Vinnan


Vinnan - 01.09.1992, Qupperneq 31

Vinnan - 01.09.1992, Qupperneq 31
Það liggur nú fyrir að danska þjóðin hefur hafnað þessari dýpkun bandalags- ins og með því undirstrikað þann lýð- ræðislega halla sem er á bandalaginu. Stærstu stjómmálaflokkar í Danmörku, stærstu verkalýðssamtök og öll samtök atvinnurekenda hvöttu fólk til þess að segja já í kosningunum, en svarið varð engu að síður nei. Þótt ráðamenn banda- lagsins séu enn nokkuð harðir á því að niðurstaðan í Danmörku sé sérstök verð- ur að líta til þess að þeir vilja auðvitað ekki gefa öðrum þjóðum undir fótinn með að hægt sé að fella samkomulagið. Það verður því að teljast mjög líklegt að niðurstaða Dana hafi mun meiri áhrif hvað þetta varðar en menn vilja vera láta. Engin trygging er til fyrir því að á- líka staða geti ekki komið upp í hinum aðildarríkjunum og því eru menn eflaust famir að íhuga hvemig bregðast eigi við þessum aðstæðum. Hvort þessar aðstæður verða til þess að hægja á dýpkun bandalagsins er erfitt að segja til um, en líklegt er að ráða- menn íhugi vandlega hvort þeir séu á réttri leið og hvort ekki sé nauðsynlegt að bæta upplýsingar til kjósenda um innra starf bandalagsins og ákvarðana- töku þar. Þá má einnig benda á að EB- þingið hefur barist mjög mikið fyrir meiri völdum og vera kann að andsvar ráðamanna við núverandi aðstæðum verði að auka völd þingsins á einhvem hátt. Lenda Danir í vandræðum? Hafa Danir því einungis kallað yfir sig vanda- mál með úrslitum þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar? Ut á við gagnvart EB kann svo að vera að einhverju leyti. En inn á við hefur verið sýnt fram á að málin eru ekki í lagi. Þjóðin er greinilega mjög ósam- mála bæði stjórnmálamönnum og full- trúum launafólks, sem auðvitað getur verið vandamál út af fyrir sig. En Danir hafa þó sýnt fram á að grunur margra um langt bil á milli forráðamanna EB og fólksins er fyrir hendi. Mín skoðun er sú að EB geti ekki hunsað sjónarmið dönsku þjóðarinnar þegar til lengdar læt- ur, a.m.k. á meðan ekki hefur verið sýnt fram á að hún hugsi öðmvísi en aðrar þjóðir innan EB. Einungis hefur verið sýnt fram á að írar hugsi öðruvísi, en þá em 10 EB-þjóðir eftir. Fulltrúar þeirra samtaka sem hvöttu Dani til þess að segja nei eru sannfærðir um að danska neiið muni gagnast bæði Dönum og EB. Einhverjar breytingar verði gerðar á Maastricht-samkomulag- inu síðar á árinu þannig að Danir geti betur sætt sig við það. Neiið muni einnig hafa áhrif á lýðræðisþróunina innan bandalagsins þegar til lengri tíma er lit- ið. Sé þetta rétt er varla hægt að segja að Danir hafi kallað yfir sig mikil vand- ræði. VINNAN Vinnuverndarár: Vellíðan hins vinnandi manns ■ Hreint ioft ■ Öryggi ■ Vellíöan ■ Vellíöan Á þessi atriði er lögð megin áhersla á yfirstandandi vinnuvemdarári í Efta- ríkjum og rrkjum Evrópubandalagsins, sem hófst í mars og lýkur í sama mán- uði að ári. Hér á landi er skipulagning vinnuvemdarárs í höndum Vinnueftir- lits ríkisins. Markmið vinnuvemdarársins er að allsstaðar, í stómm og smáum fyrir- tækjum, sé hugað að því að aðbúnaður sé góður, komið sé í veg fyrir vinnu- slys og atvinnusjúkdóma og stuðlað að vellíðan hins vinnandi manns. Áhersla verður lögð á, að á vinnu- vemdarári verði innra starf fyrirtækja eflt, og allsstaðar þar sem em tíu starfsmenn eða fleiri verði skipaður ör- yggisvörður og öryggistrúnaðarmaður, en öryggisnefndir í fyrirtækjum þar sem starfsmenn em 50 eða fleiri. Flestum hættir til að hugsa sem svo, að slys og sjúkdómar hendi ekki þá sjálfa, heldur einhverja aðra. Það kann þó að vekja einhverja til umhugsunar að samkvæmt tímaritinu Vinnuvemd em vinnuslys á körlum fleiri hér á landi en í Danmörku, Svíþjóð og Bandaríkjunum, en slys á konum aftur á móti álíka algeng. Skráning vinnuslysa á slysadeild Borgarspítalans í Reykjavík og heilsu- gæslustöðvum úti á landi sýna, að hvorki fleiri né færri en 12.000 slík slys verða á hverju ári, sem þýðir að því sem næst tíundi hver vinnufær maður leitar sér læknishjálpar árlega vegna vinnuslysa, og samkvæmt skrán- ingu Vinnueftirlitsins létust 18 manns í vinnuslysum á áranum 1986-1990. Álíka mikið er tilkynnt af atvinnu- sjúkdómum hér og annarsstaðar á Norðurlöndum, samkvæmt niðurstöð- um athugunar sem birtar voru árið 1989. Langmest er tilkynnt hér á landi um heymartap vegna hávaða, en minna er tilkynnt af öðmm atvinnusjúkdóm- um. Það kann að stafa af því að annars- staðar á Norðurlöndum byggjast til- kynningar um atvinnusjúkdóma á því að almannatryggingar bæta þá sérstak- lega. Það hvetur fólk til að fá slíka sjúkdóma skilgreinda sem atvinnusjúk- dóma, sem stuðlar að nákvæmari skráningu. ítla má að bætti almanna- tryggingakerfið hér á landi atvinnu- sjúkdóma sérstaklega, og betur en aðra kvilla, yrði þeim veitt meiri athygli, sem leiddi aftur til áhrifaríkari for- vamastarfa. Ekki hafa farið fram rannsóknir á kostnaði vegna vinnuslysa og atvinnu- sjúkdóma hér á landi, en athugun Al- þjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf á þessum kostnaði í nokkmm iðnríkjum sýnir að hann virðist vera á bilinu 1-3 prósent af vergri landsframleiðslu. Það þýðir að kostnaðurinn hér á landi sé á bilinu 3,8 til 11,3 milljarðar króna. Menn hafa gert sér grein fyrir því að vinna getur valdið heilsutjóni, en stutt er síðan farið var að leggja áherslu á mikilvægi andlegrar líðanar fólks í vinnu. Það hefur verið gert í vaxandi mæli á síðasta áratug, og vafalaust verður enn meira um slfkt hugsað en hingað til. Með vinnuvemdarári 1992 til 1993 er ætlunin að hrista svolítið upp í fólki, og vekja það til hugsunar um eigin hag og velferð. (Rammi eða rasti) Styrkir til vinnu- vemdar Styrkir til átaks í vinnuvemd- armálum eru veittir tvisvar á vinnu- vemdarári. Fyrri umsóknarfrestur rann út fyrsta maí síðastliðinn, og bámst Vinnueftirlitinu 13 umsóknir. Sex styrkir vom veittir, samtals að upphæð 1,1 milljón króna. Hæsta styrkinn, 400 þúsund krónur, hlutu nemendur í Fjölmiðladeild Há- skólans, til að gera myndband um vinnuvemdarmál. Samband bygginga- manna fékk 200 þúsund krónur til út- gáfu- og kynningarstarfsemi um vinnu- vemd og Slysavamafélag Islands fékk jafnmikið til að stuðla að því að örygg- ishlífar verði settar á vinnuvélar í land- búnaði. Hjúkrunarfélag íslands fékk 100 þúsund krónur vegna ráðstefnu um vinnuvemdarmál á heilbrigðisstofnun- um og annað eins fékk áhugahópur sjúkraþjálfara til að standa fyrir ráð- stefnu um vinnuvemd. Loks runnu 50 þúsund krónur til Landsnefndar um al- næmisvamir vegna kynningarátaks um umgengni við alnæmissjúklinga á vinnustöðum og Læknafélags íslands vegna fræðslu- og kynningarfundar.

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.