Vinnan


Vinnan - 01.09.1992, Page 12

Vinnan - 01.09.1992, Page 12
greidd fjögur prósent tekna sinna og framlag atvinnurekenda var sex prósent. Misheppnaðar tilraunir til samræmingar Nokkrum árum eftir samkomulag Al- þýðusambandsins og vinnuveitenda var komið á skylduaðild launþega að lífeyr- issjóði og árið 1980 var öllum starfandi mönnum, atvinnurekendur meðtaldir, gert að eiga aðild að lífeyrissjóði. Tilraunir til að samræma lífeyriskerfi landsmanna hafa farið út um þúfur. Stjómvöld hafa beitt sér fyrir endurskoð- un á lífeyriskerfinu og eftir 11 ára nefnd- arstarf var árið 1987 lagt fram frumvarp um starfsemi lífeyrissjóða. Vegna and- stæðra hagsmuna ýmissa hópa hefur þetta frumvarp aldrei komið til umræðu á Alþingi. Þó var enn reynt og sumarið 1990 var skipuð 26 manna milliþinga- nefnd sem átti að fjalla um frumvarpið. Nefndin sem talin er sú stærsta í sögu lýðveldisins lauk störfum án þess að ná samkomulagi og kom það ekki á óvart. Þorgeir Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, segir for- ráðamenn lífeyrissjóðanna hafa beðið lengi eftir því að stjómvöld samþykktu frumvarp um starfsemi lífeyrissjóðanna. Hann sér ekki fram á að frá stjómvöldum komi það frumkvæði sem menn hafa beðið eftir. - Það verður hver og einn lífeyrissjóð- ur að skoða sína stöðu og taka ákvarðan- ir upp á eigin spýtur, segir Þorgeir. Síðustu misseri hafa samtök almenna vinnumarkaðarins, ASÍ og VSÍ, komið sér saman um ýmsar tillögur um fram- tíðarfyrirkomulag lífeyrissjóða og lagt til að frumvarpið frá 1987 taki mið af þess- um hugmyndum. Samvinna ASÍ og VSÍ er forsenda fyr- ir breytingum á lífeyrissjóðakerfinu þar sem launþegar og atvinnurekendur til- nefna stjómir sjóðanna. Það er þó tak- mörkum háð hversu miklar breytingar þessi samtök geta knúið á um. Þar kemur til ólík staða sjóðanna og jafnframt sam- anburðurinn við lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. Ríkisstarfsmenn em sér á báti með það að ríkissjóður stendur í ábyrgð fyrir lífeyrisgreiðslum þeirra. Lífeyriskerfi ríkisstarfsmanna hefur löngum verið þymir í augum aðila al- menna vinnumarkaðarins sem telja fé skattborgaranna sé notað til að halda uppi háum lífeyrisgreiðslum. Ríkisstarfs- menn benda á að lífeyririnn sé hluti af kjörum þeirra og hafi oftsinnis verið not- aður af hálfu ríkisvaldsins sem rökstuðn- ingur fyrir lágum launum ríkisstarfs- manna. Ó\ík staða lífeyrissjóða Afkoma lífeyrissjóðanna er mjög mis- jöfn og verður að einhverju leyti skýrð með skrykkjóttri sögu kerfisins. Al- mennu lífeyrissjóðunum, það er þeim sem standa fyrir utan lífeyrissjóði ríkis- starfsmanna, er gjaman skipt í tvo hluta eftir afkomu. Annarsvegar eru þeir sjóðir sem em í Landssambandi lífeyrissjóða og hinsvegar þeir sjóðir sem mynda Samband almennra lífeyrissjóða, oft kallaðir SAL-sjóðir. Sjóðirnir í Lands- sambandi lífeyrissjóða standa betur en SAL-sjóðimir og kemur margt til; þeir eru rótgrónari, eru oft í eigu efnameiri starfsstétta og njóta góðs af fastmótuðu skipulagi. Lífeyrissjóðssamböndin tvö eru í raun eðlisólík. Landssamband lífeyrissjóða er laustengt samband sjóða sem eru full- komlega sjálfstæðir og sækja sama og enga sameiginlega þjónustu til sam- bandsins. Landssambandið hefur á sínum snæmm einn starfsmann og það er helst miðlun upplýsinga milli sjóðanna sem starfsmaðurinn vinnur að. Ekkert sam- ræmi er á milli innbyrðis reglna og starfshátta lífeyrissjóðanna í Landssam- bandinu. Samband almennra lífeyrissjóða, SAL, tók til starfa í kjölfar samninga á milli Alþýðusambandsins og vinnu- veitenda.um stofnun lífeyrissjóða. SAL samræmir bótarétt þeirra lífeyrissjóða sem eru í sambandinu og veitir þeim ýmisskonar sérfræðiaðstoð, til dæmis við lífeyrisúrskurði, innheimtu, ávöxtun eigna og tryggingafræðileg atriði. Starfs- reglur SAL-sjóða eru sæmræmdar og sameiginleg skrá er haldin yfir þá sjóðs- félaga í aðildarsjóðum sambandsins. Jafnframt hefur SAL umsjá með lífeyris- greiðslum aðilarsjóðanna. Stærstu sjóðimir í Landssambandi líf- eyrissjóða em Lífeyrissjóður versl- unarmanna, Samvinnulífeyrissjóðurinn, Starfsmannasjóður Reykjavíkurborgar, Lífeyrissjóður Verkfræðinga og Lífeyris- sjóður lækna. Þessir sjóðir eru eldri en flestir lífeyrissjóðir í Sambandi almennra lífeyrissjóða. Lífeyrissjóður lækna var stofnaður árið 1966 eða um sama leyti og læknar sögðu sig úr BSRB. Flestir eldri læknar héldu áfram að borga í þá lífeyrissjóði sem þeir höfðu átt aðild að um árabil. Þegar Lífeyrissjóður lækna var stofnaður var fyrir Elli- og örorkulífeyrissjóður lækna og var rætt um að sameina sjóðina en ekkert varð úr þeim fyrirætlunum. Það voru því ungir læknar sem öðrum fremur gerðust aðilar að Lífeyrissjóðn- um. Sjóðurinn hefur náð að vaxa án þess að bera mikla lífeyrisbyrði. Að sögn um- sjónarmanns sjóðsins, Ragnars Guð- mundssonar, greiðir sjóðurinn 5-6 pró- sent af tekjum sínum í lífeyri. Eign sjóðsins er um 3 milljarðar króna og ná- lægt eitt þúsund læknar greiða iðgjöld. Fyrir þrem ámm var gerð trygginga- fræðileg úttekt á sjóðnum og niðurstaðan var sú að sjóðurinn stóð vel undir skuld- Með sameiningu lífeyrissjóða bygginga- manna og málmiðnaðarmanna telja forsvars- menn lífeyrissjóðanna aðframtíð þeirra hafi verið tryggð, og því geta félagsmenn horft nokkuð áhyggjulausir til elliáranna, hvað fjárhagslega afkomu varðar. bindingum sínum gagnvart sjóðfélögum. Enginn fastur starfsmaður er við Lífeyr- issjóð lækna en sjóðurinn er í húsakynn- um Læknafélags Islands og starfsmenn Læknafélagsins sjá um rekstur sjóðsins. Ragnar segir þrjú og hálft prósent ið- gjalda fara í reksturskostnað. Það er þó ekki án undantekninga að sjóðir í Landssambandi lífeyrissjóða standi undir skuldbindingum. Fyrir tveim árum tók Lífeyrissjóður verslunarmanna yfir Lífeyrissjóð apótekara og lyfjafræð- inga. Eignir Lífeyrissjóðs apótekara og lyfjafræðinga voru upp á 500 miljónir og aðild að sjóðnum áttu tæplega 500 manns. Að undangenginni trygginga- fræðilegri úttekt á báðum sjóðunum vora félagar í Lífeyrissjóði apótekara og lyfja- fræðinga samþykktir inn í Lífeyrissjóð verslunarmanna með þeim skilyrðum að lífeyrisréttindi þeirra væra skert um 15 prósent. Þorgeir Eyjólfsson er framkvæmda- stjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna og formaður Landssambands lífeyrissjóða. Þorgeir segir að forráðamenn fleiri sjóða hafi komið að máli við Lífeyrissjóð verslunarmanna til að ræða óformlega um upptöku í sjóð verslunarmanna. Þor- VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.