Heimilispósturinn - 15.02.1951, Qupperneq 31
Birger Malmsten og Eva Stiberg í kvik-
myndinni Eva. (Sjá kvikmyndaopnu, bls. 32).
íð með fögnuði. — en
hvergi sást Louise. Og
þegar aftur varð bjart
í salnum, immu tárin nið-
xtr kinnar hennar. Faðir-
inn hristi höfuðið og
Jkvaðst fara heim til
sín sama kveldið. Hann
skiidi það ekki, að allur
sá hluti myndarinnar,
sem Louise hafði leikið í,
hafði veriö klipptur frá.
Ef hún hefði haft leik-
gáfu, sagði hann, þá
hefði það aldrei verið
gert — þetta væri vitn-
isburð.ur um getuleysi
hennar. Louise lifði þessi
vonbrigði af — sjúkra-
bifreiðin sótti hana eins
og svo margar aðrar.
Önnur ung stúlka lék
í sjö myndum, og í engri
þeirra var hún sýnd.
Brezkur liðsforingi kom
nýlega til Hollywood og
fékk undir eins allstórt hlut-
verk. Hann var fríður sýnum og
gáfaður, gentleman út í yztu
æsar, og allir spáðu honum
Ijómandi framtíð. Við skulum
sjá, hvað áhorfendurnir segja,
sagði forstjóri kvikmyndafé-
lagsins, en það er svo sem
engin hætta á öðru, en að þeir
verði hrifnir, ef ég þekki þá
rétt. En áhorfendurnir fengu
aldrei að segja álit sitt um liðs-
foringjann, því að allt hlutverk
hans var klippt burtu. Meðan
hann var að bíða eftir nýjum
starfa, komst hann í fjárhags-
kröggur, gaf út ávísanir, sem
engin inneign var fyrir, og fyrir
skömmu fannst lík hans í
höfninni í San Pedro.
Nauðsyn krefst þess, að mað-
urinn með skærin klippi úr
mörg af smærri hlutverkunum.
Um leið sker hann í sundur von-
ir og baráttu margra byrjenda,
sem svo eiga sér einskis annars
úrkosta en — sjúkrabifreiðina.
X.
Nokkuð löng bið.
Forstöðumaður náttúrugripasafns-
ins vaknaði eina sunnudagsnótt um
þrjúleytið við það, að síminn hringdi.
Það heyrðist veik rödd í símanum:
,,Er þetta forstöðumaður Náttúru-
gripasafnsins ? Getið þér sagt mér,
hvenær safnið verður opnað næst?“
„Hvern fjandann meinið þér með
því að hringja mig upp um miðja
nótt, til þess að spyrja að slíku?
Safnið verður ekki opnað fyrr en á
mánudaginn ?“
„Ekki fyrr en á mánudaginn?"
„Nei.“
,,Ja, það getur orðið nokkuð óþægi-
legt fyrír mig. Ég er nefnilega lok-
aður inni i safninu."
.9 9 5
BEIMILISPÖSTURINN
29