Vinnan - 01.09.1992, Page 38
38
Þórir Karl Jónasson forma&ur Samstöðu í Reykjavík:
„Lögsækjum ríkiö ver&i
EES-samningar áb lögum77
Þórir Karl Jónasson með hluta afþeim undirskriftalistum gegn EES-samningum, sem þeghar
hafa borist til Samstöðu um óháð Island. Mynd: Róbert)
- Ef samningar um evrópskt efna-
hagssvæöi veröa staðfestir sem lög
á Alþingi íslendinga veröur höföað
mál gegn ríkinu. Geri samstaða
þaö ekki verða þaö einhverjir ein-
staklingar. Ákæruatriðin verða þá
brot gegn íslensku stjórnarskránni.
Þaö veröa engin vandræði með
málatilbúnað því við erum með tvo
hæstaréttarlögmenn í fram-
kvæmdanefnd Samstöðu í Reykja-
vík.
Þetta segir Þórir Karl Jónasson fram-
kvæmdastjóri deildar Samstöðu um óháð
Island í Reykjavík. Hann veitir einnig
forstöðu skrifstofu samtakanna, sem
Reykjavíkurdeildin og landssamtök
Samstöðu reka á Laugavegi 3.
Þórir Karl segist einnig eiga von á að
á Alþýðusambandsþingi í haust verði
borin fram tillaga um að ASI snúist gegn
EES-samningum. Til þessa hefur slík til-
laga ekki náð fram að ganga í miðstjóm
ASI, þar hefur eingöngu verið samþykkt
að krafist skuli þjóðaratkvæðagreiðslu
um málið.
Skrifstofa Samstöðu um óháð Island
var opnuð í seinnihluta júlímánaðar og
þegar í stað var hafist handa um söfnun
undirskrifta gegn EES-samningunum.
Hún gengur vel að sögn Þóris Karls.
- Sex okkar hafa meðal annars verið á
hverjum laugardegi í Kolaportinu og við
höfum fengið allt upp í 700 undirskriftir
á einum degi. Það hefur líka borist tals-
vert af undirskriftalistum utan af landi,
og ég held að andstaðan gegn EES-
samningum sé veruleg þar, fólk sé hrætt
við afleiðingar þeirra.
Samstaða hefur undanfarið leitað eftir
fjárframlögum hjá einstaklingum, fyrir-
tækjum og verkalýðsfélögum með góð-
um árangri. Þórir Karl segir að þessi
framlög nægi til að reka skrifstofuna og
standa undir útgáfukostnaði.
- Leggja menn fram fé vegna baráttu
ykkar gegn EES-samningunum almennt,
eða baráttunnar fyrir því að þjóðarat-
kvæðagreiðsla verði haldin?
- Það er sitt á hvað, og margir vilja
leggja báðum baráttumálunum lið, þar á
meðal eru stór fyrirtæki. Innflytjendur á
japönskum vörum hafa ennfremur haft
samband við okkur, því þeir óttast um
hag sinn þar sem fyrirsjáanlegt er að sett
verða innflutningstakmörk á japanskar
vörur gerumst við aðilar að EES, segir
Þórir Karl.
Samstaða óskaði á sínum tíma eftir
fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu til að
standa straum af kostnaði við að gefa út
upplýsingarit um EES-samningana og
taka þátt í fundaherferð Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráðherra í fyrra-
haust, eins og kunnugt er, en var synjað.
- Síðan höfum við sent tvö eða þrjú
bréf og farið fram á styrk, en fengið nei.
í nágrannalöndum okkar hafa systra-
samtök Samstöðu fengið slíka styrki til
að gefa út upplýsingar um EES, en þeir
peningar sem samkvæmt því hefðu átt að
renna til okkar hafa allir farið í áróðurs-
herferð utanríkisráðuneytisins, segir Þór-
ir Karl.
Umræðan á Alþingi um aðild Islands
að evrósku efnahagssvæði verður vænt-
anlega stutt en snörp, þar sem niðurstaða
ætti að fást fyrir lok sumarþings, í fyrri-
hluta október. Lokaátakið í baráttu Sam-
stöðu um óháð íslands ætti því að vera
að sama skapi. Fyrirhugaðar eru funda-
herferðir um allt land á næstu vikum, auk
þess sem haldið verður áfram að safna
undirskriftum þeirra sem eru andvígir
svon nánum tengslum við Evrópubanda-
lagið sem EES er, en vilja þess í stað
gera tvíhliða viðskiptasamninga við Evr-
ópulönd eins og önnur lönd sem hagstætt
væri fyrir okkur að eiga viðskipti við.
I framkvæmdastjóm Samstöðu um
óháð Island em Kristín Einarsdóttir al-
þingismaður, Jóhannes Snorrason fyrr-
verandi flugstjóri, Harpa Njálsdóttir
framkvæmdastjóri Búseta og Auður
Sveinsdóttir landslagsarkitekt. í fram-
kvæmdanefnd Samstöðu í Reykjavík eru
Þórir Karl Jónasson, formaður, Jóhann
Þórðarson og Tómas Gunnarsson hæsta-
réttarlögmenn, Einar Valur Ingimundar-
son umhverfisverkfræðingur, Bjami Ein-
arsson aðstoðarforstjóri Byggðastofnun-
ar, Jóhannes Sigursveinsson stjómar-
maður í Dagsbrún, Haraldur Jóhannsson
hagfræðingur og Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur.
VINNAN