Vinnan - 01.09.1992, Blaðsíða 14
14
Húsavík:
á Norð -Austurlandi
Fjölmiölar flytja sjaldnast fréttir af
atvinnulífi í sjávarplássum þessa
lands nema illa gangi og eitthvað
hafi fariö úrskeiöis. Eftir þá böl-
móösumræöu sem reis og hné
manna á meðal og í fjölmiðlum á
öndveröu sumri ákvaö Vinnan að
hitta aö máli fólk á einhverjum þeirra
staða þar sem á ýmsu hefur gengiö
undanfarin ár og heyra í því hljóöiö.
Fyrir valinu uröu þrír útgeröarbæir á
Norð-Austurlandi: Húsavík, Raufar-
höfn og Þórshöfn.
Valið var aö vissu leyti tilviljana-
kennt, en þó höfö nokkur hliösjón af
því aö nefnt hefur veriö í umræðunni
aö tveir þessara staða, Raufarhöfn
og Þórshöfn, væru vart byggilegir og
ekki uppá þá púkkandi; jafnvel aö
réttast væri aö láta þá fara í eyði
frekar en kosta miklu fé til aö halda
þar uppi atvinnu. Frá Húsavík hafa
einnig komiö fréttir af erfiðleikum í at-
vinnumálum á undanförnum árum.
Afraksturinn af þessari ferö má sjá
á síðunum hér fyrir aftan. Ef hægt er
aö tala um einhverja heildarniöur-
stööu af samtölum við fólk á þessum
stööum má segja að vissulega sé
þar viö ýmsa erfiðleika aö etja. At-
vinnuleysi hafi veriö meira undan-
farna mánuöi en mörg undanfarin ár,
og ekki sjái fyrir endann á þeim.
Engu aö síður sé ekkert uppgjafar-
hljóö í fólki, og langt frá því aö þaö
telji stööuna vonlausa.
Þess ber aö geta aö ferðin var far-
in um miðjan júlí, en efnið endur-
skoöaö eftir föngum meö hliðsjón af
þeim tíöindum í atvinnumálum sem
uröu eftir mitt sumar.
Þorgrímur Gestsson
„Hér vantar
dugmikla
kapítalista"
segir Kári Arnór Kárason formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur
Undanfarin þrju ar hefur atvinnuleysi
verið meira á Húsavík en menn hafa
átt að venjast. Erfiðleikar hafa steðj-
aö að atvinnulífinu, meö gjaldþrotum
og uppsögnum, eins og víöar á
landinu. Þó hefur ekkert þeirra fyrir-
tækja sem eru buröarás atvinnulífs
Húsavíkur orðiö fyrir verulegum
skakkaföllum.
Tvö stærstu fyrirtækin, Fiskiðjusamlag
Húsavíkur og Kaupfélag Þingeyinga hafa
þó átt í erfiðleikum og þurft að segja upp
nokkrum tugum starfsmanna.
Afleiðingin var sú að atvinnuleysi varð
verulegt, mest í lok maí, en þá var 71 á at-
vinnuleysisskrá á Húsavík og 103 í sýsl-
unni allri. Þegar leið á sumarið var at-
vinnuleysi því sem næst útrýmt á Húsa-
vík, meðal annars með því að bæjarfélag-
ið fékk lán hjá Atvinnuleysistrygginga-
sjóði í sérstök verkefni á þess vegum,
meðal annars til hreinsunar í bænum og
„Það er varnarbarátta á öllum sviðum hér á
Húsavík en menn velta upp allskonar hug-
myndum um nýjar atvinnugreinar“, segir
Kári Arnór Kárason formaður Verkalýðsfé-
lagsins.
umhverfisverkefni ýmis konar. Það var
Verkalýðsfélagið sem kom því í kring að
bæjarfélagið fékk þennan styrk.
- Hér hefur verið nokkurt atvinnuleysi
nokkra mánuði á hverjum vetri undanfarin
ár, en dregið úr því fljótlega eftir áramót. I
ár dró talsvert hægar úr atvinnuleysinu en
verið hefur, og í maí var það meira en ver-
ið hefur í mörg herrans ár, segir Kári Am-
ór Kárason formaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur í samtali við Vinnuna.
Auk samdráttar í fiskvinnslunni er or-
saka þessa aukna atvinnuleysis á Húsavík
að leita í samdrætti í þjónustu, en þar hef-
ur verið aukning frá ári til árs þar til nú.
Þar er fyrst og fremst um að kenna sam-
drætti í heilbrigðisþjónustu, en þjónusta
við landbúnaðinn hefur einnig dregist
verulega saman, hvorttveggja úrvinnsla á
landbúnaðarafurðum og bein þjónusta við
fólk í sveitunum.
- Hér hefur til þessa verið talsverð kjöt-
vinnsla og við höfum þótt vera með ágæt-
ar afurðir. Ég veit ekki um framtíð þeirrar
atvinnugreinar ef áfram verður haldið að
skera niður sauðfé. Urvinnsla á mjólkuraf;
urðum hefur einnig verið talsverð. A
Húsavík eru framleiddar ýmsar gerðir osta
og jógúrts, meðal annars Baulujógúrt. Ef
innflutningur á mjólkurafurðum verður
leyfður er viðbúið að mjólkurbúið hér
lendi í erfiðleikum. Rekstur þess hefur
gengið mjög vel í gegnum árin og 25
manns hafa haft atvinnu við þessa fram-
leiðslu. Ef öll pökkun á neyslumjólk flyst
til Akureyrar, eins og gæti gerst í fram-
haldi af áliti sjömannanefndar, situr búið
hér eftir með framleiðslu , sem er í beinni
samkeppni við innflutning. Standist það
ekki samkeppni er hætt við að mjólkur-
framleiðslan, það er sjálfur kúabúskapur-
inn, flytjist meira og minna til Eyjafjarðar,
auk þess sem þeir misstu atvinnuna sem
starfa við hana hér; segir Kári Amór.
A Húsavík er ein af fáum saumastofum
á landinu sem hefur gengið þolanlega,
þótt borið hafi á verkefnaskorti undanfar-
ið, eftir að Alafoss fór á hausinn. Þar hafa
starfað milli 15 og 20 manns, flest rosknar
konur. í maí voru 15 þeirra atvinnulausar}
og einhverjar höfðu ekki vinnu í júní. I
VINNAN