Vinnan


Vinnan - 01.09.1992, Page 26

Vinnan - 01.09.1992, Page 26
26 Raubinúpur / slipp Nú stendur fyrir dyrum að senda togarann Rauðanúp í slipp, því skipta þarf um vél og gera sitthvað fleira við hann. Búist er við stoppi í hálfan annan mánuð í haust af þessum sökum. - Við eigum 1200 tonna sfldarkvóta en engan sfldarbát, en í athugun er að reyna að nýta þennan kvóta, hugsanlega í samvinnu við sfldarverksmiðju SR hér á staðnum og hefja síldarfrystingu, og vinna jafnframt fisk af bátunum hér á staðnum. Einnig hefur verið rætt um að loka frystihúsinu um áramót og fá síðan einhverja til að veiða upp í kvóta okkar þegar líða tekur á kvótaárið. - En hvemig blasir framtíðin við í ljósi fyrirsjáanlegrar kvótaskerðingar? - Skerðing kemur sér auðvitað illa, en þótt hún verði 40 prósent höfum við kvóta sem nægir fyrir togarann. Við megum veiða ríflega 2000 þorskígildistonn, þar af um 1600 tonn af þorski, en um 2200 tonn í heildina. Skerðingin yrði 20 prósent og þorsk- kvótinn færi því niður í þúsund tonn. Auk þess er ætlunin að veiða ýmsar aðr- ar tegundir, meðal annars grálúðu og karfa. Raufarhöfn má muna fífil sinn fegri. A sfldarárunum var saltað á tólf plönum þegar mest var, en svo hvarf sfldin. Loðnuverksmiðja var reist árið 1984, og það var mikið brætt, allt fram til ársins 1990. í fyrra kom sáralítil loðna til Raufarhafnar, hún fór einfaldlega hjá garði eins og menn muna og veiddist ekki fyrr en hún var komin út af suðaust- urlandi. Á Raufarhöfn er enginn loðnu- bátur og þeir eiga engan loðnukvóta, þannig að það haust var ekki brætt nema fáeina daga. Heimamenn kenna því um að bræðslunni sé stjómað frá Siglufirði og segja að þess vegna hafi þeir enga möguleika á að bjóða í loðnufarma að eigin frumkvæði til að halda uppi at- vinnu. Undafarið hefur því ekki annað hráefni borist í verksmiðjuna en bein sem flutt hafa verið frá Vopnafirði og Þórshöfn og ekki dugað henni nema einn dag í viku. Ef sjórinn bregst er því fátt til bjargar. Fyrir utan útgerð og fiskverkun er er ekkert annað á Raufarhöfn annað en verslun, bankaútibú og hótel, sem hrepp- urinn á en er nú leigt út. Ef ekki fer að rofa til í fiskinum er því hætt við að ýmsir þeirra rúmlega 300 íbúa Raufar- hafnar fari að tygja sig til brottferðar. Reyndar er þegar farið að bera á því að fólk hugsi sér til hreyfings, en vanda- málið er hið sama og annarsstaðar á landsbyggðinni: Fyrir einbýlishús sem er metið á um tíu milljónir króna fást varla nema fjórar til fimm - ef kaupandi finnst á annað borð, sem getur bmgðið til beggja vona. Haraldur í Kvistási brást við samdrætti í bílaviðgerðum á sinn eigin hátt. Samdrátturinn hjá Haraldi í Kvistási: Betri vegir færri biladir bílar Samdrátturinn í þjóöfélaginu hefur ýmsar hliðar. Eina þeirra sér Har- aldur Þórarinsson í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu á bílaverk- stæðinu sínu. Fyrir svosem aldarfjórðungi var stöð- ugur straumur ferðamanna um Kinnina, og flesta daga var örtröð á verkstæðinu hjá Haraldi, sem stendur fast við þjóð- veginn. -Þá var algengt að hér biðu fimm til sjö bflar eftir viðgerðum, en núorðið kemur varla nokkur maður við hjá mér, allir brana framhjá. Það kom fyrir að ég gerði við 39 dekk á einum degi, og not- aði ekki önnur verkfæri en felgujárn og sleggju. Nú á ég þessa fínu vél til þess- ara nota, en hún stendur mest ónotuð, og það kemur varla fyrir að ég selji dekk, segir Haraldur í samtali við Vinnuna. Það sem fyrst og fremst hrjáði bfla ferðamanna á velmektarárum þessa bíla- verkstæðis í Köldukinn voru bilaðir hljóðkútar, brotin fjaðrablöð, sprungin dekk og lekir bensíntankar. Þá voru þjóðvegir landsins lrka, eins og þeir muna sem nú eru komnir til vits og ára, djúp hjólför og háir hryggir, og bflamir oft þungt hlaðnir. Eða eins og Haraldur sér þetta: -Áður en fólk lagði af stað í ferðalög var fyrst að ákveða hverjir hinna fullorðnu kæmust með, síðan hve margir vildu sitja undir bömum, en að lokum var farangri troðið í skottið, en síðan á toppgrind, þegar farangursrýmið þraut. Þá vora bflamir orðnir tví- eða þrílestaðir og hryggimir og grjótið sáu um afganginn. Nú eru flestir vegir orðnir fínir og sléttir, og það kemur varla fyrir að maður sjái fleiri en tvo fullorðna í bfl. En hvemig bregst Haraldur í Kvistási við samdrættinum? Flestir landsmenn vita að hann er einn af ötulustu fréttarit- uram rfldsútvarpsins í hinum dreifðu byggðum landsins og lætur fátt frétt- næmt framhjá sér fara. Á verkstæðinu lagfærir hann stundum vélar Kára bróður síns, bónda á Kvistási, en vegfarendur þjóta flestir hjá garði á vélfákum sínum. En úti í horni verkstæðisins stendur mikill rennibekkur, og þar unir Haraldur sér langar stundir. I honum rennir hann svonefnda “krumphringi”, sem hann sel- ur versluninni Fálkanum í Reykjavflc, en finnst hann að vísu fá lítið fyrir. I rennibekknum og með logsuðutækj- um býr hann líka til stórar og miklar lamir, sem era helst ætlaðar fyrir stórar hliðgrindur. Þær era búnar hans eigin uppfinningu sem á að gera þær betri en aðrar lamir. Samt sem áður gengur illa að koma þeim út. Haraldur hefur gert til- raun til að koma þeim á markað á Akur- eyri, en fékk þvert nei án þess að við- komandi liti á þær, sagði einungis að svona handsmíðaðar lamir væra of dýr- ar. -En ég athugaði hvað svipaðar lamir kostuðu hjá honum og það kom í ljós að verðið sem ég hafði hugsað mér á mín- um lömum var lægra, segir Haraldur. Niðurskurðurinn hjá Haraldi í Kvistási er því staðreynd. En hann getur ekki kennt þorskinum um, heldur bættu vegakerfi. VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.