Vinnan


Vinnan - 01.09.1992, Side 11

Vinnan - 01.09.1992, Side 11
laga við lífeyrissjóðinn yrðu minni en nú er. Þá telja rafiðnaðarmenn sig þegar vera með hagkvæman rekstur á hendi þar sem þeir samnýta skrifstofu félagsins og lífeyrissjóðsins. Sameining reynd Norðanlands Á Norðurlandi hafa átta lífeyrissjóðir átt með sér viðræður síðustu ár um sam- einingu. Drög að samkomulagi hafa ver- ið kynnt stjómarmönnum sjóðanna og ætlast er til að þau verði afgreidd fyrir sumarlok. Þeir bjartsýnustu telja að sam- eina megi sjóðina um næstu áramót en aðrir segja að lengri tíma þurfi til að koma sameiningu í kring. Jón Helgason, forstöðumaður Lífeyr- issjóðsins Sameiningar á Akureyri, segir það standa samningum fyrir þrifum að ekki hefur fengist tryggingafræðileg út- tekt á sjóðunum, sem hægt væri að leggja til grundvallar viðræðum. - Það hefur ekki tekist að fá mann til að gera tryggingafræðilega úttekt á sjóð- unum. Við teljum heppilegast að einn og sami maðurinn sjái um úttektina á öllum sjóðunum, segir Jón. Jón telur að ef einhver sjóðanna sker- ist úr leik muni það tefja fyrir samein- ingu. Hann segir þó að eftir því sem frá líður fjölgi þeim sem taka undir það sjónarmið að sameining sé skynsamleg. Lífeyrissjóðimir á Norðurlandi standa misvel. Það vekur athygli hversu rekstrarkostnaðurinn er mishár sem hlut- fall af tekjum. Á árinu 1990 greiddi Líf- eyrissjóður trésmiða rúm 17 prósent af iðgjöldum sínu í rekstrarkostnað og hlut- fall Lífeyrissjóðsins Iðju var rúm 12 pró- sent. Helsta skýringin á þessu háa hlut- falli er hversu sjóðimir eru litlir, en þeir em með smæstu sjóðum landsins. Jón Helgason tók á þessu ári við um- sjón með Lífeyrissjóði trésmiða og segir hann að rekstrarkostnaðurinn mun lækka frá því sem var. Álmennt er miðað við að rekstrar- kostnaður lífeyrissjóða fari ekki yfir 3-4 prósent af árlegum iðgjaldatekjum þeima. í landinu eru til um 85 lífeyrissjóðir, 11 Þrjár kynslóðir Islendinga hafa ólíkra hags- muna að gœta gagnvart lífeyrissjóðaklerfinu. Sú elstafékk lífeyrisréttindi þegar hún átti skatt eftir í ellilífeyrisaldur, miðkynslóðin gat notið lífeyrislána en á ekki tryggar ellilífeyr- isgreiðslur eins og vœnst var, en yngsta kyn- slóðin gætu átt á hættu að lífyerissjóðirnir verði orðnir gjaldþrota þegar hún hefur náð sínum efri árum. en starfandi lífeyrissjóðir em nokkru færri þar sem fáeinir sjóðir taka ekki lengur við iðgjöldum. Sjóðimir voru ým- ist stofnaðir á grundvelli starfsgreina, fé- lagssvæða eða að starfsmenn stórra fyrir- tækja mynduðu með sér sjóð. Fyrirtækja- sjóðir voru algengir hér áður fyrr, þegar fáir lífeyrissjóðir voru starfandi. Lífeyrissjóðakerfið er hvorki búið til af ríkisvaldinu né aðilum vinnumarkað- arins. Kerfið þróaðist meðfram almanna- tryggingakerfinu sem lög voru fyrst sett um 1946. Það vom einkum opinberir starfsmenn sem höfðu aðgang að lífeyr- issjóðum til að byrja með. Árið 1946 voru lífeyrissjóðir aðeins 15 og þeir flestir á vegum ríkisstarfsmanna, starfs- manna bæjarfélaga, bankamanna og starfsmanna stórra einkafyrirtækja. Þegar almannatryggingakerfið var endurskoðað árið 1962 voru lífeyrissjóðimir orðnir 50. Enn skorti á að allir landsmenn væru að- ilar að lífeyrissjóði og það var ekki fyrr en með samkomulagi milli Alþýðusam- bandsins og vinnuveitenda árið 1969 að forsendur sköpuðust til að tryggja öllum vinnandi mönnum aðgang að lífeyris- sjóði. Lífeyrissjóðimir voru umdeildir með- al verkafólks til að byrja með. Yngra fólk sá ekki ástæðu til að taka af kaupinu sínu til að leggja fyrir til elliáranna og þeir eldri sáu ekki fram á að ná því á starfsævinni að safna sér réttindum sem nokkru máli skiptu. Það var með ýmsu móti reynt að sann- færa fólk um ágæti lífeyrissjóða. Eldra fólk var stundum metið inn í sjóðina þannig að það fékk réttindi umfram þau iðgjöld sem það greiddi. Þetta þýddi vit- anlega aukin útgjöld sem voru hærri en efni stóðu til og með öðru, til dæmis að ekki var gengið ríkt eftir því að iðgjöld bærust skilvíslega; skekktu þessar ráð- stafanir grundvöll nokkurra lífeyrissjóða þegar í upphafi. Lífeyrissjóðslán voru boðin yngra fólki og það liðkaði fyrir samþykkt líf- eyrissjóða vegna þess að bankakerfið var lokað og oft erfitt að fá lán. Þá var ið- gjaldagreiðslum í sumum tilfellum kom- ið þannig fyrir að fyrsta árið greiddu launþegar eitt prósent tekna sinna í líf- eyrissjóð en atvinnurekendur eitt og hálft. Á næsta ári hækkaði hlutfallið upp í tvö prósent fyrir launþega og þrjú fyrir atvinnurekendur. Eftir fjögur ár var hlut- fallið komið í það horf sem samið var um á milli ASÍ og VSÍ, launþeginn VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.