Heimilispósturinn - 15.02.1951, Side 17

Heimilispósturinn - 15.02.1951, Side 17
„Þáð er mín skoðun,“ sagði gamli maðurinn, ,,að líki við- skiptavini ein vörutegund, þá muni hann koma aftur, þegar hann vanhagar um aðra. Jafnvel þó að hún sé dýrari.“ ,,Er það þá satt, að þér seljið ástardrykk?“ spurði Alan. „Ef ég seldi ekki ástardrykk,“ sagði gamli maðurinn, um leið og hann teygði sig eftir annarri flösku, „hefði ég ekki sagt yð- ur frá hinni blöndunni. Það er aðeins þegar maður er fær um að uppfylla óskir fólks, að mað- ur getur leyft sér að vera svona opinskár." „Og þessi drykkur," sagði Al- an. „Er hann ekki aðeins —“ „Nei, nei,“ sagði gamli mað- urinn. „Áhrif hans eru varan- leg. Hann verkar strax og varir til eilífðar.“ „Nú gengur alveg fram af mér,“ sagði Alan. „Drykkurinn," sagði gamli maðurinn, breytir kulda í ást og fyrirlitningu í aðdáun. Gefið ungri stúlku örlítið af þessum drykk — bragðið finnst ekki í appelsínusafa, súpu eða víni — og hversu fjörug og galsafengin sem hún er, mun hún gjörbreyt- ast. Hún mun ekki þrá annað en einveru og yður.“ „Ég á bágt með að trúa þessu,“ sagði Alan. „Hún er svo mikið fyrir samkvæmi." „Hún mun ekki hafa gaman af þeim framar,“ sagði öldung- urinn. „Hún verður hrædd um yður fyrir öðrum stúlkum." „Verður hún þá afbrýðisöm?“ hrópaði Alan glaður. „Mín vegna?“ „Já, hún mun ekki hugsa um annað en yður, þegar hún hef- ur drukkið þetta. Hún mun ekki sjá sólina fyrir yður.“ „Dásamlegt!“ hrópaði Alan. „Hún mun vilja fylgjast með öllu, sem þér gerið,“ sagði gamli maðurinn. „Hún mun vilja vita allt, sem kemur fyrir yður dag hvern. Hvert orð. Hún mun vilja vita, hvað þér eruð að hugsa, hversvegna þér brosið, og hversvegna þér eruð dapur á svipinn.“ „Þetta er ást!“ hrópaði Alan. „Já,“ sagði öldungurinn. „Hún mun gæta yðar eins og sjáaldurs auga síns. Hún mun gæta þess, að þér verðið ekki þreyttur, að þér sitjið ekki í dragsúg, að þér vanrækið ekki máltíðirnar. Ef þér komið klukkutíma of seint heim, verð- ur hún dauðhrædd. Hún heldur, að þér séuð dáinn, eða að ein- hver drós hafi krækt í yður.“ „Ég get varla ímyndað mér, að Díana geti orðið þannig!“ hrópaði Alan frá sér numinn af gleði. „Þér munuð ekki þurfa að ímynda yður neitt,“ sagði gamli maðurinn. „En meðal annarra orða, af því að léttúðardrósir verða nú alltaf til, og ef þér kynnuö seinna meir að misstíga yður eitthvað þá þurfið þér ekki að hafa áhyggjur af því. Hún mun fyrirgefa yður að lokum. Hún mun auðvitað verða ákaflega sár, en hún mun fyrirgefa yð- ur — að lokum.“ „Það mun aldrei koma fyrir,“ sagði Alan ákafur. „Auðvitað ekki,“ sagði gamli maðurinn. „En ef það kæmi fyrir, þurfið þér ekki að hafa áhyggjur út af því. Hún mun aldrei skilja við yður. Og hún S 2 5 HEIMILISPÓSTURINN 15

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.