Vinnan - 01.09.1992, Síða 33
33
Er brestur í skólastarfinu?
Af fjögur þúsund nemendum sem fara
úr grunnskólanum á ári hverju hafa eitt
þúsund lélega kunnáttu í lestri, skrift og
stærðfræði. Af framhaldsskólanemum
hættir um helmingur nemenda áður en
námi lýkur.
Vitanlega eru ástæður þessa
margslungnar og verða ekki allar
skýrðar sem brotalöm í skóla-
starfi.
Skólakerfi í einangrun Skóla-
kerfið má ekki vera einangrað fyr-
irbæri í samfélaginu. Ásamt
skyldu sinni að þroska einstak-
lingana og láta þá sitja í fyrirrúmi í starfi
sínu ber skólakerfinu ótvírætt að fylgja
eftir samfélagsgerðinni í starfi sínu.
Skólakerfið mótar umhverfið en um-
hverfið á líka að móta skólana. Ef allt er
í lagi á að ríkja jafnvægi þama á milli.
Að leysa verkefni sín Skólinn er
vinnustaður. Þar ber starfsmönnum,
kennurum og nemendum, að ganga að
störfum sínum, taka til hendinni og leysa
verkefni sín alveg eins og þykir góður
siður á öðrum vinnustöðum. Skólanum
ber að þjálfa nemendur sína til að takast
á við veruleikann utan skólastofunnar. í
atvinnulífinu spjarar sig enginn nema
fari saman þekking og verk-
Eftir Snorra S.
Konráðsson forstööu-
mann MFA
hæfni. Alltof margir nemendur, sem hafa
dvalið í 10 til 14 ár í skólum, verða þess
illilega varir að þá skortir verkhæfni og
þekkingu þegar þeir ráða sig í vinnu.
Þetta er dæmi um að skólinn hefur ein-
angrast frá umhverfi sínu.
Skólinn verður að þjálfa nemendur
jafnt til verklegrar hæfni sem til þekking-
ar á bókina. Leikni er lykillinn að skiln-
ingi á fræðilegum þáttum námsins. Því er
mótmælt að stúdentspróf geti verið jafn
mikilvægt markmið og verið hefur. Þau
tilfelli eru hverfandi að stúdentspróf sé
aðgöngumiði að starfi.
Nýstúdentinn getur því miður ekki
veifað skírteini um starfsþjálfun
eftir 14 ár í skóla. Prófið hans er
blekking vegna þess að forsendur
námsins voru rangar. Þetta á ekki
að líðast. Allt nám í skóla verður að
koma að gagni í starfi hvort sem
því lýkur með prófi eða hætt er á
miðri leið.
Tengsl við atvinnuvegina For-
ystumenn Háskóla Islands hafa í ræðu og
riti haldið því fram að háskólanám og at-
vinnuvegir séu órjúfanlegir þættir. Til lít-
ils væri fyrir HI að ala af sér vísinda-
menn sem ekki væri not fyrir í atvinnu-
vegunum. Til þess að Háskólinn geti
rækt þetta hlutverk sitt hafa margir kenn-
arar hans starfræn tengsl við vinnustaði
utan hans. Grunnskólinn og framhalds
Framh. á bls. 35
VINNAN