Vinnan


Vinnan - 01.09.1992, Síða 5

Vinnan - 01.09.1992, Síða 5
5 Níels S. 01- geirsson.for- maður Félags matreiðslu- manna og starfsmaður sameiginlegrar skrifstofu þeirra, kjötiðnaðar- manna, bakara- sveina og mjólk- urfrœðinga, (til hœgri) og Karl Kristinsson, for- maður Félags íslenskra kjöt- iðnaðarmanna, í nýju húsnæði stéttaifélaganna fjögurra. Sameiginleg þjónustuskrifstofa matreiðslumanna, kjötiSnaöarmanna, bakarasveina og mjólkurfræ&inga: Mibsvæ&is í Mjóddinni Fjögur stéttarfélög sameinuöust í vetur um þjónustuskrifstofu, og þaö er ef til vill tímanna tákn, aö eftir miklar vangaveltur um staösetningu varö ofaná að kaupa húsnæöi í húsinu númer þrjú við Þarabakka í Mjóddinni í Breiðholti. Það var síö- an innréttað á einkar smekklegan hátt með sérstöku tilliti til þeirrar starfsemi sem þar fer nú fram. - Hér erum við miðsvæðis fyrir all- flesta félaga, hvort sem þeir eiga heima í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ eða Hafnarfirði, fyrir utan að hér er stutt í alla þjónustu og nóg er af bílastæðum, segir Níels S. Olgeirsson, formaður Fé- lags matreiðslumanna og annar starfs- manna nýju þjónustuskrifstofunnar, í samtali við Vinnuna. Félögin fjögur eru, auk Félags mat- reiðslumanna: Félag kjötiðnaðarmanna, Bakarasveinafélag Islands og Mjólkur- fræðingafélag Islands. Öll áttu félögin húsnæði fyrir, nema bakarasveinar, en þeir áttu eitthvert fé í sjóði sem safnað hafði verið til að leggja í húsnæðiskaup. Það voru kjötiðnaðarmenn og mat- reiðslumenn sem keyptu húsnæðið upp- haflega en buðu hinum félögunum síðan að vera með, og þau eiga öll jafna hluti í því. - Við sáum að félögin voru alltof langt hvert frá öðru og samstarf of lítið, þótt þau væru í skyldum greinum. Eftir að við fluttum hingað hefur félagslífið eflst og það er talsvert um að félagamir komi hingað í frítímum sínum til skrafs og ráðagerða. Hagræðing af þessu samstarfi er ótvíræð þar sem hvert félaganna um sig er lítið, en í þeim öllum samanlagt eru um 900 félagsmenn, segir Níels. Hvert félaganna hefur sitt aðsetur, en hafa sameiginlega þjónustuskrifstofu, kaffistofu og setustofu í húsnæðinu miðju og samnýta öll helstu tæki sem þarf til skrifstofuhaldsins. Einn og hálfur starfsmaður vinnur á þjónustuskrifstof- unni. Annarsstaðar í húsinu er um eitt hund- rað manna fundarsalur templara, sem fé- lögin taka á leigu fyrir félagsfundi. Rætt um someiningu Félögin fjögur hafa þegar stofnað með sér fræðslu- og kynningarbandalag, ásamt Félagi framreiðslumanna, til að taka á fræðslumálum, meðal annars end- urmenntun. Ætlunin er að koma upp sameiginlegu fagbókasafni og farið er að huga að sameiginlegum námskrármálum þessara iðngreina. Einnig er ætlunin að taka á EES- og Gatt-málum á næstunni, en þessir samn- ingar munu hafa talsverð áhrif á störf fé- lagsmanna. - Eitthvað er farið að ræða um sam- eiginleg lífeyrissjóðsmál en sú umræða er mjög skammt á veg komin. Einnig hefur hugmynd um samein- ingu félaganna verið viðruð, en ekkert rædd frekar, og enn hefur ekkert verið rætt um sameiginleg kjaramál, því þar hafa félögin farið hvert sína leið hingað til, segir Níels. Félag matreiðslumanna keypti Mat- reiðsluskólann í Hafnarfirði, sem Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari átti áður, og rekur hann nú. Rætt er um að koma á samstarfi innan hótel-, veitinga- og mat- vælagreina um nýtingu á skólanum. Vísir að samstarfi er reyndar þegar kominn, því félögin í hótel- og veitingagreinum hafa ásamt atvinnurekendum stofnað fræðsluráð sem hefur aðsetur í skólanum. VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.