Vinnan


Vinnan - 01.09.1992, Blaðsíða 15

Vinnan - 01.09.1992, Blaðsíða 15
VEfWSUBSfáÖGSÍ A HÚSAWK ufEYBfSSJOOUBNH BJOBG Hús Verkalýðsfélags Húsavíkur á Garðarsbraut 26. Þar er þjónusta fyrir flestöll stéttarfélög í Suður-Þingeyjasýslu, austan Vaðlaheiðar. I haust verður opnað nýtt félagsheimili verkalýðsfélaganna í húsinu. Sameinuð verkcalýðshreyfing í Suður-Þingeyjarsýslu Húsavíkur er eitt af elstu verkalýðsfé- lögum landsins. Félag verkakarla var stofnað árið 1911, en konumar stofnuðu sitt eigið félag, Verkakvennafélagið Von, árið 1918. Félögin voru sameinuð árið 1960 og verkalýðsfélagið rekur nú skrif- stofu í eigin húsi, á Garðarsbraut 26. Þar er ekki einungis þjónusta fyrir sjálft verkalýðsfélagið á Húsavík, sem nær raunar yfir alla Suður-Þingeyjarsýslu austan Vaðlaheiðar. Starfsmenn félagsins sinna einnig þjónustu fyrir tvö iðnaðar- mannafélög, Verslunarmannafélag Húsa- víkur og opinbera starfsmenn, auk þess sem lífeyrissjóðurinn Björg er þar til húsa. Þar með eru verkefni skrifstofu Verka- lýðsfélags Húsavíkur þó ekki upp talin. Formaður félagsins, Kári Arnór Kárason, var kjörinn formaður Alþýðusambands Norðurlands á þingi þess í haust, og þjón- usta sambandsins fluttist því til Húsavik- ur. Þrír starfsmenn vinna á skrifstofunni, í tveimur stöðugildum, og auk þess tvær skrifstofustúlkur, hvor í hálfu starfi. - Það hefur hvað eftir annað verið rætt á undanfömum árum, að rétt væri að sameina öll verkalýðsfélögin í Þingeyjar- sýslunum báðum, en ekkert ákveðið um það ennþá. Að því hlýtur þó að reka fyrr eða síðar, þar sem mikið hagræði yrði af slíkri sameiningu, segir Kári Arnór í sam- tali við Vinnuna. Eigið félagsheimili Verkalýðsfélagið keypti húsnæðið við Garðarsbraut fyrir tveimur árum og leigir út hluta þess. Nú hefur annar leigjandinn rýmt sinn hluta og þar er unnið að því að koma upp 60 manna fundasal og aðstöðu til félags- starfa, sem á að taka í notkun í haust. - Ætlun okkar er ekki síst að nota þennan sal til að halda þar námskeið, en við höfum haldið fimm til sjö námskeið á ári undanfarin ár, og þessi starfsemi fer vaxandi hjá okkur. Það færist líka í vöxt að félagsmenn sæki kvöldnámskeið í öld- ungadeild framhaldsskólans, en við greiðum 80 prósent námskeiðsgjaldsins, segir Kári Amór. Ekki hefur verið góð aðstaða til nám- skeiðahalda á Húsavík til þessa. Verka- lýðsfélagið hefur haldið námskeið sín í félagsheimilinu og þessi starfsemi hefur verið hálf hornreka, að sögn Kára. En nú verður breyting á. Námskeiðahald Verkalýðsfélags Húsavíkur á að hefjast með námskeiðum í ræðumennsku og fundasköpum, og fyr- irhuguð eru námskeið fyrir stjórnir og trúnaðarráð félaganna. júlí var lokað vegna sumarleyfa og verk- efni eru óráðin þegar því lýkur. Hrun Sov- étríkjanna og Austur-Evrópu hafði líka sín áhrif á Húsavík, því með þeim hrundi mikilvægur markaður fyrir afurðir Niður- suðuverksmiðjunnar þar, auk þess sem verðlag hefur lækkað á Þýskalandsmark- aði vegna aðgerða hvalfriðunarsinna. Nið- ursuðuverksmiðjan varð gjaldþrota og nú standa hús og búnaður ónotuð og ólíklegt er að hún verði endurreist í bráð. Nokkur þjónustufyrirtæki hafa orðið gjaldþrota að undanförnu, þar á meðal stærsta bílaverkstæðið og vélsmiðjan, en upp úr þrotabúinu risu þrjú smærri fyrir- tæki, blikksmiðja, vélsmiðja og bílaverk- stæði. Sama er að segja um slippinn. Hann fór á hausinn og úr rústum hans var stofn- að nýtt fyrirtæki sem hefur hafið starf- semi. Fiskeldisfyrirtækið í bænum fór ennfremur á hausinn en var endurreist og heitir nú Svarthamar. Þar var fyrst og fremst seiðaeldi, en nýju eigendumir hafa reynt fyrir sér með bleikjueldi. - Það er því varnarbarátta á öllum svið- um hér á Húsavík, segir Kári Amór, en menn velta upp allskonar hugmyndum um nýjar atvinnugreinar. Þar má nefna fram- leiðslu á þilplötum úr vikri, myndbanda- framleiðslu og hraðréttalínu í tengslum við kjötvinnsluna. En vandamálið við þessar hugmyndir er að þær verksmiðjur sem keyptar yrðu til landsins eru svo af- kastamiklar, að framleiðslan yrði meiri en innanlandsmarkaður gæti tekið við. Þá yrði að flytja þessar vörur út, en hér hafa menn ekki sölukerfi sem þarf til að afla nægilega mikilla markaða. Og að fara út í markaðssetningu upp á eigin spýtur er ein- faldlega of dýrt fyrir lítil fyrirtæki. Hér vantar einfaldlega áhættufjármagn og dugmikla „kapítalista” til að leggja fé í nýjar framleiðslugreinar, þótt ég geti ef til vill varla leyft mér að segja slíkt sem for- maður verkalýðsfélagsins. En Samvinnu- hreyfingin hefur verið sterk héma og kaupfélagið hefur átt að gera allt en þegar veldi þess minnkar kemur ekkert í staðinn, segir Kári Arnór Kárason formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur. VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.