Vinnan


Vinnan - 01.09.1992, Page 22

Vinnan - 01.09.1992, Page 22
22 Þórshöfn Tréhellur frá Skálanesi Tréhellur úr rekaviði af Langanesi. Þetta var hug- mynd sem Sigtryggur Sig- tryggsson trésmíðameist- ari hjá trésmíðaverkstæði Kaupfélagsins á Þórshöfn langaði til að athuga hvort vit væri í. - Við fórum með vörubíl út í Skálanes og hirtum búta sem ekki nýtast í annað og fluttum þá hingað. ítlunin er að fólk hendi þessum tréhellum ein- faldlega niður í grassvörðinn eða geri úr þeim þrep, og þær ættu að endast í ein tuttugu ár, án þess að þær séu einu sinni fúavarðar, segir Sigtryggur þegar við hittum hann fyrir utan trésmiðjuna þar sem fyrstu hellurnar liggja í stórum stöflum. I vetur sagaði hann bútana í tilraunaskyni í 10 til 15 sentí- metra þykkar skífur og til verksins var notuð gríðarmikil bandsög. Sögin sú er hluti af sögunarmyllu sem Kaupfélag- ið keypti frá Danmörku og er nú á Sauðanesi þar sem bænd- ur nota hana til að saga rekavið niður í staura og planka. - Það gekk ágætlega í sjálfu sér að saga þetta, en sagarblað- ið er þó heldur mjótt fyrir þessa sveru drumba. Það ætti þó varla að vera mikill vandi að fá breiðara blað í sögina, segir Sigtryggur Sigtryggsson. Lítið hefur selst af þessum rekaviðarhellum enn sem kom- ið er, enda lítil vinna verið lögð í „markaðssetningu“. En hafi einhver áhuga á að fá tré- stíg í garðinn sinn eða við sumarbústaðinn skal það upp- lýst hér að Sigtryggur hyggst selja hverja hellu á 100 krónur og telur að fermetrinn kosti átta til níuhundruð krónur, eftir því hvað þær eru stórar og hvemig þær raðast saman. Þeir koma aftur, þorskurinn og Joensen Hann tók þaö rólega um borö í trillunni sinni, Vota- nesi, hann Sveinbjörn Joensen, þegar við rölt- um niður á bryggju á Þórshöfn dag einn í byrj- un júlí. Fiskirí hafði verið tregt undanfarið, hann hafði verið að fá þetta 300 kíló í róðri síðustu vikurnar og sótt út fyrir Langanes. - En það var gott í vor. Þá fékkst nóg af þorski og ufsa, boltafiski, fast við land. Svo virðist hann hafa fært sig fjær og dreift sér þegar fór að líða á sumarið. En hann kemur aftur - nema hann sé kannski farinn alveg! segir hann og verður kímileitur, eins og hann hafi nú ekki trú á að slíkt og þvílíkt gerist. Sjálfur kemur Sveinbjöm aftur á hverju sumri. Hann er fæddur og uppalinn á Þórs- höfn en vinnur í Keflavík á vetrum. Á hverju vori kemur hann norður, hrindir Vota- nesinu á flot og fer á hand- færi. En hann er ekki aðeins Þórshafnarbúi. Eins og nafn- ið gefur til kynna er hann líka af færeyskum ættum. Það er því ekki undarlegt að hann skuli halda tryggð við sjóinn, það hlýtur að vera mikið salt í blóði manns sem getur státað af slíkum upp- runa. Þennan júlídag tók hann lífinu með ró, var að skipta um dýptarmæli í bátnum þegar okkur bar að, og beið eftir að færi að fiskast aftur. Hann er með 20 tonna kvóta á Votanesinu og átti eftir að fiska upp í um helming hans. Og Sveinbjöm Joensen virðist vera viss um að þorsk- urinn komi aftur þrátt fyrir allar hrakspár, og hann fari að mokfiska á Votanesið aft- ur, með nýjan dýptarmæli um borð. VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.