varð strax gagntekinn af hrifn- ingu. Hún bar sig eins og ung og fögur drottning, og glæsileiki hennar og yndisþokki var meiri en orð fá lýst. Ég er enginn heimalningur og hef séð margt í veröldinni, en ég held, að ég hefi aldrei orð- ið eins hrifinn af neinu og af fegurð þessarar ungu stúlku. Þegar hún kom inn í anddyr- ið, hitti hún ungan, dökkhærðan mann, sem leit út fyrir að vera Suðurlandabúi. Mér virtist hann vera þungbúinn á svipinn, og hann yrti varla á hana, þegar hann leiddi hana inn í borðsal- inn. Hljómsveitin var að leika Ljóða-ljóðin; ég man vel eftir því. Ég man eftir því að orðin í ljóði Salómons þljómuðu í eyr- um mínum, þegar ég gekk áð lyftunni. „Hversu fögur ertu, vina mín! Hversu fögur ertu!“ Ég drakk ekki mikið með matnum, og ekki heldur seinna. Ég var einhvern veginn ekki í skapi til þess. Ég hélt til brautarstöðvarinn- ar, þar sem kvöldlestin beið, og sté upp í einn vagninn. Ég var með viskíflösku í frakkavasa mínum og hengdi hann því var- lega upp, svo að ekki sæi á tapp- ann. Vagninn var næstum auður. Það sat stúlka 1 næsta sæti við mig, og það var hún. Við vor- um enn ein í vagninum, þegar lestin ók af stað. Hún horfði út um gluggann, enda þótt það væri orðið svo dimmt, að ekki var hægt að sjá neitt. Ég leit á hana og mér fannst andlit hennar vera orðið að grímu, fallegri en stirðnaðri grímu. Ég var feginn, að ég skyldi vera ódrukkinn, og fór að velta því fyrir mér, hvort ég ætti að dirfast að yrða á hana. Ef ég þegði, gæti ég horft á hana alla leið til Buffalo; ef ég yrti á hana og hún anzaði mér ekki, yrði ég annaðhvort að fara inn í reykingavagninn eða sitja þarna vandræðalegur í þrjá klukkutíma. Eftir stundarkorn kallaði ég á lestarþjóninn og bað hann um kodda. Þegar hann var að koma honum fyrir undir höfði mínu, spurði hann stúlkuna, hvort hún vildi ekki fá annan, og ég bauð henni minn. Hún þáði koddann með þökkum, en síðan þögðum við eins og áður. Loks stóðst ég ekki mátið lengur. Ég ákvað að ganga beint til verks. „Mætti bjóða yður glas?“ Hún starði á mig andartak með rannsakandi augnaráði og sagði svo: ,,Já, þakka yður fyrir.“ Ég lét þjóninn setja upp borð og bað um sódavatn. Við fengum okkur einn og síðan annan, rétt á eftir. Hún var alveg laus við alla ástleitni. Rödd hennar var djúp og hljóm- 8 HEIMILISPÓSTURINN 5 $ $

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.