Heimilispósturinn - 15.02.1951, Blaðsíða 18

Heimilispósturinn - 15.02.1951, Blaðsíða 18
Tom Conway í myndinni „Sakamálarétturinn". mun að sjálfsögðu aldrei gefa yður minnsta tilefni til — óró- Ieika.“ „Og hvað kostar þessi dásam- lega blanda?“ spurði Alan. „Hún er ekki eins dýr og hanzkahreinsunarefnið, eða lífs- hreinsarinn, eins og ég kalla það stundum,“ sagði öldungurinn. Nei. Það kostar fimm þúsund dollara, aldrei eyri minna. Mað- ur verður að vera eldri til þess að geta leyft sér slíkt. Maður verður að spara til þess að geta keypt það.“ „En ástardrykkurinn ?“ spurði Alan. „Ó, hann,“ sagði gamli mað- urinn, um leið og hann dró út borðskúffuna og tók upp úr henni lítið og hálf óhreint glas. „Hann kostar aðeins einn doll- ar.“ „Ég á ekki orð til að þakka yður,“ sagði Alan, þegar öldung- urinn fór að hella í glasið. „Ég vil þóknast viðskiptavin- um mínum,“ sagði gamli mað- urinn. ,,Þá koma þeir aftur, seinna á ævinni, þegar þeir eru orðnir efnaðir, og kaupa þá dýrari blöndur. Gerið þér svo vel. Þér munuð sanna til, að drykkurinn er mjög áhrifa- mikill.“ „Þakka yður fyrir,“ sagði Alan. „Verið þér sælir.“ „Hittumst heilir,“ sagði gamli maðurinn. A 16 HEIMILISPÖSTURINN 9 2 2

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.