Vinnan


Vinnan - 01.09.1992, Qupperneq 19

Vinnan - 01.09.1992, Qupperneq 19
19 Kristinn Lárussonformaður Verkalýðsfélags Þórshafnar: „Talsvert hefur verið um að aðkomufólk leiti eftir vinnu á Þórshöfn, og á síðastliðnu ári fjölgaði íbúum Þórshafnar um fimm prósent Þórshöfn ó Langanesi: Þar er hvorki bölmóður né svartsýni Líklega kgma fleirum í hug Færeyjar en Langanes þegar minnst er á Þórshöfn. Það kæmi ekki heldur á óvart þótt fleiri íslendingar ættu auðveldara með að rata til höfuðstaðar Færeyja en íslenska sjávarþorpsins Þórshafn- ar á Langanesi. Reynsla Kristins Lárussonar formanns verkalýðsfélagsins í bænum styður þessa tilgátu. Hann segist vera löngu hættur að reyna að útskýra fyrir fólki hvar á land- inu Þórshöfn sé, en segir í staðinn: „Far- ið til Húsavíkur og akið þaðan 220 kíló- metra eftir þjóðveginum“. Sú leið liggur fyrir Tjömes og Melrakkasléttu, um Raufarhöfn og þaðan 64 kílómetra leið fyrir Þistilfjörð og út á Langanes norðan- vert. Þórshöfn kemur á óvart. Þar er ekki að heyra á fólki bölmóð né svartsýni. Enda er oftast næg vinna í bænum og Kristinn segir að á tímabilinu fyrsta mars til 12. júní hafi skráðir atvinnuleysisdagar að- eins verið 97, sem jafngildi því að rúm- lega ein manneskja hafi verið án atvinnu allanjrann tíma. - í allt vor var rífandi vinna á Þórs- höfn, unnið tíu tíma á dag, frá klukkan sex á morgnana, og alla laugardaga. Enda hefur verið talsvert um það síðustu mánuðina að aðkomufólk leiti eftir vinnu, og á síðastliðnu ári fjölgaði íbúum hér um heil fimm prósent, úr 399 í 419, eða sem svarar fjórum til fimm fjölskyld- um, segir hann. Erfitt hefur verið að útvega öllum hús- næði í bænum, en fljótlega verður bætt úr því með tveimur parhúsum sem Tré- smiðjan Brú og Trésmiðja Kaupfélags Langnesinga eru að reisa fyrir peninga úr félagslega kerfinu og frá Þórshafnar- hreppi og verða annað hvort seld eða leigð. Það var þörf fyrir hverja vinnandi hönd á Þórshöfn fram eftir sumri. Allt niður í 13 ára gömul börn fá vinnu í frystihúsinu og 26 krakkar niður í 12 ára aldur vinna við fegrun og snyrtingu bæj- arins. Þegar Vinnan var á Þórshöfn, um mitt sumar, voru enn fleiri verkefni framundan á vegum sveitarfélagsins því Reinhard Reynisson sveitarstjóri var þá að leggja síðustu hönd á tillögur að nýju skipulagi í hjarta bæjarins. Þar er gert ráð fyrir að götur verði afmarkaðar betur en nú er, lagðar gangstéttir og komið upp bílastæðum og graseyjum. Þegar var haf- ist handa við þær framkvæmdir og um miðjan ágúst voru þær vel á veg komnar. Þegar halla tók sumri fór þó heldur að síga á ógæfuhliðina og atvinnulífið versnaði heldur. Lausráðið fólk hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar hafði ekki lengur fasta vinnu, en aftur á móti lifnaði heldur yfir loðnuverksmiðjunni, þar hafði verið tekið á móti hátt í 6000 tonn- um af loðnu um miðjan ágúst. VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.