Heimilispósturinn - 15.02.1951, Page 15

Heimilispósturinn - 15.02.1951, Page 15
það þó engu að síður satt. Litli gamanleikurinn okkar í gær- kvöldi leysti mig frá tryggðar- heiti, sem hefur haldið mér fang- inni í mörg ár, enda þótt annar aðili hirti ekkert um sitt heit. Og ég er þakklát fyrir, að þú gafst mér frelsi mitt.“ Svo var eins og rithöndin breyttist örlítið. „Þetta ætti ég að minnsta kosti að segja, en ég er hrædd um, að ég meini það ekki í fullri alvöru. Eg hélt að það yrði auð- veldara, ef ég drykki nógu mik- ið. Ég finn nú óljóst, að ég þrái það, sem þú getur ekki gefið mér aftur — órofa tryggð mína. Guð hjálpi mér í einmanaleik mínum og frelsi!“ Það var engin undirskrift. Ég gekk hægt að lyftunni, lok- aði töskunum mínum og hringdi á þjóninn. Það var dauf angan af dýru ilmvatni í herberginu. „Hvað finnst yður undarlegt við það, þó ég hafi rauðmaga í bandi ? Fjöldi fólks á gullfisk í skál!“ Húsráð Myglublettir í fötum hverfa, ef þeir eru fyrst bleyttir vel, síðan nudd- að sápu á þá og að lokum krítar- dufti. Nuddið þessu vel inn, og þvoið siða>n á venjulegan hátt. Til þess að mjólkin sjóði ekki út úr pottinum, má bera ofurlitla feiti þumlungsbreidd á innri rönd hans. Flaueli, sem er mjög hrukkótt, má halda yfir skál með sjóðandi vatni, svo að ranghverfan viti að vatninu. Fara þá hrukkurnar og flauelið verð- ur sem nýtt. Haframjöl mýkir hörundið ogbleik- ir það. Sérílagi er það gott á hend- urnar eftir þvott. Þegar hendurnar hafa verið þurrkaðar, er þeim dýft ofan í haframjölið og það nuddað vel inn í hörundið. Línsterkju ætti ávallt að blanda úr sápuvatni. Það gerir það að verk- um, að járnið límist ekki við, og gljá- inn verður miklu fegurri. Silkisokka á að þvo í heitu, en ekki sjóðandi vatni. Búið til sápu- kvoðu, en nuddið ekki sápunni inn í sokkana; látið þá liggja í kvoðunni %—1 klst. og skolið þá i köldu vatni. Til þess að þurrka þá, er hægt að vefja þá innan í handklæði, eftir að þeir hafa verið undnir. Að lokum má straua þá með járni, sem er ekki of heitt. Óhreint veggfóður má hreinsa með gömlu hveitibrauði. Brauðið á að vera að minnsta kosti þriggja daga gam- alt, og veggirnir eru nuddaðir laust með því, niður á við. Mislita bómullarkjóla má aldrei hengja til þerris út í sólskin. Heng- ið þá í skuggann. Eins verður að varast að straua þá með of heitu járni, því að þá upplitast þeir mjög fljótt. ____ Það er fyrirhafnarlitið, að þvo veggina í eldhúsinu, ef þér gerið það meðan þeir eru votir af gufu. Þá þarf ekki annað en að fara yfir þá með hálfþurrum klút og sápu. 13 9 9 9 HEIMILISFÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.